Hérna!

Mér finnst að þeir sem eru alltaf að tala í fjölmiðlum eigi að vera mælandi og vitibornir.

Enginn getur tekið mark á ... hérna ...  manni sem segir "hérna" í hverri setningu eins og Villi viðutan fyrrum borgarstjóri gerir.

Já, mér finnst það ... hérna... ekki boðlegt af manni sem vill láta taka sig alvarlega hérna. 

En kannski eigum við ... hérna ... ekkert að taka hann alvarlega. Kannski er hann ... hérna ....bara fígúra ... hérna ... í  Spaugstofunni.    

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hédddna ég held við ættum að horfa á spaugstofuna á eftir

Hólmdís Hjartardóttir, 26.1.2008 kl. 19:14

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.1.2008 kl. 20:31

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ja héddna

Ágúst H Bjarnason, 26.1.2008 kl. 20:59

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Villi ætti bara að skella sér á framsögunámskeið hjá Dale Carnegie eða Eddu Björgvins. Orð eins og ,,hérna" ,,sko" ,,semsagt"  o.fl.  eru svokölluð  hikorð og betra að þegja bara smástund en segja svona á milli setninga. Kannski einhver ætti að segja honum það. 

Önnur fræg fígúra (Silvía Nótt)  notaði orðið ,,skiluru" í sífellu á milli setninga ..  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.1.2008 kl. 00:22

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er nú eiginlega að segja honum það! En ætli hann lesi nokkuð blogg.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.1.2008 kl. 00:32

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þú ert þó ekki með fordóma í garð málhaltra?

Emil Hannes Valgeirsson, 27.1.2008 kl. 00:43

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nei, nei, ... hérna ... en ég er bara á móti þeim þegar þeir geta ekki komið orðunum út úr sér, hérna sko!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.1.2008 kl. 00:46

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sjitt...  Emil var á undan að segja það sem ég ætlaði að segja þegar ég las þessa færslu. Ég ætlaði reyndar líka að spyrja hvort þú hefðir fordóma í garð einfeldninga.

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.1.2008 kl. 02:50

9 identicon

Bravó

Björn (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 03:35

10 identicon

Málið er, hérna sko... að mér finnst sem sagt að allir sko megi hérna bara tala sko eins og þá langar til.....

Einu sinni var ég með kennara sem sagði "sem sagt" og "hreinlega" í hverri einustu setningu. Ég fór að merkja við hversu oft hún sagði orðin. Hef ekki hugmynd um innihald fyrirlestrana hjá henni því ég var hætt að taka eftir öllu nema smáorðunum.

Ein góð leið til að þjálfa þessa ósiði af sér er að taka upp eigið tal og skrifa það niður orð fyrir orð, líka öll litlu orðin. Þá bregður mörgum í brún og fara að vanda sig meira...(var látin gera þetta einu sinni sjálf í skóla og snarlagaðist )

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 08:20

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Halla, já, þú þú meinar, ... hérna ... skil þig alveg sko ... skilurðu ... ertu nú ekki að grínast, ha? Ég hef sko sem sagt hreinlega ekkert á móti einfeldningum nema hvað þeir eru einfaldlega einfeldningar. Það held ég nú sko, úje og ójei og þambara vambara.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.1.2008 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband