Ætti að ritskoða bloggið?

Nú er ég svo andlaus að ég á ekki orð. Ég get ekkert sagt um loftslagsmálin, fótboltamálin, kvennamálin, klámmálin eða heimsmálin. Ég er alveg tómur. 

En ég er þó á móti ritskoðun á bloggi sem sumir vilja fara að innleiða. Ef menn setja þar eitthvað sem fer út yfir einhver mörk á að mæta því með sömu aðferðum og öðru efni sem birt er opinberlega. Menn geta kvartað til réttra aðila eða jafnvel kært og svo framvegis. En ef fylgst verður með blogginu með einhverju virku eftirliti sem grípur í taumana í tíma og ótíma mun það fljótlega drepa allt spontanitet í blogginu. Það gera auglýsingar líka. Að ekki sé minnst á fégreiðslur.

Ég ætla svo í lokin að trana fram mínu eigin mikilvægi og birta veðurkort (að vísu ekki gott) frá þeim degi sem ég var í heiminn borinn en það var auðvitað í Vestmannaeyjum. 

Og  svo er það spurningin hvort ekki sé hægt að spá í veðurkort manna eins og hægt er að spá í stjörnukort manna.

Segðu mér hvernig veðrið var þegar þú fæddist og ég skal segja þér hver þú ert og hvernig örlög þín verða ráðin!

Daginn sem ég fæddist var lægð á Grænlandshafi sem olli suðvestanbarningi á landinu. Og sjá! Líf mitt hefur verið einn heljarinnar útsynningsrosi með hryðjum og hryssingi. En bjart á milli.  

Rslp19471010

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

En hvað þetta er skemmtilegt! Og bjart á milli, já.

María Kristjánsdóttir, 22.6.2007 kl. 18:56

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held líka að sé engin bráð hætta á ferðum og menn eigi að taka það rólega.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.6.2007 kl. 19:19

3 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Mér finnst þessi hugmynd um veðurkort samanber stjörnukort alger snilld! Hvar get ég fundið mitt veðurkort?

gerður rósa gunnarsdóttir, 22.6.2007 kl. 19:23

4 Smámynd: halkatla

ég myndi lesa bloggið þitt tíu sinnum áður en ég eyddi mínútu í einhvern snobbaðan þjóðmálabloggara

halkatla, 22.6.2007 kl. 19:31

5 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það er eitt sem ég hef velt fyrir mér í sambandi við ritskoðun á moggablogginu.

Það er þetta sem kemur efst á skjáinn þegar maður bloggar við fréttir, þar stendu eitthvað í átt við "skoðanir þínar eru ekki skoðanir Morgunblaðsins, þú ert ábyrgur fyrir þínum skrifum"

Leiðrétting óskast ef þetta er ekki rétt orðað.

En miðað við svona þá er maður sjálfur sinn ritstjóri og einhversstaðar las ég að þeir sem eru með bloggsíður á moggablogginu þá litu mbl menn á þær síður sem eign bloggarans, þessvegna eru allment ekki auglýsingar á síðum bloggara.

Svo þetta með tengingu veðurkorts og stjörnukorts, athyglisverð hugmynd. Ég þarf að skoða þetta betur, ef þú finnur veðurkort frá 01.10.1973 þá geturðu kanski veitt þeim upplýsingum áfram til mín á kaldi@lognid.is

kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 22.6.2007 kl. 21:46

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, og nú geta allir snúið sér til mín til að spá í veðurkortin um framtíð sína. Tuttugu ára reynsla. Algjörri þagmælsku heitið um hryllileg örlög manna.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.6.2007 kl. 23:00

8 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Þetta grunaði mig: Allt botnfrosið þennan dag!

gerður rósa gunnarsdóttir, 22.6.2007 kl. 23:44

9 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Langkaldasti níundi mars síðan mælingar hófust. Ég get ekki betur séð. Ekkert skrýtið að maður sé freðinn fyrir lífstíð, bæði á sál og líkama.

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.6.2007 kl. 00:02

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Um morguninn þennan dag var frostið 31 stig við Mývatn. Hefur síðan ekki orðið kaldara á Íslandi. Þetta skýrir auðveldlega hvað þú ert alltaf súper kúl karakter. Meteorólógían er sko engin gervivísindi eins og astrólógían!    

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2007 kl. 00:39

11 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Daginn sem ég fæddist var rólegheita veður um allt land.... alveg í stíl við mig

Heiða B. Heiðars, 23.6.2007 kl. 11:32

12 Smámynd: Brattur

já, og dagurinn þegar ég fæddist var bjartur og fallegur...
alveg eins og ég...... en talandi um veður, þá vita allir að á Íslandi er besta veðrið alltaf á Akureyri... (er reyndar ekki Akureyringur sjálfur)...
í þau fáu skipti sem veðrið er vont þar, þá heitir það "aðkomuveður".

Brattur, 23.6.2007 kl. 13:23

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sagði ég ekki: Það svínvirkar að spá í veðurkort. Vona að meteórólogían ryðji astrólógíunni alveg úr vegi. það er ansi oft aðkomuveður á Akureyri, eins og t.d. núna! Við yrðum brjáluð hér í Reykjavík ef við fengjum eins köld sumur og geta komið í aðkomuveðráttu á Akureyri. Gríp tækifærið til að koma með ósvífna própagöndu fyrir sjálfan mig: Sjáið þetta hér, snérsniðið fyrir Heiðu og fleiri veðurfana: http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/221789/

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband