24.9.2007 | 12:24
Trúrir þú á svartálfa?
Samkvæmt könnun félagsvísindadeildar Háskóla Íslands eru Íslendingar mun trúaðri á álfa, huldufólk, drauga og síðast en ekki síst blómálfa en aðrar þjóðir.
Gott og vel. Segjum að álfar séu til. En þá er eitt sem ég skil ekki. Úr hvers konar efni eru þeir? Hvar búa þeir? Hvað borða þeir? Gras? Meðal annarra orða: Hvað verður um úrgangsefnin úr þeim? Eru þau náttúrulegur skítur eða yfirnáttúrulegur skítur?
Hvernig stendur á því að ég sé aldrei áfla þó ég sé með haukfrán augu?
Jú, það er sagt að bara skyggnt fólk sjái álfa. Yfirleitt eru það mjög weird og hnöttóttar kellíngar en það er samt mark á þeim tekið af því að Íslandi er það hefð að sá sem efast um dulræn fyrirbrigði er sagður algjörlega ferkantaður og það þykir ekki par fínt.
Nú er eitt í þessu með skyggnina ég fæ ekki skilið fremur en svo margt annað enda er mér eigi gefin andlega spektin. Augað er mjög efnislegur hlutur sem nemur ljós frá fyrirbærum sem eru líka mjög efnislegt. Hvaða ljós er það sem skyggnu kellíngarnar sjá eiginlega en aðrir geta ekki séð? Hvernig gerist prósessinn í skynjuninni? Hvaða líffæri nemur hvers konar ljósbylgjur til að framkalla sjón í auganu? Eða sjá þær kannski ekki með augunum? Með hvaða líffæri sjá þær þá? Heilanum? Það finnst mér ólíklegt því þegar þessar skyggnu kellíngar ljúka upp sínum munni um huldufólk og álfa og drauga kemur klárlega í ljós að þær eru gjörsamlega heilalausar. En það þykir samt ekki bara ókurteisi að efast um að það sem skyggnu kellíngarnar segjast sjá sé nákvæmlega það sem þær segjast sjá og ekki neitt rugl og bull heldur þykir sá sem efast vera svo ferkantaður að enginn þorir annað en að halda kjafti um efann. Nema ég!
Æ, já, ég er víst algjörlega ferkantaður á alla kanta.
Og þó! Nú dettur mér eitt frábært í hug: Getur ekki verið að huldufólk sé einmitt úr þessu hulduefni sem ku vera svo troðfullt af í alheiminum að það slær út allt annað efni að fyrirferð þó enginn sjái það? Huldufólk er náttúrlega úr hulduefni!
En takið svo endilega þátt í skoðanakönnuninni á þessari bloggsíðu. Ég nenni ekkert að spyrja að því sem þegar er búið að spyrja um, blómálfa og svoleiðis blúnduverk, ég spyr fullkomlega hnöttóttri spurningu:
Trúir þú á vonda svartálfa?
Ég þarf auðvitað ekki að taka það fram að svartálfar eru svo svartir og myrkir að þeir eru öllum fullkomlega ósýnilegir.
Meginflokkur: Allt í plati | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 19:10 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Sæll og blessaður Sigurður. Voðalega ertu eitthvað pirraður í dag, kannski þú hafir hitt einn eða tvo svartálfa i morgun
Ég er nefnilega ein af þessum "gersamlega, heilalausu, hnöttóttu kellingum" og veistu, það er miklu skemmtilegra en að vera ferkantaður og þver Málið er að það er ekki hægt að útskýra allt nákvæmlega. Geturðu til dæmis útskýrt ástartilfinningu? Eða kvíðahnút í maganum? Þetta nefnilega tilheyrir annari vídd og sést ekki með efnislegu augunum. En sést með hinum innri augum
Ég vona Sigurður að þú sjáir ljósálfa, í stað svartálfanna, þeir gera ekkert nema leiðinlegt þessir svörtu. En þú veist þú dregur að þér það sem þú hugsar.... Fylgstu með kisunum þínum, ég er viss um að þú getur séð þær sjá blómálfa eða búálfa, þær hafa oft vel nothæf innri augu þessar kisur
Bestu kveðjur og óskir um bjartari dag handa þér
Ragnhildur Jónsdóttir, 24.9.2007 kl. 13:48
Ég er ekki að segjast sjá svartálfa og er ekki vitund pirraður heldur einmitt fullur af ferðatilhlökkun. Ég er bara að biðja um skýringar á sjónskynjun, að vísu nokkuð galgopalega, enda varla hægt að taka þetta alvarlega sem könnunin segir frá. Þú sérð álfana segðirðu, hvað sérðu og hvernig? Er ekki hægt að svara því' Það er alveg hægt að skýra út ástartilfinninguna og kvíahnútinn og hefur oft verið gert. Svo finnst mér, í góðu sagt, nánast ósvífið að gefa í skyn að ég dragi að mér ill öfl og lifi dimma daga þó ég hugsi þetta. En eins og ég segi: Íslendingar eru svo skynsamir að það jaðrar við persónuleikabrest eða mannvonsku að draga í efa að skyggnisýnir, sem aðeins einstaka menn sjá, séu einhver raunveruleiki annanar en sálarlegur.
Sigurður Þór Guðjónsson, 24.9.2007 kl. 15:18
Nei nei nei, ég er alls ekkert að segja að þú sjáir svartálfa eða dragir þá að þér. Ég er bara að segja að ef við hugsum um jákvæðar verur er sennilegra að við sjáum þær frekar en neikvæðar, þó það sé ekki alltaf svo einfalt.
Svo þetta með að útskýra hvernig maður sér, það er bara svolítið erfitt. Ég get ekki útskýrt hvernig ég sé tré með græn lauf bærast í vindinum, ég bara sé það. En svo eru önnur innri augu, sem sjá innri verur. Mér þykir það mjög leitt en ég get bara ekki útskýrt það nánar, nema með því að fara út í djúpa dulspeki fræðslu. En það má kannski reyna að tala um á einfaldan hátt: það eru mörg tilverusvið í heiminum og líkami okkar hefur líka mörg svið, þannig að við (hnöttóttar og gjörsamlega heilalausar konur... eins og þú orðaðir svo kurteislega...) sjáum út frá misjöfnum sviðum innan okkar líkama, inn á misjöfn svið., þar sem þessar verur búa .... ef þú skilur....
Margir draga tilvist svona innri vera í efa, það hlýtur að þýða að fólk (þessar hnöttóttu, heilalausu... ) séu ímyndunarveikar. Ef það er tilfellið, ja, þá er það bara þannig, mér líður mjög vel með að sjá eins og ég sé
Ég óska þér innilega góðrar ferðar og vona að þú, huhumm..... sjáir margt fallegt í ferðinni.
Ragnhildur Jónsdóttir, 24.9.2007 kl. 15:49
Ég hef séð dverginn Rauðgrana, Dísu ljósálf og svartálfakerlingu og son hennar, á myndum í bókum. Og ég trúi alveg að þau séu til.
Já og ekki má gleyma Alfinni álfakóng sem Bjössi vinur minn vitnar oft i.
Svava frá Strandbergi , 24.9.2007 kl. 18:25
merkileg hugtök og orðbragð fólks þegar það talar um fólk sem er öðruvísi en feluur í þeirra hugaramma eða skilning. Orðanotkunin gæti alveg verið kurteisari og framkoman betri þó fólk sé ekki alveg á sömu nótum. Gæti hjálpað til betri samskipta og jafnvel viðræðna sem efla skilning á meðan svona neikvæð orðanotkun setur strax upp veggi og eins og fyrirfram gefna niðurstöðu. "Við skiljum ekki hvort annað og ætlum ekki að gera það"hægt að utskýra fyrir blindum Þó það sé næsta ómögulegt að útskýra fyrir blindum manni hvernig blár litur er á litinn þýðir það samt ekki að blár litur sé ekki til..er það nokkuð? Ef manneskja skynjar verur af annarri tíðni eða úr annarri vídd getur ekki útskýrt fyrir manneksju sem ekki skynjar slikt hvernig hún skynjar það þýðir það ekki heldur að álfar eða aðrar verur séu ekki til..bara að það geta ekki allir skynjað þær. Hvers vegna það er..er svo allt annað mál eða höfuðverkur.
Góða gleðiferð Sigurður minn!!!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 21:25
Hefði notað púkann til að yfirfara athugasemdina hjá mér og leiðrétta stafsetningavillur og ruglingslega færslu....ef ég tryði á púka.... Sorry!
