Veldur hálslón jarðskjálftunum?

Erfitt er að túlka þessa frétt frá Veðurstofunni öðru vísi en svo að Hálslón orsaki kvikuhreyfingarnar sem jarðskjálftunum valda við Álftadalsdyngju. Ef þar  gýs mun það verða fyrsta dyngjugos á Íslandi síðan skömmu eftir ísöld. Slík gos geta staðið áratugum saman. Gos úr Trölladyngju í fyrndinni náði niður í Bárðardal.

Nú höfum við til einhvers að hlakka.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, svo sannarlega. Og við þessu vöruðu vísindamenn áðuren ráðist var í virkjunina. -Ég sem hitti ungan mann á mótmælafundinum sem ljómaði eins og sólin sem skein á hann af því honum þótti svo gaman að lifa. Það er ekki álitleg framtíðin hans.

María Kristjánsdóttir, 15.3.2008 kl. 15:09

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ég les fréttina þannig að Veðurstofan hafi áður talið hreyfinguna vera vegna Hálslóns en nú telji hún að hún sé vegna kvikuhreyfinganna. Veðurstofan þarf að skýra þetta betur.

Þvílík búbót fyrir ferðamannaiðnaðinn ef það kæmi langvinnt dyngjugos sem ekki ógnaði neinum.

Gestur Guðjónsson, 15.3.2008 kl. 15:38

3 Smámynd: Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir

Langvinnt dyngjugos sem ekki ógnaði neinu nema Kárahnjúkavirkjunum?

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 15.3.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Rennur hraun ekki niður á við?

Gestur Guðjónsson, 15.3.2008 kl. 16:32

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef hraun getur runnið hundrað kílómetra er ekki gott að segja til hvers það mundi leiða. Ég held að gos eftir svona langt hlé verði ekkert skemmtiefni, hvorki fyrir túrista eða aðra. Jú, kannski jarðfræðinga.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.3.2008 kl. 16:55

6 identicon

Mun ekki verða þörf á losunarkvóta fyrir svona túrista attraksjón?  Nei, ég bara spyr.

Spyrill (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 17:34

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Veit nokkur með neinni vissu hvað er að gerast þarna, af hverju og hvernig það endar? Verðum við ekki bara að bíða og sjá hvað setur?

Lára Hanna Einarsdóttir, 15.3.2008 kl. 19:55

8 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég hef ekki séð skýringu á því hversvegna talað er um að þetta verði dyngjugos en ekki venjulegt sprungugos. Veit það einhver? Hitt veit ég að ef gosið kemur upp þar skjálftarnir eru þá mun hraunið eingöngu renna á vatnasviði Jökulsár á Fjöllum og leita að lokum í farveg árinnar en ekki í átt að Hálslóni. Ef hraunið verður nógu mikið þá mun Dettifoss því verða að tilkomumiklum hraunfossi.

Emil Hannes Valgeirsson, 15.3.2008 kl. 20:36

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Vísindamenn túlka sömu einkennin á mismunandi hátt. Þeir eru sammála um það að þungi Hálslóns valdi því ekki beint að kvika er að brjóta sér leið upp um Álftadalsdyngju. Vísindamenn Veðurstofu og Háskóla telja hugsanlegt að fylling Hálslón hafi virkað eins og gikkur, þ.e. hleypt af stað kvikuhreyfingum sem hvort eð er hefðu orðið, þótt síðar hefði orðið.

Fyrst í stað  fylgdu kvikuhreyfingar sveiflum í upphækkun lónsins en síðan fór þessi virkni að hlíta eigin lögumálum.

Álftadalsdyngja er, eins og nafnið bendir til, víðáttumikil dyngja, og hvergi eru dyngjur eins algengar á á svæðinu norðan Vatnajökuls. Þess vegna eru meiri líkur á dyngjugosi þarna en annars staðar.

Viðbrögð Landsvirkjunar við þessum atburðum hafa nú orðið þau að láta vísindamenn á sínum vegum meta þetta og þeir telja engin tengsl á milli lóns og hreyfinga. Hlýtur Landsvirkjun að vera ánægð með það og hafa varið þessum peningum vel.

Jarðskjálftarnir hafa færst um átta kílómetra í norðaustur frá upphaflegum stað og hver segir að óróasvæðið geti ekki færst enn og aftur?

Erfitt er að spá. Lyfting lands við Heklu er nú orðin talsvert meiri en hún var fyrir síðasta gos og enn gerist ekkert. Sennilega fáum við svo að vita í tilkynningu í útvarpi kortéri fyrir gos að það sé að hefjast. Kannski á þessu ári. Kannski á næsta. Kenningar um breytingu á hegðun fjallsins gætu leitt til öðru vísi og meira goss síðar ef ég skildi þær rétt á sínum tíma.

Ómar Ragnarsson, 15.3.2008 kl. 22:13

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

María Kristjánsdóttir, við hverju vöruðu vísindamenn við? Eldgosi?

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.3.2008 kl. 22:56

11 Smámynd: Bumba

Æ, frændi, ég vildi bara að þetta færi allt af stað til þess að lækka hrokann og rostann í okkur voluðu íslendingum, þannig að við færum loksins að umgangast landið með virðingu og reisn sem það á skilið. Með beztu kveðju.

Bumba, 16.3.2008 kl. 01:32

12 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hve lengi hafa jarðskjálftamælar verið á þessum slóðum? GPS mælar?

Ágúst H Bjarnason, 16.3.2008 kl. 09:32

13 Smámynd: Fríða Eyland

Já góðan daginn,  Sigurður takk fyrir veður og jarðfræðifærslurnar aldeilis ekki tómur kofinn hjá þér...

Sólskynskveðja 

Fríða Eyland, 16.3.2008 kl. 09:37

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ágúst

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.3.2008 kl. 10:52

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ágúst það kemur fram i fréttinni að jarðhræringaarnar hafa staðið í rúmt ár.

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.3.2008 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband