Fylgiskjalið komið inn

Fylgiskjalið sem er burðarás þessa veðurbloggs hefur ekki virkjast i nokkra daga og er ekki enn séð fyrir endann á þeim vandræðum en mér tókst þó að setja það inn áðan.

Fylgiskjalið sýnir daglegan gang ýmissa veðurþátta fyrir Reykjavík og landið á blaði 1 en fyrir Akureyri á blaði 2.

Vek sérsaka athygli á dægurhitameti fyrir landið í fyrradag. Þá mældust á kvikasilfursmnælinn á Dalatanga 19,0 stig rétt eftir kl. 18 (sem eftir reglum Veðurstofunnar eru skráðar á þ. 27, en anarkistinn Nimbus virðir engar reglur) en 20,2 á sjálfvirka hitamælinum. En það er yfirlýst stefna Nimbusar að taka aðeins mark á kvikasilfursmælingum á þeim veðurstöðvum sem mæla hita bæði með kvikasilfursmæli og sjálfvirkum.

Rétt einu sinni kemur nú ekki upp síðan á vef Veðurstofunnar með upplýsingum um mannaðar veðurstöðvar á þriggja tíma fresti með ýmsum krækjum líka á sjálfvirkar stöðvar. En frá þeim mönnuðu sjást þarna upplýsingar um mælingar á þriggja tíma fresti og hámarks og lágmarksmælingar á hita og mælda úrkomu. Margar eyður eru í  töflunum vegna þess að búið er að leggja margar mannaðar stöðvar niður. En allmargar eru enn við lýði.

Mér finnst óskiljanlegt að þessar upplýsingar um mannaðar stöðvar eftir spásvæðum, sem eru reyndar á gamla vefnum séu ekki uppfærðar og settar með pompi og pragt á þann nýja þar sem auðvelt yrði að ganga að honum. Þess í stað húkir hann ár eftir ár á gamla vef Veðurstofunnar og dettur alltaf út annað kastið. 

Þetta minnir reyndar á það að mér finnst ýmsu á vef Veðurstofunnar vera að hraka. En ég nenni ekki að gera frekari grein fyrir því að sinni.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Trausti Jónsson

Gamli vefur Veðurstofunnar hefur nú endanlega verið sleginn af - eftir 6 ára tilveru í bakherbergjum. Allir tenglar þar sem nafnið /andvari/ kemur fyrir eru nú endanlega óvirkir - og koma ekki aftur. Áhugasamir geta athugað tengla sína og séð hvort einhver þeirra er þar með dauður - eða ekki.

Trausti Jónsson, 28.11.2013 kl. 17:41

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En eftir stendur þá það að koma einhvers staðar að upplýsingum frá mönnuðu stöðvunum. Það er t.d. ekki hægt að sjá hámarks og lágmarksmælingar hverrar stöðvar fyrir sig neins staðar svo ég viti. Ég verð að nota rússneskan vef til að sjá þær mælingar frá Akureyri.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.11.2013 kl. 18:24

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það ætti nú t.d. að vera hægt að koma hámarks-og lágmarksmælingum þarna inn fyrir mannaðar stöðvar. http://www.vedur.is/vedur/athuganir/kort/faxafloi/#group=20&station=108

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.11.2013 kl. 18:40

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En best væri að allar stöðvarnar væru á sama stað svo það tæki ekki allan daginn að tékka á þeim, eina stöð í einu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.11.2013 kl. 18:41

5 identicon

Veðurstofa Íslands kærir sig eðlilega ekki um að almenningur geti fylgst með kólnunni á landinu í beinni ;)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 28.11.2013 kl. 18:50

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sjálfvirku stöðvarnar, sem eru miklu fleiri en þær mönnuðu, má segja að séu í beinni, koma á hverri klukkustund, en það voru þær mönnuðu aldrei, bara á þriggja tíma  fresti og sumar sjaldnar. En þær þyrftu satm endilega að vera aðgengilar, helst allar á sama skjali.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.11.2013 kl. 19:08

7 identicon

Sammála því að það er frekar leiðinlegt að missa þessar upplýsingar og að best væri að hafa þetta allt í einu skjali. Best væri auðvitað ef hægt væri að setja þetta inn á brunnur.vedur.is. Þar er einmitt fullt af allskonar spennandi upplýsingum, oft frekar "hráum", og ekki endilega verið að huga að fallegri framsetningu (slíkt væri væntanlega alltof mikil vinna).

Hver er aftur þessi rússneski vefur þar sem hámark/lágmrk á Akureyri sést?

Svo er eitthvað af veðurupplýsingum hjá Datamarket, man þó ekki nákvæmlega hvað...

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 1.12.2013 kl. 16:27

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, auðvitað ætti þetta á vera á brunninum. Hér er vísun á rússneska vefinn og þar er hægt að finna Akureyri. Því miður er búið að taka burtu upplýsingar um gömul veðurmet víðs vegar um heiminn, nema í Rússlandi og fyrrum Sovétríkjum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.12.2013 kl. 19:04

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þeim hefur líklega verið bannað að birta þessar gömlu upplýsingar!  Þar var t.d. hægt að sjá mesta og minnsta hita sem mælst hefur t.d. í New York frá 1800 og eitthvað.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.12.2013 kl. 19:05

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvern dag ársins sem sagt í New York. Af þessum vef fékk ég reyndar hugmyndina um fylgkiskjalið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.12.2013 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband