Hinn efsti dagur

Ég get ómögulega skilið að þær málalyktir að hætt verður við klámráðstefnuna sé góður dagur fyrir ástina eins og sumir segja. Var ástin nokkru sinni til umræðu? Til eða frá.

Kúgun, mannsal, vændi.

Ekkert af þessu er ást.  Ekki heldur það réttlætismál að berjast gegn slíkri niðurlæginu. 

Ástin er viðkvæmt fyrirbæri sem skapast milli einstaklinga en ekki hópa. Hún er ekki kappleikur þar sem hrópað er húrra þegar sigur vinnst fyrir eitthvert lið. 

Og þeir eru margir, af báðum kynjum, sem njóta engrar ástar. Sumir deyja út af því.

Er þetta sigur fyrir þá?  

Ástin var aldrei til umræðu í þessu máli. Ef hugkvíar í umræðu eru ekki skýrar verður öll umræðan argasta klám.

Kannski væri annars best að allir hætti að blogga þangað til ástin hefur sigrað heiminn. Þegar ástin er annars vegar taka menn oft stórar bloggákvarðanir!

Það verður góður dagur. En ég held líka að það verði hinn efsti dagur.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir

Flott nýja myndin þín. Haltu þínu striki.

Með kærri kveðju,

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 23.2.2007 kl. 12:40

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Nú, eitthvað vafðist fyrir mér að kommenta hér í gær - geri það bara núna í staðinn og hrósa þér fyrir athyglisverða færslu. Kveðja, Greta Björg.

Greta Björg Úlfsdóttir, 23.2.2007 kl. 15:11

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Myndin já er flott. Og maðurinn sjálfur er enn þá flottari! Þetta er reyndar myndin sem fyrst vakti athygli á honum í bloggheimum þegar hún birtist í Fréttablaðinu (á forsíðu m.a.s.!) 29. okt. 2006 með annáluðu viðtali við bloggarann í tilefni þess uppátækis hans að setja veðurlýsingar allra sæmilega áreiðanlegra annála inn á sína bloggsíðu. Þær er hægt að lesa í bloggflokknum "Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum" hvers inngangur að sést hér til vinstri á síðunni. Allir ættu að lesa þetta, ekki síst þeir sem fylgjast með breytingum á veðurfari. Þetta er alveg unaðslegur lestur. Ólíkt hugðnæmari en þetta ólukkans dægurþras alla tíð, klámið og déskotans guðlastið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.2.2007 kl. 15:40

4 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hvað er þessi Maður að gera þarna á milli okkar á vinsældarlistanum?? Pjetur Hafsteinn eitthvað? Við erum alveg að smella saman; þú í 61. og ég í 63. sæti. Þetta stefnir í mikinn rómans hjá okkur ;) Öll teikn á lofti. Og alls ekkert klám takk.

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.2.2007 kl. 23:25

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Pjetur Hafstein er gamall vinur minn og mun eigi lengi í vegi fyrir okkur standa. Þú ert reyndar á uppleið á listanum en ég hraðri niðurleið síðan ég byrjaði að klæmast svona svakalega. Ég verð að hætta því snarlega og fara bara með bænirnar mínar svo við getum sameinast á toppnum. Og ekkert klám þá né helvítis guðlast!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.2.2007 kl. 00:01

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Rómansinn er algjör Zoa! Nú er ég nr. 58 og þú nr 59. Bráðum verður þú nr. 58 og ég nr. 59. Þá verður það fullkomnað. Svo förum við saman á topinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.2.2007 kl. 00:21

7 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Alveg vissi ég að við myndum ná saman að lokum ;)

gerður rósa gunnarsdóttir, 24.2.2007 kl. 08:36

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hjúkkitt!! Þurfum ekki að hætta að blogga!! Ástin hefur greinilega sigrað amk frá Íslandi til Grikklands!!

Heiða B. Heiðars, 25.2.2007 kl. 23:57

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Við skulum bara vona að þetta endi nú ekki eins og grískur harmleikur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.2.2007 kl. 00:15

10 identicon

Hvernig væri nú að tussast til að blogga svolítið?

Tóta pönkari (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 03:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband