7.11.2007 | 02:35
Rokkað og rólað í bíó 1957 og 1958
María Kristjánsdóttir listagyðja fékk frá mér hugskeyti í gær þegar ég var einmitt að hugsa um að enginn gerði athugasemdir við þessar innblásnu veðurskýrslur mínar. Í þeirri síðustu, um hlýja nóvembermánuði, vék ég að Conway Twitty sem átti vinsælasta lagið í rigningarnóvembernum mikla 1958, It's Only Make Believe. María kom einmit með athugasemd og skrifar:
"Þetta var góð skýrsla, ég man eftir 1956 en ekki eftir Conway Twitty, en minnir að í þessum nóvember hafi ég fengið svartar gallabuxur og svartan gallajakka og horft á fyrstu rock ´n roll bíómyndina í Bæjarbíó og það var fjör. Og oftast var maður votur í fæturnar því þá átti enginn stígvél nema í vinnu."
Við þessi orð fór ég nú að rifja upp í mínu afbrigðilega minni og varð þessa þegar vísari.
Fyrsta rokkmyndin í íslensku bíói var Rock, Rock Rock sem Austurbæjarbíó sýndi 20. febrúar til 1. mars 1957 og þar komu fram m.a. Chuck Berry og Frankie Lymon (sem kom til Íslands 1959) en Tuesday Weld lék aðalhlutverkið. Stjörnubió sýndi sama ár Rock Around the Clock með Bill Haley og The Platters 4.-22. mars. Nýja bíó var með The Girl Can´t Help It 3.-16. ágúst þar sem Gene Vincent söng BeBop A Lula, Little Richard titillagið, Fats Domino Blue Monday og The Platters sungu Remember When. Jayne Mansfield var aðalleikona myndarinnar en hún var þá mikil kynbomba. Hún missti síðar höfuðið í bifreiðarslysi. Frank Tashlin var leikstjóri og var þekktur þá.
En þetta var ekki búið. Austurbæjarbíó sýndi The Tommy Steele Story 29. ágúst til 16. september og hann söng þar auðvitað Water Water sem Skafi Ólafsson gerði ódauðlegt á Íslandi undir orðunum Það er allt á floti alls staðar. Annað frægt lag var í myndinni, Freight Train, sem Ragnar Bjarnason söng síðar undir nafninu Lestin brunar eða eitthvað. Hafnarbió sýndi Rock Pretty Baby 26. september til 7. október með Sal Mineo. Sú mynd var bönnuð börnum. Austurbæjarbíó bauð enn upp á rokkmynd 3.-19. desember, Don't Knock the Rock. Þar söng Little Richard hvorki meira né minna en Tutti Frutti og Long Tall Sally og setti fótinn upp á píanóið og allt það. Áhorfendur æptu í sætunum. Ég líka.
Stóra bíótropmpið kom svo fyrsta febrúar 1958 og hélt áfram til þess 15. Tjarnarbíó sýndi þá Loving You með Elvis í flottum litum. Hann söng m.a. Teddy Bear. Með honum lét Doloroes Hart sem ég varð bálskotinn í en það var til lítils því hún gerðist nunna skömmu síðar. Aftur var Tjarnarbíó með geggjaða rockmynd 29. apríl til 6. maí Mister Rock and Roll sem hét því ágæta íslenska nafni í auglýsingum Vagg og velta. Þar lék Alan Freed plötusnúð en Chuck Berry, Fankie Lyomon og Little Richard komu fram ásamt The Moonglows og fleirum.
Þetta voru fyrstu rokkmyndirnar i íslensku bíói en heldur fór að draga úr slíkum myndum eftir þetta.
Ég nennti ekkert að vera að gera einhverjar skrifkrúsidúllur utan um þessar staðreyndir. Staðreyndir tala nefnilega sínu máli. Svo í veðri sem í rokki.
Já, börnin mín, ég þekki nú the fifties betur en fingurna á mér!
See You Later Alligator.
Meginflokkur: Tónlist | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 19:00 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Þakka þér fyrir þessi skrif,fannst mjög gaman að lesa þetta,yngdist um mörg ár,og þetta vakti upp myndir og minningar sem hafa legið í undirmeðvitundinni án þess að þeim hafi verið gaumur gefinn fyrr en við þessa upprifjun þína,þetta var frábært tímabil.
Ari Guðmar Hallgrímsson, 7.11.2007 kl. 08:34
Gúmoren. Gaman að þessari upprifjun og ekki skemmir þetta fyrir í upprifjun frá USA sé:
http://oldfortyfives.com/TakeMeBackToTheFifties.htm
Yngvi Högnason, 7.11.2007 kl. 09:26
Það var sem sé ekki í byrjun vetrar heldur að vori sem ég sá Rock Rock Rock- en það var fyrsta myndin og það man ég rétt. Og þvílík upplifun!
María Kristjánsdóttir, 7.11.2007 kl. 10:02
Það var rétt hjá Maríu. Kvikmyndin Running Wild var sýnd í Bæjarbíói sunnudaginn 8. nóvember 1956. Í auglýsingu um myndina í Morgunblaðinu þann dag segir. Ný spennandi amerísk mynd. "Rock and Roll" lagið "Razzle Dazzle"" leikið í myndinni. Sýnd kl. 5. Bönnuð börnum. Hvað svona kornung stúlka eins og María var þá var að gera á bannaðri mynd hjá Helga í Bæjarbíói veit ég ekki. Kannski skriðið inn um gluggann í portinu bakatil eins og maður gerði stundum.
Sigurður Á. Friðþjófsson, 7.11.2007 kl. 15:14
Þetta eru athyglisverðar uppýsingar nafni. En eitthvað hefur samt skolast til því þessi mánaðardagur var fimmtudagur og í Mogganum á Lanfsbókasafni er þessi mynd ekki auglýt þennan dag. Getuðru fundið þetta fyrir okkur? Svo ég bæti enn við nostalgíulistann sýndi Nýja bíó Love Me Tender 1-15. júní 1958. Elvis söng lagið en þetta var ekki rokkmynd þó rokkgoðið mesta léki í henni. Ég var þá með fjölskyldunni í sumarbústað í Skorradal og tek enn ekki á heilum mér að hafa ekki séð myndina. Þegar ég kom í Eymundsson í dag hljómaði Love Me Tender með Elvis þar um allt! Og því trúi ég vel að Maria hafi snemma runnið villt.
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.11.2007 kl. 16:36
1-15. júlí á þetta að vera.
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.11.2007 kl. 16:38
Helgi í Bæjarbío var náfrændi minn og mikill áhugamaður um það að Hafnfirðingar sæu góðar myndir og sennilega talið það nauðsynlegt fyrir menntun mína að fá að sjá þetta. Ég sá líka Love me Tender en það kann að vera að ég hafi svindlað mér inní hlé einsog á ítölsku myndirnar allar sem voru stranglega bannaðar því eftir þessum glugga man ég ekki Sigurður Á!
María Kristjánsdóttir, 7.11.2007 kl. 16:59
Fyrirgefðu Nafni. Það var laugardaginn 17. nóvember 1956. Myndin auglýst á bls. 14
Sigurður Á. Friðþjófsson, 7.11.2007 kl. 17:06
Minnið hennar Maríu er ekki til að spauga með. það er eitthvað annað en með mig sem man ekkert stundinni lengur!
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.11.2007 kl. 17:45
Til hamingju Nimbus með 'sýndarsagnfræðina' þína í Kastljósi. Ég hefði nú viljað sjá þig þar sjálfan í eigin persónu, eins og frænda okkar Jón Kalman.
þú ert lunkinn við að koma þér annað hvort í blöðin eða sjónvarpið.
Svava frá Strandbergi , 7.11.2007 kl. 23:13
Fyrirgefðu Nimbus, ég meinti auðvitað í Kiljunni hjá Agli. Ég held bara að ég sé komin með Alzheimer.
Svava frá Strandbergi , 7.11.2007 kl. 23:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.