Meira spakmælablogg

Nú held ég ótrauður áfram, án þess að líta til hægri né vinstri, með kjarnyrt spakmælablogg eins og fögur fyrirheit voru gefin um. Hér kemur þá uppáhaldsspakmælið mitt.

Veðurblogg er eina bloggið sem vitsmunaverum er sæmandi.

Á þessu spakmæli tönnlast ég í tíma og ótíma enda er þetta uppáhaldsspakmælið mitt:

Veðurblogg er eina bloggið sem vitsmunaverum er sæmandi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Nú er á Sigurð siginn

svefn með gráa kettinum,

ætli þeir vakni ekki aftur

hinu megin á hnettinum?

Í guðsveðurfriði.

Herbert Guðmundsson, 27.8.2007 kl. 20:21

2 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Vel valið spakmæli Sigurður.

Marta B Helgadóttir, 27.8.2007 kl. 20:38

3 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég dey úr hlátri hahahaha...

gerður rósa gunnarsdóttir, 27.8.2007 kl. 20:40

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Set hér inn daglegt veðurathuganablogg fyrir Soudaflugvöll á Krít sem er samt flugvöllurinn í Hania næsta bæ við Megala Horafia þar sem ég kynntist honum Míó mínum og varð ekki samur maður eftir.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.8.2007 kl. 23:13

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta er eininlega örstutt ljóð hjá þér þetta spakmæli með ljóðstöfum eins og vera ber.

Mér verður tíðhugsað til elsku Míós þíns. Ég vona að hann komi í leitirnar. Get ekki til þess hugsað að hann verði betliköttur á veitingastöðum. 

Svava frá Strandbergi , 28.8.2007 kl. 00:47

6 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er því sem næst logn hér í Kópavogi og skyggni gott, líkt og var miðsumars árið 2001. Hér sést ekki til sólar sem stendur og er unnið að lagfæringum. Að öðru leiti er veðrið líkt og það hefur oft verið áður og á oft eftir að verða síðar.

Yngvi Högnason, 28.8.2007 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband