18.8.2007 | 11:57
Surtsey og Upptyppingar
Í gær skoðaði ég Surtseyjarsýninguna í Þjóðmenningarhúsinu. Ekki fannst mér mikið til hennar koma. Einna mest gaman var að þessari "tímavél" sem sýndi hvernig talið er að eyjan muni líta út allt til ársins 2130. Þá verð ég nú orðinn gamall og geðstirður! En þetta speglaverk á sýningunni var bara asnalegt. Þannig sér maður aldrei í náttúrunni og ég hef ekki áhuga á arty súrrealisma á sýningu um eldgos, bara plein staðreyndum.
Svei mér ef ég er bara ekki nú þegar orðinn gamall og geðstirður!
Surstseyjargosið er eina eldgosið sem ég hef séð með mínum eigin augum. Og það tvisvar fremur en einu sinni. Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að sást til gossins úr sjó 14. nóvember 1963 fór ég með öðru fólki í bíl að Kambabrún til að horfa á það. Þá stóð gjóskutrókurinn hátt í loft upp.
Sumarið 1964 var ég messagutti á flutningaskipinu Hvítanesi sem seinna hét Vatnajökull. (Skipafélagið sem átti skipið fór reyndar á hausinn í þessari ferð og ég hef enn ekki fengið greitt kaupið mitt fyrir uppvaskið). Við héldum frá Vestmannaeyjum aðfaranótt 21. júlí og sigldum framhjá Surtsey. Þetta skrifaði ég þá í dagbókina mína: "Í nótt sigldum við að Surti og var þá mikið gos í honum. Eldsúlan sást af og til en hraunið rann fram á tveimur stöðum. Rauður bjarmi lýsti upp himininn og sjóinn. Þetta var stórkostlegasta sjón sem ég hef séð." Myndin sem hér fylgir er tekin af Sturla Friðrikssyni og er tekin með bessaleyfi af vef Surtseyjarfélagsins.
Þetta gos var allaf ótrúlegt sjónarspil. Ekkert sjónvarp var í landinu nema síðustu mánuði gossins en frægar kvikmyndir eru til af gosinu.
Ég er hræddur um það yrði núna handagangur í öskjunni hjá sjónvarpsstöðvum ef við fengjum annað eins gos. Og nú vantar sárlega gott eldgos. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur verður enn að herða sinn talanda ef hann ætlar að hafa það af að tala upp eldgos við Upptyppinga.
Það lýsir annars best lágu menningarstigi og tæpri náttúruvitund bloggverja að þeir hafa aðallega verið að klæmast með þetta nafn á síðum sínum og ekki eytt orði að því landrisi sem þar er að verða ansi stíft sem stefnir loks að útspýtingu allsvakalegri.
Ég vil fá almennilegt súpergos úr þessum Upptyppingi en ekki neitt ómerkilegt túristagutl. Það veitir ekki af að hrista upp í þessari logmollu sem grúfir yfir öllu. Minnst þúsund rúmkílómetra af gosefnum vill ég fá upp í loftið, sjóðheit og þykk og velllandi, þegar Upptyppingurinn gossar loksins öllu gumsinu út úr sér. Þá verður nú nú aldeilis aksjón, spenna og hasar.
Gott ef verður bara ekki heimsendir.
Meginflokkur: Ég | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 19:31 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ég er einmitt að rúka út í dagsbjarta og frískandi menningarnóttina!
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.8.2007 kl. 12:48
Algjörlega sammála - það er löngu kominn tími á almennilegt stórgos. Best færi á því að 4-5 gos væru í gangi samtímis. Þá fyrst værum við hugsanlega laus við þessar endalausu fréttir af úrvalsvísitölum og öðru heilarýrandi fréttatrosi. Hekla, Katla og Upptyppingar! Lyftið oki ykkar og standið undir nafni. Gjósið!
Ásgeir Kristinn Lárusson, 18.8.2007 kl. 12:53
Já það veitti ekkert af smá gosi. Hér er ég að drekka kók og má ekki bara bjóða ykkur smá á meðan þið bíðið eftir stóru sendingunni?
Ólafur Þórðarson, 18.8.2007 kl. 16:38
Alveg er ég sammála. Það vantar einmitt nákvæmlega að jörðin opnist af satanískum krafti og eldur og eimyrja spýtist út og suður um allar trissur. Það væri meira við mitt hæfi en þessi kórsyngjandi menningarnæturglaumur.
Þórdís (IP-tala skráð) 18.8.2007 kl. 17:23
Andskoti eru allir eitthvað sammála á þessari síðu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.8.2007 kl. 17:27
Ég á nú barasta ekki ord. Gosid í Heymaey 1973 var vid böjardyrnar hjá okkur Eyjamönnum og langar mig ekki ad upplifa thad aftur, takk fyrir. Satt ad segja held ég thid vitid lítid hvers thid erud ad óska, thegar thid góda fólk viljid fá adminnilegt gos. Sigurdur, ég er ennthá í útlandinu eins og thú sérd á stafagerdinni. Kem eftir helgi og vöri gaman ad heyra í thér símleidis. Kvedja.
Þorkell Sigurjónsson, 18.8.2007 kl. 18:24
Ekki ber nú að taka allt eftir orðanna hljóðan Keli minn!
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.8.2007 kl. 19:10
Vel á minnst: Ef þúsund rúmkílómetrar kæmu upp í gosi væri lífi allra jarðarbúa stefnt í hættu. Lesið þetta og dragið djúpt andann: http://en.wikipedia.org/wiki/Supervolcano
Sigurður Þór Guðjónsson, 18.8.2007 kl. 19:30
Þér varð að ósk þinni kæri Sigurður, Skömmu eftir að ég bauð Coca Cola braust út mikill eldur í háhýsi hér skammt frá og tók ég þessa videomynd af því.
OK kannski ekki gos en þetta verður bara að nægja: http://www.youtube.com/watch?v=U3hsNoeQoFQ
....
Ólafur Þórðarson, 18.8.2007 kl. 23:16
Ég vil fá það! Í gegn, að Upptyppingurinn spýti nú almennilega úr sér. Segi það enn og aftur og hananú!
Svava frá Strandbergi , 19.8.2007 kl. 11:27
Annars sá ég líka Surtseyjar gosið og það úr fínasta stúkusæti eða sjálfum Herljólfsdal. Ég var þá á einni af fjölmörgum þjóðhátíðum sem ég hef farið á. Surtur lýsti upp allan dalin, svo að bálið á Fjósakletti var eins og smá eldspýtutýra í samanburði við eldglæringarnar sem hann þeytti mílnavegu upp i loftið. Himininn logaði og drunurnar dundu í eyrum. þetta sjónarspil er það stórkostlegasta sem ég hef upplifað. Ég man að ég var montin af því að vera Íslendingur þegar ég heyrði á tal túristana sem voru þarna líka.
Svava frá Strandbergi , 19.8.2007 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.