24.1.2008 | 19:37
Borgarbúar ættu að fá að kjósa aftur!
Katrín Jakobsdóttir tjáði í hnotskurtn í sjö fréttum RÚV það rót, reiði og vonbrigði sem ríkja nú í hugum borgarbúa vegna atburða síðustu daga þegar hún sagði að almenn reiði hafi farið úr böndunum á áhorfendapöllum borgarstjórnarinnar. Framferði nýja meirihlutans væri kannski lögleg en algerlega ósiðleg og ylli því að fólk treysti ekki stjórnmálamönnum.
Það var svo alveg hörmulegt að horfa og hlusta á Vilhjálm og Geir Haarde sem hneyksluðust á unga fólkinu en ekki á því sem þeir ættu fremur að hneykslast á : Siðleysi og ósvífni nýja meirihlutans.
Orð Dags Eggertssonar á borgarstjórafundinum í dag bermála það sem maður heyrir meðal fólks í öllum flokkum hvar sem maður kemur:
Borgarbúar ættu að fá að kjósa aftur af því að misfarið hefur verið með vald og lýðræði.
Já, fólk á ekki að láta bjóða sér þetta og halda áfram mótmælunum á formlegan og skipulagðan hátt.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 18:17 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Já, það er rétt- og ég vona að skipulegum mótmælum verði haldið áfram. Það er líka eitt ótrúlegt sem ekki hefur verið rætt og mér var bent á- hvernig getur einn maður verið haldinn þeim stórmennskuórum- að hann geti sinnt störfum heils flokks?
María Kristjánsdóttir, 24.1.2008 kl. 21:09
- og verið borgarstjóri að auki. (gleymdi því)
María Kristjánsdóttir, 24.1.2008 kl. 21:10
sammála. Villi viðbjóður er lægsta lífsform veraldar! meiraðsegja sjálfstæðisfólk (með samvisku) er ekki að meika þetta sem gerðist - bara þeir ofsatrúuðu og siðspilltu geta réttlætt eitthvað svona meiraðsegja dýrlingarnir myndu ekki kvelja sig með því að vera einn dag í sálarlausum líkama Vilhjálms.
halkatla, 24.1.2008 kl. 22:29
eins gott ad ólafur verði ekki veikur
Adda bloggar, 24.1.2008 kl. 22:55
"Villi viðbjóður"! Er hann á lægra stigi en amaban?
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2008 kl. 00:18
Þarna er ég sammála nánast hverju orði Sigurður!
Ég sá annars að fólk var farið að rifja þetta upp. Þetta er auðvitað eitthvað sem má ekki gleymast...
Anna, 25.1.2008 kl. 03:26
amaban er mjög háþróuð vera - Villi óskar sér þess að vera á hennar stigi
halkatla, 25.1.2008 kl. 08:56
Anna Karen þó! Jafnvel Mala blöskrar og kalla hann þó ekki allt ömmu sína dýr-lingurinn sá!
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2008 kl. 09:22
Er enginn að hugsa REI eða OR í þessu samhengi? Er það ekki undirliggjandi ástæða þessa alls? Ég efast stórlega um að þetta snúist um einhverja vegaspotta eð ahjalla við laugaveg, hvað þá hégómlegt framapot. Frekar er þetta pólitískt fjölda-harakírí.
Menn eru að fórna sér hér fyrir eitthvað stórt og mikilvægt. Af hverju segi ég OR? Jú um daginn féll dómur í máli Hitaveitu Suðurnesja, sem heimilar þá gjörninga, sem ekki voru forsvaranlegir þegar upp úr sauð fyrst. Nú á einfaldlega að klára það dæmi. Þögnin er vitnisburður um það.
Það hangir meira á spítunni, vitið til...
Jón Steinar Ragnarsson, 25.1.2008 kl. 10:13
Katrín Jakobsdóttir, Dagur og restin af minnihlutanum eru reið og leið yfir að missa sætin sín eftir aðeins rúma þrjá mánuði. Og Katrín og Björg sennilega leiðastar yfir að hafa ekki orðið á undan Ólafi að yfirgefa leikskólann. Þetta var skammlífasta borgarstjórn sögunnar og ekki að ástæðulausu. Spurningin var aldrei hvort heldur hvenær hún splundraðist. Núna er starfhæfur meirihluti, þó óvinsæll sé hjá vinstri menntaskólaskríl. Og ef einhverntíman hefði átt að kjósa þá var það fyrir þrem mánuðum þegar andvana örverpið fæddist.
sigkja (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:55
Sigkja:
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2008 kl. 13:40
Allt bloggkerfið er svo leiðinlegt og dyntótt í dag að maður nennir ekki að standa í þessu. Ekki í fyrtsa sinn. Þeir þurfa að fara að gera eitthvað í þessum málum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2008 kl. 15:26
afhverju er Mali að hneykslast núna? það er sko staðreynd að amöbur geta ýmislegt sem við getum ekki... ekki einu sinni hann Mali! hvað þá þrefalt V
(annars máttu vita það að hún Kassandra er múslimi og sjálfstæðiskisa og þú getur sagt Mala að það sé búið að skamma mig nóg! ég get ekki meir)
halkatla, 25.1.2008 kl. 15:36
Mali er svo merkilegur með sig við allt og alla. Hins vegar líst honum alltaf vel á mús-limi.
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2008 kl. 15:58
Ég á varla orð yfir viðbjóðinum sem lekur af fólki í dag. Það er eins og þetta sé einstakt fyrirbæri sem gerst hefur núna. En þetta er búið að vera undirliggjandi meinsemd lengi, og minnst þeir sem liggja núna undir mestri sök. Hvar voruð þið þegar Dabbi og Dóri völtuðu yfir allt og alla ? Mér er spurn. Þið ættuð aðeins að sleppa gífuryrðunum, og íhuga af hverju stjórnmál eru komin í þennan farveg. Ætli við sjálf eigum nú ekki einhverja sök þar, vegna þess að við látum allt yfir okkur ganga, þangað til við springum, og þá verða jafnvel þeir fyrir sprengingunni sem minnst hafa gert af svoleiðis.
Mér blöskrar þegar fólk sem ég hef álitið kurteist og vel hugsandi fólk fellur í þessa gryfju.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2008 kl. 17:32
Hvaða þið áttu við með "þið"? Ég tala bara fyrir mig. Ég var ekkert yfir mig hrifinn af gamla meirihlutanum. Hreint ekki. Og þetta er lokahnykkurinn á tortryggni minni almennt gagnvart stjórnmálamönnum. Eru það gífuryrði annars sem Dagur og Katrín sögðu en til þeirra er hér einungis vitnað. Svo eru mín orð að auki . Eru þau gífuryrði? Verður svo fólk ekki lengur kurtiest og velmeinandi ef það segir einu sinni eitthvað sem einhver finnst ekki að eigi að segja? Þú nefnir "viðbjóð" og Sigkja "skríl". Hver nú með "gífuryrðin" krúttin mín?
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.1.2008 kl. 17:41
Það væri gott ef við gætum fengið að kjósa núna, þó ekki væri til annars en að fá afgerandi meirihluta í borgarstjórn. En okkur verður líklega ekki að þeirri ósk okkar. Við skulum muna eftir okkar lýðræðislega rétti að kjósa eftir eigin samvisku við næstu kosningar. Annars vil ég benda á eigin hugleiðingu um þessi mál.
Sveinn Atli Gunnarsson, 25.1.2008 kl. 22:22
Gott að heyra í þér Sigurður. Ég fyrir mína parta sé ekki mikinn mun á rauðu byltingunni og þeirri bláu núna. Þessi sirkus allur hefur mjög dregið úr áliti fólks á þessu stjórnmálaliði, og var það ekki mikið fyrir. Ef til vill er munurinn sá, að sagt er að sú rauða hafi verið gerð vegna orkuveituruglsins sem enginn botnar í, en sú bláa út af engu.
Viðar Jónsson, 26.1.2008 kl. 00:52
"Ef til vill er munurinn sá, að sagt er að sú rauða hafi verið gerð vegna orkuveituruglsins sem enginn botnar í, en sú bláa út af engu." segir Viðar Jónsson.
Ég bið bara landslýð allan og þó einkum Reykvíkinga eins og er, að hafa auga og eyra með því sem gerist á næstunni með mál Orkuveitu Reykjavíkur í ljósi þess sem gerðist með Orkuveitu Suðurnesja.
Sjálf hef ég þá kenningu að þetta síðasta valdarán hafi beinlínis verið gert að undirlagi aðila sem vilja selja og/eða einkavæða orkuauðlindir okkar Íslendinga og hagnast á því sjálfir. Hvað var ekki gert við fiskinn í sjónum án þess að fólk áttaði sig á því fyrr en löngu seinna? Nú ætlar liðið sem græðir á daginn og grillar á kvöldin að selja frá okkur orkuauðlindina.
Það held ég nú.
Lára Hanna Einarsdóttir, 26.1.2008 kl. 01:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.