30.7.2018 | 02:06
Hitabylgjan
Allmikil hitabylgja gekk yfir landið í nótt og í dag þegar angi af hlýja loftinu i Evrópu barst til landsins.
Strax um miðnætti var hitinn á Tröllaskaga kominn yfir 20 stig og þar og sums staðar annars staðar varð hiti mestur að næturþeli. Snemma morguns varð sums staðar hlýjast syðst á landinu og víðar á suðurlandi. Annars var yfirleitt hlýjast síðdegis eins og oftast er. Í Reykjavík fór hitinn í 23.5 stig milli klukkan 13 og 14 á sjálfvirku stöðunni en 22,7 stig á þeirri mönnuðu. Það er dagsitamet fyrir mönnuðu stöðina en hlýrra hefur verið nokkra aðra daga nærri þeirri dagsetningu og aðra hásumardaga. Sólarhringsmeðaltlaið er 16,3 stig og er það næst mesta þennan dag síðan Veðurstofan var stofnuð 1920 en hlýrra var 2008, 16,6 stig þegar hitabylgja mikla í þeim mánuði var að byrja.
Hlýjast varð 24,7 stig á Patreksfirði og 24,5 stig á Tálknafirði og Hafnarmelum, 24,2 við Korpu, 24,1 Lambavatni á Rauðasandi, 23,8 við Hafursfell og 23,7 stig á Skrauthólum á Kjalarnesi og 23.8 á stöð vegagerðarinnar á Kjalarnesi. Á suðurlandi varð hlýjast 23,3 stig á Þingvöllum og 23,2 stig á Önundarhorni. Hlutfall veðurstöðva sem mældu 20 stiga hita eða meira er eftir hitabylgjutali Trausta Jónssonar 58,7 af hundraði sem er það mesta síðan í hitabylgjunni miklu i júlílok 2008 og ég reikna þennan dag reyndar 9.víðfemasta hitabylgjudag á landinu síðan Veðurstofan var stofnuð 1920. Mesti landshiti náði þó ekki 25 stigum.
Ekki hafa mörg árshitamet verið slegin á stöðvum sem nokkuð lengi hafa athugað. Þó mældist hitinn í Æðey 22,1 stig en þar höfðu áður mælst mest 21,6 stig á mönnuðu stöðunni í hitabylgjunni miklu í ágúst 2004 en mælingar eru frá 1954. Í Súðavík mældust 22.4 stig sem er það mesta en mælt hefur verið í mælingasögu upp á 23 ár. Á Bjargtöngum mældust 21,6 stig sem er mesti hiti sem þar hefur mælst, frá 1994. Og á Hvalnesi kom met upp á 21,3 stig þsr sem mælt hefur verið frá árinu 2000.
Ekki mældist 20 stiga hiti eða meira inni í Skagafirði og Húnavatnssýslum og ekki heldur á Fljótsdalshéraði eða norðanverðum austfjörðum. Og ekki á mönnuðu stöðinni á Akureyri og hefur ekki gerst þetta sumar. Hins vegar varð tiltölulega hlýtt á sunnanverðum austfjörðum miðað við það sem þar gerist.
Í fylgkskjalinu er listi yfir hámarkshita allra veðurstöðva sem mældu 20 stiga hita eða meira. Stöðvunum er raðað frá Reykjanesskaga og síðan norður og vestur um og endað á Eyrarbakka. Einnig er tilgreint klukkan hvað mesti hitinn mældist, td. 14 merkir að hitinn hafi mælst milli klukkan 13 og 14 en þegar tvær tölur eru, t.d. 1314, merkir að hitinn hafi mælst bæði milli klukkan 12 og 13 og milli klukkan 13 og 14. Við mannaðar stöðvar er aðeins tilgreindue hámarksaitinn en ekki hvenær hann varð. Stöðvarnar eru ekki aðgreindar eftir rekstraraðilum.
Meginflokkur: Veðurfar | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:27 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Hiti komst í 20,5 stig á mönnuðu stöðinni á Akureyri á föstudaginn var (þann 27.).
Trausti Jónsson, 30.7.2018 kl. 13:11
Villufargan! Talan hafði breyst í 12,5 stig hjá mér!
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.7.2018 kl. 19:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.