5.2.2008 | 14:31
Er doktor Jósef Mengele endurborinn?
''Ökumaður ber lögregluna á Selfossi þungum sökum og segir hana hafa beitt sig ofbeldi við sýnatöku árla dags á föstudaginn. Hlaut maðurinn áverka vegna viðskipta sinna við lögreglu og hefur ráðið sér lögfræðing til að kanna stöðu sína. Vegna gruns um ölvunarakstrur stöðvaði lögreglan bíl mannsins. Um leið og ég settist inn í lögreglubílinn byrjuðu þeir að ausa yfir mig svívirðingunum og kölluðu mig hálfvita og aumingja," segir hann en viðurkennir að hafa ekið eftir að hafa drukkið tvö bjóra.
Þegar taka átti blóðsýni af manninum eftir að komið var á lögreglustöðina Þá kom þarna einhver maður sem mér var sagt að væri læknir. Ég er mjög hræddur við nálar og bað því um að maðurinn framvísaði einhverjum gögnum til að færa sönnur á að hann væri læknir. Þá réðust skyndilega þrír lögreglumenn á mig og héldu mér á meðan þessi maður dró úr mér blóð." Manninum var mjög brugðið en hann hlaut áverka vegna átakanna. Þeir tóku mjög fast á mér en ég veitti enga mótspyrnu. Ég er rispaður og marinn eftir þá og get engan veginn sætt mig við þessa meðferð."
Það er ýmislegt athyglisvert við þessa frétt úr "24 stundum" í dag. Í fyrsta lagi að lögreglumennirnir skyldu byrja á því að ausa svívirðingum yfir manninn. Í öðru lagi að honum skyldi hafa verið haldið af þremur lögreglumönnum fyrir það eitt fara fram á það að læknirinn ávísaði einhverjum skilríkjum um það að hann væri í rauninni læknir.
Einmitt góður punkur. Við erum krafin um persónuskilríki af fulltrúum ríkisvaldsins í tíma og ótíma og er þá nokkuð athugavert við það að við förum fram á það sama þegar búningar gefa það ekki beinlínis til kynna að um fulltrúa ríkisvaldsins sé að ræða. Eða er það túlkað sjálfkrafa sem mótþrói af lögreglunni ef maður í þessari stöðu fer fram á það sem hann gerði?
Og hver er þessi læknir? Er þetta sami læknirinn og tók þvagsýnið úr konunni á Selfossi í fyrra? Hvernig í ósköpunum getur hann fengið sig til að vinna læknisverk undir ofbeldi?
En það gildir það sama með þetta atvik og þvagleggsmálið. Fyrst af öllu á gera lækninn ábyrgan fyrir að framkvæma læknisverk með ofbeldi. Alltaf er ráðist á lögregluna sem fyrsta kost jafnvel þó um læknisverk sé að ræða. Læknirinn gæti alveg sagt: Herrar mínir! Við þessar aðstæður vinn ég ekki verkið. Eru læknar aumingjar sem engu voga sér gegn valdinu?
Hvernig stendur eiginlega á þessari linku sem höfð er við lækna sem gerast samsekir um ofbeldi í læknisverkum sínum? Þeir eru ábyrgir fyrir læknislega þætti verksins í svona tilvikum. Samt er aldrei hróflað við þeim og þeir þurfa ekki að standa við afleiðingar gerða sinna. Nöfn þeirra koma ekki einu sinni fram.
Eitt er eftirtektarvert við svona aðstæður. Ríkisvaldið hefur mörg vitni gegn einum borgara sem stendur alveg einn. Það getur því hagað sér eins og því sýnist. En ekki minnkar níðingsskapurinn við það.
En ég endurtek: Hver er þessi læknir?
Veit nokkur það? Kannski dr. Jósef Mengele endurborinn?
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Heilbrigðismál | Breytt 6.12.2008 kl. 18:09 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Skrítið að þurfa þrjár löggur ef maðurinn ungi var salla rólegur trúi hver sem vill.
Þorkell Sigurjónsson, 5.2.2008 kl. 14:51
Sýna vald sitt Keli! Ég trúi þessum manni alveg eins og vitnisburði lögreglunnar. Hann hlýtur líka að gera sér grein fyrir því hvað hann setur sig í viðkvæma stöðu: Ha, Þrír lögreglumenn, sá hefur verið dýróður!
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2008 kl. 15:13
svona löggusögur valda mér þvílíkum hrolli, úff að það sé ráðist á mann með nálum og dóti, horror bara
halkatla, 5.2.2008 kl. 15:59
Hvernig vitum við að vanti nokkuð í söguina? Það er augljóslega verið að gefa í skyn að maðurinn hafi verið með einhver llti umfram að spryja lækninn hvort hann hefði passa upp á það sem mér finnst alveg sjálfsagt og allir ættu að gera héðan í frá.
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2008 kl. 17:15
Ég hélt að mönnum væri uppálagt að fara með menn á spítala í blóðtökur? Þar hefði hann bæði mátt treysta því að læknir sæi um blóðtökuna, sem og að fyllsta hreinlætis væri gætt. Vona að lögguhelvítin fái það óþvegið.
Jón Steinar Ragnarsson, 5.2.2008 kl. 17:18
Eftir höfðinu dansa limirnir, þegar þessi ákveðni sýslumaður ríkti heima hjá mér, þá voru ýmsar svona uppákomur daglegt brauð. Farið var með fíkla og alka eins og ég veit ekki hvað. Margra klukkutíma leit í heimahúsi, án neinna kvartana,og leitarheimildar "af því að dyrnar stóðu opnar" var skýringin, svo líklegt af menn voru að fremja eitthvað sem ekki þoldi dagsljósið. Húsráðandi settur í handjárn svo að stór sá á honum, Fundu einhverja gamla pípu með o,o eitthvað gramm sem hægt var að skafa inn úr hausnum, af hassi og dæmt fyrir. Kona sem var á skilorði tekin niður í miðbæ gangandi og látin blása í blöðru. Innrás í annað heimili með rambóleik, þar sem notað var kúbein til að brjóta upp hurðina. Já, sem betur fer erum við laus við þennan mann, og allt miklu skaplegra og betra síðan þar. En hve lengi á maður sem hefur allt sem hann hefur gert að fá að halda embætti? En auðvitað er hann góður og geng sjálfstæðismaður, það er sennilega vottorðið sem þarf. Það er ýmislegt sem rifjast upp fyrir mér þegar ég heyri fréttir af Selfossi, það get ég sagt ykkur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 17:58
Hvernig er það, er ekki videoupptökuvél í öllum lögreglubílum? Er ekki hægt að krefjast þess að það verði lagt fram til að sanna eða afsanna framburð mannsins um svívirðingar lögregluþjónanna í hans garð? Eða eru þessar upptökur bara ætlaðar til nota þegar þarf að klekkja á þeim sem teknir eru inn í bílinn? Ég hef grun um að svo sé. Einu sinni treysti ég lögreglunni mjög mikið. Svo starfaði ég sjálfur sem lögregluþjónn í sumarafleysingum. Síðan hef ég ekki treyst lögreglunni, því miður.
corvus corax, 5.2.2008 kl. 18:35
Við votum að ekki. En við höfum einn vitnisburð. Óþarfi að draga hann fortakslaust í efa þar til annar vitnisburður kemur fram sem hnekkir honum. Hann kemur samt aldrei, sannaðu til. Það er eðli valdstjórnarinnar að þegja. Það sýnir samt ekki maðurinn fari rangt með.
Sigurður Þór Guðjónsson, 6.2.2008 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.