Ofbeldi, segir formaður Læknafélagsins

Ekki bjóst ég nú við öðru en að svona mundu forsvarsmenn lækna líta á þvagleggsmálið. Ofbeldi, segir formaður Læknafélagsins fullum fetum.

Fréttir af atburðinum hafa reyndar verið nokkuð ruglingslegar. Hafi læknir á einhvern hátt verið ábyrgur fyrir þvagtökunni ætti hann að taka afleiðingum gerða sinni fyrir siðanefnd lækna eins og ég hef vikið að áður hér á blogginu. Eða var þetta kannski bara löggan upp á sitt eindæmi sem tók þvagsýnið?

Þá versnar nú í því. Þetta atriði þarf að koma fram á óyggjandi hátt.  


mbl.is Konan beitt ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hérna er 2. mgr. 47. grein umferðarlaganna:

Lögreglan getur fært ökumann til rannsóknar á öndunar-, svita- og munnvatnssýni eða til blóð- og þvagrannsóknar ef ástæða er til að ætla að hann hafi brotið gegn ákvæðum 2. eða 4. mgr. 44. gr., 45. gr. eða 45. gr. a eða hann neitar lögreglunni um að gangast undir öndunarpróf eða láta í té svita- eða munnvatnssýni eða er ófær um það.

... Ökumanni er skylt að hlíta þeirri meðferð sem talin er nauðsynleg við rannsókn skv. 2. mgr.

Fransman (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 12:29

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það stendur ekkert um það í þessari grein umferðarlaganna, um það, að lögreglunni sé heimilt að beita kynferðislegu ofbeldi við töku sýna. Það stendur bara 'Logreglan getur fært ökumann til rannsóknar' o.s.frv.

Mér finnst að ef lögreglan vill komast upp með það að beita svona aðferðum að þá verði hún skilyrðislaust að láta það koma fram í greininni. Ökumanni er skylt að hlita þeirri meðferð sem talin er nauðsynleg við rannsókn, jafnvel þótt hún feli það í sér að kynferðislegu ofbeldi verði beitt. skv. 2. mgr. 

Svava frá Strandbergi , 23.8.2007 kl. 12:55

3 identicon

Það væri nú undarlegur andskoti ef umferðarlögin væru öllu öðru æðri í landinu, til dæmis stjórnarskránni og almennum mannréttindum. Lögreglunni og læknum er engan veginn skylt að taka þvagsýni með þessum hætti, enda getur það verið stórhættulegt, samkvæmt formanni Læknafélags Íslands.

Löggjafinn setur misgáfuleg lög um allan fjandann og fer ekki einu sinni eftir þeim sjálfur, til dæmis fjárlögum. Fransman leggur það örugglega til líka að fólk verði sett í fangelsi í allt að eitt ár fyrir að láta íslenska þjóðfánann snerta jörð, eða klikka á því að taka hann niður fyrir sólsetur, fyrst hann vill að öllum lögum verði fylgt út í ystu æsar.

Enda þótt manni sé skylt að gera ýmislegt er ekki þar með sagt að lögreglan hafi heimild til að gera hvað sem er, brjóti maður lögin. Um það snýst málið. 

Steini Briem (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 12:58

4 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Mér skilst að þegar menn gera ekki eins og þeir eiga að gera, þ.e. fylgja ekki lögum og reglum, þá sé hægt að sekta þá og eða stinga þeim í fangelsi.
Það eru afleiðingar þess þegar menn ´hlíta ekki því sem þeim er skylt að gera´.
Mönnum er t.d. skylt að hlíta því að borga skattana sína. Ef það er ekki gert fara ekki stæðilegustu skattakallarnir heim til þín og LÁTA þig borga.
Er ég að misskilja?

Maður Á að vera samvinnuþýður við lögreglu. Ef maður kýs að gera það ekki, þá hefur það afleiðingar. Bara ekki hvaða afleiðingar sem er.