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 21:27
Heyrðu nú Katrín! Afhverju eigum við fremur að taka mark á þeim örfáu sem segjast sjá eitthvað sem aðrir sjá ekki heldur en þeim mörgu sem sjá það ekki? Afhverju er það gefið að þessir fáu hafi höndlað sannleikann en ekki hinir? Hvaða tilverusvið eru þetta? Er þau efnisleg? Við svona sjálfsögðu spurningum koma aldrei nein svör. Bara talað um aðrar víddir. Til hvers mundi það leiða fyrir heimsmynd okkar ef við tækjum þessar sýnir alvarlega og segðum: Já, einmitt, það er til einhver önnur vídd full af lifandi verum sem samt er ekki hægt að sjá né rannsaka! Hvers vegna er þeim sem vilja skynsamlegar skýringar alltaf ýtt út í horn þegar "dulræn" efni eru annars vegar. Þar á bak við finnst mér óskaplegur hroki. "Dulrænar" sýnir eiga víst bara að vera sannleikur sem ekki þarf að deila um og ekki þarf að skýra og þeir sem biðja um skýringar eru illa séðir. Þegar ég talaði um heilalausar konur var ég nú ekki að tala um einstaklinga heldur hvað þessar dulrænu sýnir eru banal og verðskulda ekki annars konar tal fremur en þeir sem fullyrða að jörðin sé flöt. En samt er heimtað að þær séu teknar alvarlegar sem eitthvað annað en fjörugt ímyndunarfl sem auðvitað getur verið merkilegt.
Sigurður Þór Guðjónsson, 24.9.2007 kl. 21:48
Þó er ég ekki að útiloka að eitthvað sé til sem sumir skynja öðrum fremur en ég hef aldrei séð neins konar skýringar á álfadæminu sem hægt er að telja í átt við vitrænu. Lifandi verur þurfa mat. Á hverju lifa álfar til dæmis? Hvernig fjölga þeir sér? Og þar frameftir götunum. En fyrst og fremst? Hvers konar efni er í þeim?
Sigurður Þór Guðjónsson, 24.9.2007 kl. 22:00
Sigurður þú ÁTT ekki að taka mark á einu eða neinu..og þeir sem skynja öðruvísi en margur GETA ekki sannað það. Hvernig eiga þeir að fara af því? Þess vegna verður þetta alltaf dilemma. Held að það sé ekkert auðvelt að skynja hluti sem fáir sjá eða skilja..en eru sannanlega hluti af reynsluheimi fólks. Það er alls ekkert verið að ýta einum eða neinum út í horn..kannski bara að fara fram á það að menn gefi pláss fyrir trú eða upplifanir annarra þó þær séu af öðrum meiði en þeirra eigin. Þú spyrð um efni og mat...kannski eru þeir ekki efnislegir og þurfa þá ekkert mat?
Vitrænu? Hvað er vitræna? Efnislegar sannanir? Og hvernig leggurðu að jöfnu að þeir sem sjá álfa og huldufólk séu af sama kaliberi og þeir sem segja að jörðin sé flöt? Annað er skynjun og hitt er staðreynd. Ekki hægt að bera saman. En...mér er alveg sama hverju fólk trúir. Og tel það svo sem ekki mitt hlutverk að sannfæra einn eða neinn um eitthvað sem hann vill eða getur ekki trúað. Það má alveg vera svoleiðis. Ég hlýt að vera komin með svefngalsa að vera að þrasa þetta...sofðu vel Siggi minn
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 23:06
skemmtileg færsla! ég og Kassí erum búnar að taka þátt í könnuninni
halkatla, 25.9.2007 kl. 21:02
annars þá var ég að útskýra þetta með álfana um daginn; jörðin er hol að innan og þar er veröld huldufólksins, það er svotil alveg einsog við en það er með passa til þess að komast að undirheimunum og getur því horfið mjög auðveldlega, við höldum bara að það sé eitthvað óefniskennt en það er miskilningur. Ath að þetta með hola jörð er ekki mín kenning heldur einhverra tveggja feðga í Ástralíu, mér finnst hún bara útskýra þetta svo vel
halkatla, 25.9.2007 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.