26.2.2008 | 10:03
Þunglyndislyf eru gagnslaus nema við alvarlegu þunglyndi
"Ný kynslóð af geðdeyfðarlyfjum á borð við Prozac og Seroxat hafa litla sem enga virkni fyrir það fólk sem notar þessi lyf. Í flestum tilvikum er jafngott að bryðja brjóstsykur." Svo segir í Frétt á Vísi is. Og ennfremur:
"Vísindamenn við háskólann í Hull hafa komist að því að geðdeyfðarlyfin virka aðeins hjá þeim hvað alvarlegast þjást af geðdeyfð eða þunglyndi. Í flestum tilfella er virknin lítil sem engin.
Vísindamennirnir skoðuðu niðurstöður úr 47 klínískum rannsóknum sem gerðar voru áður en lyfin voru markaðssett. Þar á meðal voru niðurstöður rannsókna sem aldrei hafa verið birtar opinberlega áður en vísindamennirnir fengu aðgang að þeim í gegnum upplýsingalöggjöf Bandaríkjanna. Fram kemur að jafngóður árangur náðist meðal sjúklinga hvort sem þeir notuðu lyfin eða gervipillurnar sem gefnar voru til að fá samanburð á virkni lyfjanna."
Framleiðendur lyfjanna hafa auðvitað neitað þessu enda græða þeir óheyrilegar fúlgur á sölu þeirra.
Þessar upplýsingar koma reyndar heim og saman við álit margra þeirra sem gagnrýnt hafa skefjalausa notkun geðdeyfðar-eða þunglyndislyfja.
Skyldu þessar fréttir hafa einhver áhrif á íslenska lækna sem skrifa í tonnatali lyfseðla fyrir þessum lyfjum til sjúklinga sinna en notkun þunglyndislyfja Íslendinga mun vera einhver sú mesta í heimi.
Þunglynd þjóð? Það hlýtur að vera. En hvernig er hægt að koma því heim og saman við að vera hamingjusamasta þjóð í heimi eins og einhverjar kannanir hafa leitt í ljós?
Fjósrugluð þjóð!
Evróvisjón þjóð!!
Flokkur: Heilbrigðismál | Breytt 6.12.2008 kl. 18:04 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ekkert annað en samsæri gegn almenningi kemur upp í hugann - virkni þessara lyfja á það sammerkt að fletja út persónleika fólks. Það er umhugsunarvert þegar stór hluti samfélags byrjar daginn á því að sturta í sig geðdeyfðarlyfjum og einnig sá stöðugi áróður, sem rekinn er gegn náttúrulækningum af hálfu lækna- og lyfjafyrirtækja. (Ég teki lýsi á morgnana!).
Ásgeir Kristinn Lárusson, 26.2.2008 kl. 10:29
Hvað er að vísindamönnum í Hull? Vildiðru að þeir væru í Grimsby? Ef niðurstöðurnar eru vel unnar skiptir ekki máli hvar þær fóru fram. Vísindaleg aðferð er alls staðar eins. Það er ekki hægt að vísa þessu á bug fyrirfram. Og það er full ástæða til að treysta ekki gagnrýnislaust samspili lækna og lyfjafyrirtækja. Í fyllstu alvöru. Margt veldur því, ekki síst óskamfeilin þrýstingur fyrirtækjanna sem erfitt er að varast og læknasamtök eru vel meðvituð um. Það er ekkert við þessa frétt sem segir fyrirfram að hún sé arfavitlaus. Hún er það hugsanlega. Já, hvaða rök eru fyrir því að lyfin virki bara á alvarlegt þunglyndi? Viltu ekki bíða með for-dómana þar til þú sérð þau rök. Eflaust koma þau fram í rannsóknarniðurstöðunum þó það komi ekki fram í fréttinni.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.2.2008 kl. 10:46
Þú leggur sem sagt til að þessu verði bara sópað undir teppið? Það er enginn að fæla fólk frá því að fá bata. Það er enginn bati EF lyfin virka ekki. Þegar búið er að sanna að tiltekið lyf virki ekki er heldur ekki lengur neinn vafi sem þarf að njóta sín. Frekari rannsóknir eru eflaust nauðsynlegar en það er ekki hægt að líta bara undan við svona rannsókn og láta sem ekkert hafi gerst.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.2.2008 kl. 11:04
Ég skil alveg hvað þú ert að segja. Þú vilt láta læknana um þetta. En þeir framleiða ekki lyfin og ávísa ekki á gagnslaus lyf ef það skyldi verða raunin. Ef rannsóknin leiðir það í ljós mun það verða ofan á að lyfin verða ekki lengur notuð. Svo einfalt er það. Ég er heldur ekki að segja, svo það sé á hreinu, að ástandið, þunglyndi, sé ekki raunverulegt, en það er hins vegar málið að áhrif lyfjanna virðast ekki koma að gagni við að breyta því ástandi. Þetta mál með þessa rannsókn kemur því spurmálinu um fordóma ekki við.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.2.2008 kl. 11:40
Því miður, Hallgerður, Þá tekur ekki öll íslenska þjóðin lýsi. Sérstaklega á það við um yngra fólk. Sama má segja um fiskneyslu almennt hjá þjóðinni. Samkv. heimilisbókhaldi, sem ég hef undri höndum (ekki mitt eigið!), frá 1942, þá kostaði kíló af þorski (hausaður) 55 aura, kíló af saltfisk 2 kr. og lítri af nýmjólk 92 aura!!! Sem sagt; rangt matarræði: líkamlegir og andlegir kvillar. Punktur og basta (pasta).