Oft á tíðum hefur verið rætt um pyntingar fanga, og þá fanga sem líklegir teljast vera til að búa yfir vitneskju sem ef hún yrði gerð kunngerð myndi koma í veg fyrir dauða fjölda saklausra manna. Þeir EIGA að gefa upp þessa vitneskju. Og miklir hagsmunir í húfi að þeir geri það.
En jafnvel ÞAR má ekki gera hvað sem er til að ná settu markmiði.

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.8.2007 kl. 13:13

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Jæja þarna kom svo innlegg í millitíðinni sem sagði hluta af því sem ég var að benda á. Svo sein stundum :)

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.8.2007 kl. 13:17

6 identicon

Jamm, þetta eru ekkert annað en pyntingar til að fá fram sannleikann.

Steini Briem (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 13:36

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fransman: Viðkomandi er ekki skylt að hlýta því sem ekki er nauðsynlegt, eins og formaður Læknafélagsins bendir á svo einfaldlega, aðrar aðfeðrir hefðu skilað því sama. En ég er fyrst og fremst að beina sjónum mínum á hlutdeild lækna í svona aðstæðum, ekki lögreglu (það gera svo maqrgir aðrir), hvað læknar láta sig hafa að gera, ef þarna átti læknir hlut að máli. Þeir eiga ekki að taka þátt í ofbeldi.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.8.2007 kl. 15:02

8 identicon

Það eru viðurlög í landinu við pyntingum. Bæði lögreglumenn og læknar sem taka þátt í þeim þurfa að sæta þeim viðurlögum.

Steini Briem (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 15:37

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Viltu kíkja á mitt blogg og hjálpa til (aftur) ?? Please!!

Heiða B. Heiðars, 23.8.2007 kl. 20:10

10 identicon

Ég mundi nú halda að sem lögfróð manneskja ættirðu að vita af lagagrein nr. 102 í umferðarlögum:[Nú hefur stjórnandi vélknúins ökutækis brotið gegn ákvæðum 1. mgr. 45. gr. eða 45. gr. a eða neitað að veita atbeina sinn við rannsókn máls skv. 3. mgr. 47. gr. og skal hann þá sviptur ökurétti

Sem þýðir að það megi ekki neyta að gefa sýni því annars verði þú sviptur ökuleyfi. Það er að refsingin er ökuleyfissvipting sem sama refsing og hún hefði fengið fyrir að keyra full.

Maður er farinn að hallast að því að að þetta hafi aðeins verið gert í pervertískum tilgangi þar sem lögreglumenn með mikilmennskubrjálæði fara offörum við að "framfylgja réttlætinu". Eða voru þeir að refsa konunni fyrir að "vera með kjaft ? Ég sé þetta sem pinntingu að hálfu lögreglu.

svo langar mig líka að bæta því við að of langt var liði frá því að akstri lauk þar til að þvagsýni til þess að það mætti nota það sem sönnunargagn. Það má víst ekki líða meira en einn og hálfur tími frá því að akstri lauk þar til að þvagsýni er tekið, en lögregan segist hafa reynt að tala konuna til í tvo tíma áður en þvagsýni var tekið.  

Bjöggi (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 21:02

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hver er lögfróða manneskjan sem hér er átt við?

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.8.2007 kl. 22:26

12 identicon

Sjá blogg læknis um málið:

http://skulablogg.blog.is/blog/skulablogg/

Steini Briem (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 23:07

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef þá reglu - eða sérvisku - að taka ekki þátt í herferðum (ekki heldur á bloggi) undirskriftasöfnunum eða neinu slíku. Sama hvert málefnið er.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.8.2007 kl. 00:52

14 identicon

Í 68. grein íslensku stjórnarskrárinnar segir: "Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu."

Í 7. grein alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sem Ísland er aðili að, segir: "Enginn maður skal sæta pyndingum eða grimmilegri. ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu." Og í 10. grein samningsins segir: "1. Alla menn sem sviptir hafa verið frelsi skal fara með af mannúð og virðingu fyrir meðfæddri göfgi mannsins."

Steini Briem (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband