22.8.2007 | 02:06
Konan ætti að kæra til siðanefndar lækna
Mér finnst að konan sem tekið var af þvagsýni á Selfossi eigi að kæra lækninn, sem var ábyrgur fyrir læknisfræðilega þættinum, fyrir siðanefnd lækna fyrir að hafa látið þetta viðgangast. Þetta er einmitt mál sem kemur inn á grundvallarspursmál um siðferðislegar skyldur lækna gagnvart þeim sem þeir gera á aðgerðir. Læknar eiga að halda sjálfstæði sínu í þeim efnum gagnvart yfirvöldum. Þeir eru ekki þjónar þeirra. Jafnvel þó þeim sé skipað að gera eitthvað með dómskúrskurði stendur það eftir að þeim ber að taka á siðferðislega þættinum og óhlýnðast fyrirskipunum á þeim grundvelli ef því er að skipta, um sé t.d. að ræða niðurlægjandi og meiðandi aðgerð.
Það er þá líka með ólíkindum að íslensk læknastétt láti það líðast umræðulaust að læknar taki þvagsýni úr fólki sem yfirvöld svipta sjálfræði eingöngu til að koma fram vilja sínum að fá sýni sem sönnunargagn í umferðalagabroti þó læknar hafi neitað að gera aðgerðina meðan manneskjan hafði sjálfræði af því að hún neitaði því. En þetta hefur átt sér stað sagði yfirlæknir slysadeildar í tíufréttum sjónvarsins í kvöld. Ég undrast aðgangshörku yfirvalda að beita slíkum brögðum fremur en viðurlögum við óhlýðninni því sjálfsræðissvipting er ekki gamanmál og ætti ekki að beita nema í ýtrustu neyð og ég næ því bara ekki að læknasamfélagið láti slíkt líðast, að þeir geri ekki uppreisn gegn því hvað svona tilefni snertir.
Ef þetta mál konunnar fer ekki fyrir siðanefnd lækna fer gullið tækifæri forgörðum til að glíma við mikilvæg álitamál sem snerta undirstöðuatriði.
Hættan af ölvunarakstri og hvernig taka ber á mótþróa gagnvart lögreglunni er svo annar handleggur en kemur ekki við þessum siðræna þætti er lýtur að samskiptum lækna við sjúklinga.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Heilbrigðismál, Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.12.2008 kl. 19:28 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ég þekki dæmi þar sem geðlæknir nauðgaði skjólstæðingi sínum í tilefnislausri kvöldvitjun hins fyrrnefnda á heimili ungu stúlkunnar. Hún safnaði kjarki eftir nokkurra ára þögn í niðurlægingu sinni, og setti sig í samband við landlækni. Hann kvatti hana til að kæra atvikið því hún væri ekki ein á báti, margar aðrar konur hefðu klagað viðkomandi lækni fyrir samskonar brot, en enginn þeirra væri tilbúin að mæta honum í réttarsal ásamt slyngum lögfræðingi, sem myndi benda á að þetta hefði auðvitað verið HENNI að kenna.
Unga konan þorði það ekki heldur, og geðlæknirinn er að mér best enn starfandi. Frétti allavega af honum í Noregi fyrir ekki svo mörgum árum síðan. Þessi kona á hrós skilið ef hún þorir að standa uppi í hárinu á þeim sem niðurlægðu hana með ónauðsynlegu ofbeldi. Alveg burtséð frá þeim glæp hennar að aka undir áhrifum áfengis. Hún fær sjálfsagt sína réttlátu refsingu fyrir hann "regardless".
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 22.8.2007 kl. 04:47
Þú hreyfir athyglisverðum punkti, Sigurður. Þetta er alveg viðbótarhlið á þessu máli. Samkvæmt lögum er sérhver maður skyldur til að aðstoða lögregluna ef hann getur gert það sér að meinalausu enda fái hann fulla greiðslu fyrir. Þessi regla getur stangast á við siðareglur lækna og annarra fagstétta. Aðstoðarskylda sérfræðinganna við lögregluna er því ekki og getur ekki verið skilyrðislaus. Þannig væri lækni t.d. heimilt að neita að pynta mann í haldi lögreglu eða aðstoða við slíkan verknað og lögfræðingi væri heimilt að neita að rjúfa þagnarskyldu við skjólstæðing sinn þótt lögregla krefðist þess að hann aðstoði hana með þeim hætti.
Ég tel því að auk þeirra atriða sem snúa að þvingunarheimildum lögreglu og meðalhófsreglum laga og hugsanlega þörf á dómsúrskurði þá leiði sú umræða ekki til lykta siðferðileg álitamál lækna og annarra sérfræðistétta.
Hreiðar Eiríksson, 22.8.2007 kl. 11:16
Menn verða að taka afleiðingum gerða sinna. Þess vegna er sjálfsagt að konan verði dæmd fyrir ölvunarakstur sem blóðsðyni, er tekið var, getur sannað alveg eitt og sér. En það er alveg óþolandi að svona aðgerð sem þvagsýnið var og aðstæðurnar í kringm það geti farið fram án þess sá sem gerði aðgerðina læknisfræðilega verði líka að horfast í augu við gerðir sínar og þær stéttir sem málið varðar, læknastéttin og í minna mæli lögfræðistéttin, ræði málið opinberlega en þegi bara ekki þunnu hljóði. En ætli það verðu nú samt ekki ofan á. Og ekki skrifar Mogginn leiðara um þetta! Kannski skilur hann ekki að þetta er í eðli sínu stórmál.
Sigurður Þór Guðjónsson, 22.8.2007 kl. 11:46
Alveg er ég sammála þér Sigurður. ég hef fylgst með þessu máli frá útlöndum þar sem ég bý og þetta er eins og að lesa frétt frá einhverju mjög vanróuðu og óþroskuðu landi. Ég segi að það eigi að draga svona menn til ábyrgðar sem framfylgja svona aðferðum. Þetta er fáránlegt að þetta skuli gerast í landi þar sem baráttan við ófögnuð drykkjunnar er komin svona langt á veg. Ríkið heldur úti stofnunum og styrkjum til að berjast við brennivíns ófögnuðinn og gengur það vel að eftir er tekið í heiminum. Síðan koma svona menn og eru með svona framkvæmd á sjúklingum og brjóta á þeirra mannréttindum, þetta er alveg meðólíkindum. Þetta er ekkert öðruvísi en nauðgun eða þaðan að vera. Það er fáránlegt að halda því fram að blóðprufa dugi ekki. Ölvunar akstur er og verður alltaf erfiður viðureignar. Þar sem ég bý er að nást betri árangur með því að sektir eru svimandi háar, fangelsisvist, ökuleyfissvipting og endurupptaka á ökuleyfi og ökutæki eru gerð upptæk. Sem betur fer hugsar fólk sig aðeins um. Það hefur allavegana mælst hér í þessu province hér í Kanada að ölvunarakstur hefur minnkað. Sammála þér Sigurður þetta á að vera prófmál og setja þessi mál á hærra þroskastig.
Óli Sveinbjörnss, 22.8.2007 kl. 14:27
En er þá ekki alveg jafn gott að sleppa þvagsýnatöku til að ákvarða ástand meintra afbrotarmanna ef þeir sem haga sér verst og sýna gríðarlegan mótþróa fá að sleppa.
Mér finnst þetta í fínu lagi enda þarf að taka á svona málum af festu.
Jóhann (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 15:10
Lögreglan yrðu því fengust ef ekki þyrfti að taka þvagsýni
en til þess að svo verði þá þarf að breyta lögunum.
Því það hafi fjöldi drukkinna ökumanna sem hafa sloppið við refsingu
með því að fullyrða að þeir hafi hafið drykkju eftir að akstri lauk.Annars skil ég ekki hitann í þessari umræðu er þetta eitthvað merkilegra
en þegar að tollverðir kafa uppí endagörnina á grunuðum smyglurum?
Grímur Kjartansson, 22.8.2007 kl. 21:38
Þetta mál virðist reyndar ekki allt það sem það sýndist eftir viðtalið í sjónvarpinu við lögmann konunnar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.8.2007 kl. 00:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.