Ásgeir Kristinn Lárusson, 26.2.2008 kl. 11:42
Vildi benda á þetta. Ath semd varðandi það að treysta læknunum ? Það er einfaldlega ekki hægt að gera ef vel er að gáð með það sem þeir raunverulega vita !
http://simmi.blog.is/blog/simmi/entry/179941/
Geir Pétur (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 14:28
Sumir "fagmenn" (ekki geðlæknar) virðast reyndar rugla saman depurð og þunglyndi og hafa í fúlustu alvöru bent illa höldnum þunglyndissjúklingum á gönguferðir, piparmyntute og slíkt sem hina einu, sönnu lausn. Þeim gengur eflaust gott eitt til en það ætti að vera millivegur og þetta álít ég skaðlegt mörgum. Er samt alveg sammála þér, Sigurður, held að þunglyndislyfjum sé ávísað í allt of miklu magni hér á landi. Það er eins og margir líti ekki á geðsveiflur hversdagsins, eins og sorg, kvíða og áhyggjur, sem eðlilegan þátt lífsins. Við þurfum ekki pillur við öllu, nema auðvitað þegar ástandið er hætt að vera innan eðlilegra marka.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 26.2.2008 kl. 15:50
Ég verð þunglyndur af því að lesa þetta.
Steini Briem (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 16:12
Það virðist vera einhver misskilningur hér í gangi.
Rannsóknirnar sýndu að ekki var teljandi munur á geðlyfjum og staðgengilslyfjum (placebo). Hvor tveggju virkuðu miklu betur, en að aðhafast ekki neitt. Því er það rétt að geðlyf virka. Það gera sykurhúðaðar töflur líka.
En lyfjafyrirtækin eru að selja heilbrigðiþjónustum rándýr lyf, sem virka álíka vel og sykurhúðaðar töflur.
Læknar vita sem er að geðlyfin virka. En þeir vita ekki að ef þeir hefðu óafvitandi gefið sykurpillur með sama viðmóti og trausti á varningi sínum, þá hefðu áhrifin á sjúklinginn orðið svipuð. Þetta sýndu rannsóknirnar.
Því kemur þetta ekki trausti á lækna við, heldur sviksemi alþjóðlegra lyfjafyrirtækja.
Jóhann (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 17:46
Hárrétt hjá þér Jóhann!
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.2.2008 kl. 17:56
Það sem þessi frétt segir mér er að ávísun á þessi lyf er komin útfyrir allt sem getur talist vitrænt sem er kannski engin frétt.
Ef lyfjafyrirtæki segja satt með að þessir aðilar hafi ekki nema lítið brot af gögnum undir höndum þá er mjög varhugavert að slengja þessu svona fram, fólk hættir kannski umvörpum á lyfjum, meira að segja þeir sem mega það alls ekki, fréttin segir jú faktískt að þetta sé bara vondur brjóstsykur
DoctorE (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 20:50
Well Valdimar ef satt reynist að þetta sé bara eins og vondur brjóstsykur þá gerir þetta sama gagn og guð :)
DoctorE (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 10:20
Guð getur nú líka verið alveg rótsterkur brjóstsykur. Suma rífur hann alveg niður í rassgat svo þeir verða eins og umskiptingar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 27.2.2008 kl. 11:28
Ég held það megi alveg skoða þessi mál nánar. Það þarf ekki annað en að horfa aðeins um öxl til að sjá að bestu fræðimenn og sérfræðingar hvers tíma hafa haft rangt fyrir sér, aftur og aftur. Trúa menn því kannski að upp sé runnið tímabil endanlegrar vitneskju?
gerður rósa gunnarsdóttir, 1.3.2008 kl. 17:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.