25.5.2008 | 13:09
Hroki vesturlandabúa er nú bara ekki normal
Nú eru menn á vesturlöndum rétt einu sinni æfir yfir því að það var austantjaldsþjóð, Rússar, sem fóru með sigur af hólmi í þessari Júrovisjón. Og einhver bretabulla hvetur vesturlandaþjóðirnar til að hugsa sinn gang því þessi keppni snúist ekki lengur um tónlist heldur pólitík. Vesturlandaþjóðir eigi ekki möguleika á sigri.
Sú var tíðin að þessi keppni var algjörlega vesturlandamiðuð og vesturlönd fór þar af leiðandi alltaf með sigur af hólmi. En tímarnir breytast. Nú eru komnar til keppninnar margar þjóðir austur í Evrópu þar sem menningin er auðvitað öðru vísi en hjá okkur. Þess vegna eru minni líkur fyrir því að þjóð í V-Evrópu sigri.
Það er eftir hroka vesturlandabúa, með Breta, sem nú urðu neðstir fremsta í flokki, að rjúka í fýlu og hóta því að hætta að keppa þó jákvæðar breytingar verði á Evrópu og þar með söngvakeppninni þar sem Bretar og örfáar aðrar lásí vesturlandaþjóðir höfðu áður menningarlega tögl og hagldirnar.
Það er eiginlega kórónan á lágkúrunni sem ríkir í þessari keppni að svona yfirlætisháttur vesturlandabúa skuli koma upp þegar kemur í ljós að þeir eru fullkomlega annars flokks í júrovísjón.
Lengi getur samt vont versnað í lágkúrumálunum. Verður ekki næsta númer að þjóðirnar vestast í Evrópu, ásamt nortðurlandabúum, stofni til nýyrrar keppni!
Vestur-Evrópu söngvakeppninnar. Ekki væru þá visjónirnar burðugar!
Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Tónlist | Breytt 6.12.2008 kl. 17:48 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Loksins! Hugsandi Íslendingur með viti sem sér hvað þetta er hrokafull afstaða. Auðvitað er smekkur manna litaður af því hverjir menningarlegir nágrannar þeirra eru. Ég veit ekki betur en að Íslendingar sitji heima í stofu og bölvi Austur-Evrópusamstöðunni á meðan þeir hringja inn atkvæðin fyrir Danmörku, Noreg og Finnland. Bretar ættu að hætta að tuða og reyna frekar að þróa með sér metnað til að senda eitthvað sem þeim sjálfum finnst gott. Þá myndi kannski einhver kjósa þá! Ég púa á Vestróvisjón!
Bjartmar Þórðarson (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 13:39
Ég get ekki verið sammála ykkur.
Ef danmörk, Noregur eða Finnland er með lélegt lag.. þá fá þau ekki athvæði frá okkur.
Ef skoðað er aðeins aftur í tíman þá getum við séð að við gefum austur-evrópulöndun há stig.. og jafnvel 10 og 12 stigin ef þau eiga þau virkilega skilið.
En þegar þú sérð nágrannalönd gefa lögum sem voru sungin fölsk og illa þá er það ekkert annað en pólitík.
Arnór (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 14:05
Það virðist engin skilja hvernig löndin gefa stig í þessari keppni. Af hverju gáfu Írar t.d. Pólverjum 12 stig. Svarið er einfalt. Það eru hvergi í Evrópu hlutfallslega margir jafn margir Pólverjar og á Írlandi. Af hverju fengum við 12 stig frá Danmörku? Einfalt svar. Það eru svo margir Íslendingar í Danmörku. Þá er komið að gömlu Sovétríkjunum. Af hverju fengu Rússar 12 stig frá gömlu Sovétlýðveldunum? Einfalt svar. Það eru svo margir Rússar í þessum löndum t.d. eru 50% íbúar í Lettlandi Rússar og ekkert skrítið að Lettar gefi alltaf Rússum 12 stig. Af hverju fá Serbar nánast alltaf 12 stig frá nágrannalöndunum? Einfalt svar. Það eru svo margir Serbar í Svartfjallalandi, Króatíu, Bosníu, Makedóníu og Slóveníu. Og ekkert óeðlilegt við þetta. Við myndum gera það sama.
Eina leiðin fyrir okkur íslendinga að fá fullt af stigum er að senda alla landsmenn til allra landanna í Evrópu og til að gefu okkur stig.
Stigagjöfin hefur ekkert með samtekin ráð heldur þjóðflutninga sem áttu sér stað í Austur-Evrópu á 20. öldinni. Slíkar hreyingar átta ekki stað í V-Evrópu. Það eru t.d. ekki fullt af Bretum í öðrum Evrópu löndum. Þeir fengu þó stig frá Írlandi endi þó nokkuð margir Bretar þar.
Guðjón Ó., 25.5.2008 kl. 14:16
Arnór ... austantjaldsþjóðirnar gáfu noregi helling af stigum. Þessar þjóðir kunna alveg að meta góð lög sem ekki eru frá nágrönnum þeirra!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 14:22
Galdrar: Ég jafna því ekki saman hve veðrið er áhugaverðara fyrirbæri en Júrovisjón!
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.5.2008 kl. 16:47
Sammála, það er hrokafull afstaða að halda því fram að okkar tónlistarsmekkur sé sá eini rétti, og annarstaðar sé þetta bara klíkuskapur um að kjósa lög sem eru 'augljóslega leiðinleg'.
Ef við setjum okkur í þeirra spor, þá hljótum við að skilja, að þeim þykir tónlistin sem er í þeirra nánasta umhverfi vera besta tónlistin, alveg eins og við kokgleypum allt sem er matað ofan í okkur af íslensku útvarpsrásunum.
Viðar Freyr Guðmundsson, 25.5.2008 kl. 16:50
einu löndin sem áttu skilið að fá eitt einasta stig voru frá Balkanskaganum auðvitað, því hámenningarsvæði hinnar evrópskutónlistar bara því ver og miður, og það voru Serbía og Bosnía Herzegovina. Ég er búin að skrifa mjög lærða ritgerð um þetta annarsstaðar sem ætti að vera skyldulesning, humm, en hvað um það, íslendingar hefðu líka mátt fá stig því við erum svo frábær og æðisleg þó að eurovision sé ekki okkar sterkasta hlið. Tónlistin sem fer þangað er yfirleitt ekki góð og bara okkur til skammar, en núna eftir að keppnin hefur verið eyðilögð (ekki af löndunum sem taka þátt heldur fjöldanum) þá snýst keppnin meira um atriði og við vorum með virðulegt og hástílhreint atriði með óaðfinnanlegum söng. Innan um hórurnar og djöflana getum við vel við unað fyrir það. Ég á alfarið að sjá um að pæla í þessu því það er mjög hættulegt!
halkatla, 26.5.2008 kl. 01:40
nú er ég annars að fara að blogga meira um eurovision á moggablogginu, rétt bráðum
halkatla, 26.5.2008 kl. 01:40
Skrýtnar veðurfréttir hjá þér, félagi.
Jón Valur Jensson, 26.5.2008 kl. 02:51
Veðrið er nú oft stórskrýtið og óútreiknanlegt Jón minn Valur!
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.5.2008 kl. 09:35
og á síðan ekki að virða hið merka álit viðlits?
halkatla, 26.5.2008 kl. 12:14
Hið merka álit er svo gagnmerkt að ég hef bara engu við það að bæta án þess að verða mér til ævarandi skammar með júrovisjónfávisku minni.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.5.2008 kl. 12:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.