Kuldaköst og hret eru algeng í maí og algengari en hitabylgjur. Þó eru til ýmsir maímánuðir sem voru hretalausir og er maí 1939 þar fremstur í flokki. Þá gerði varla frost á landinu. Það er þó varla hægt að kalla það hret þó geri frost víða á landinu í maí. Það þarf norðanskot til með snjó og kulda fyrir norðan og stundum jafnvel líka á suðurlandi. En hér verður þó ekki reynt að skýrgreina hvað beri að telja hret en vikið að nokkrum frægum og óumdeildum maíhretum og greint frá mesta kulda sem mælst hefur í mánuðinum á Íslandi.
Mesta frost sem komið hefur í maí var 17,4 stig í Möðrudal þ. 1. árið 1977.
Á Hveravöllum mældust 17,1 stig þ. 4. árið 1968.
Í þeim kalda maí árið 1979 fór frostið svo seint sem þ. 19. í slétt 17 stig á Brú í Jökuldal. Sama dag mældust -16,4 stig á Grímsstöðum sem er mesta maífrost þar í sögu mælinga frá 1907.
Allt eru þetta staðir sem liggja hátt. Mesta frost á láglendi í maí mældist þ. 16. árið 1955, -16,6 stig á Barkarstöðum. Þeir eru í Miðfirði, inni í dalnum, skammt frá Bjargi þar sem Grettir Ásmundsson fornkappi ólst upp. Dalurinn er mikill kuldapyttur, ekki síst um sumur og eru þaðan kuldametin á landinu bæði í júlí og ágúst. Þetta var í lok óvenju hastarlegs kuldakasts. Á Raufarhöfn mældust -16,0 stig fyrsta maí 1968 og -15,4 stig á Þorvaldsstöðum í Bakkafirði. Sama dag kom lægsti maíhiti á Akureyri, -10,4 stig. Hafís var við land og slógu fyrstu vikur þessa mánaðar allt út í kulda eftir árstíma á annesjum norðaustanlands. Ekki hlánaði á Raufarhöfn fyrr en þ. 11. og var meðalhitinn þessa daga -6,0 stig! Miklu mildara var þegar dró inn í landið og enn frekar á sunnanverðu landinu.
Fyrir utan 1979 og að nokkru leyti 1968 voru þessir metkuldar staðbundnir en köldustu maídaga á öllu landinu er að leita í nokkrum miklum kuldaköstum sem yfir landið hafa gengið í þessum mánuði.
Einna óþyrmilegast var kastið sem kom í maíbyrjun árið 1982. Flæddi þá yfir landið alveg óvenjulega kalt loft og hefur síðan ekki komið öllu kaldara eftir árstíma. Veðrið byrjaði reyndar síðast í apríl. Mikill norðanstrengur var yfir landinu austanverðu þ. 1. en hægara veður vestanlands. Það herti á norðanáttinni næstu tvo daga en þ. 4 kyrrði vestanlands á ný og næstu dagana tvo var hægur vindur um allt land en kuldi mikill. Á norðurlandi snjóaði talsvert og náði snjókoman suður eftir austfjörðum. Lítilsháttar él voru á suðvesturlandi. Á Þingvöllum var talið alhvítt í fimm daga og einn á Hæli í Hreppum. Einnig varð hvít jörð sums staðar á Snæfellsnesi og í Dölunum. Ekki hlánaði í Reykjavík fyrstu þrjá dagana. Fór næturfrostið niður í -7,7 stig þ. 5 sem er mesta frost sem mælst hefur í borginni frá 1892 og allt til þessa dags í maí. Kaldast í þessari hrinu varð -16,0 í Möðrudal þ. 5. en allvíða var það 10-15 stig. Maíkuldamet voru víða sett. Nefna má Hvanneyri -10,2, Síðumúla í Hvítársíðu -9,8 (mælingar 1937-1985), Hamraenda í Dölum -11,2 (1939-1997), Þórustaði í Önundarfirði -13,2 (1961-1998), Æðey -9,3 (frá 1954), Strandir -9,9 (frá 1922), Hrútafjörð -12,9 (frá 1923), Staðarhól í Aðaldal -15,0 (frá 1962) og Þingvelli -12,0 (1937-1983).
Annað kuldakast, jafnvel enn hastarlegra og það því fremur sem það kom nokkru seinna í mánuðinum, kom árið 1943. Vindur var auðvitað norðanstæður og stundum hvasst. Hæð var yfir Grænlandi en lægðir fyrir austan eða sunnan land. Fyrir norðan snjóaði og var snjódýpt á Horni 110 cm þ. 15. Á Höfn í Bakkafirði var snjódýptin hálfur metri þ. 11. Ekki festi snjó í Reykjavík í þessu hreti en hins vegar sums staðar á suðurlandi, allt frá Kirkjubæjarklaustri til Grindavíkur og einnig í Borgarfirði. Í Reykjavík var komið frost, -0,6 stig kl. 21 þ. 5. og hlánaði ekki fyrr en kl. 8 að morgni þ. 10. Aldrei síðan hefur verið samfellt frost svo lengi jafn seint að vori í höfuðstaðnum, en næturfrost héldu áfram til þess 11. Aldrei hefur hámarkshiti ekki náð yfir frostmark í Reykjavík svo seint í maí sem í þessum mánuði, þ. 9. Frostið í bænum varð mest -7,2 stig þ. 8. Víða var mikið frost þann dag og daginn eftir: -15,0 á Grímsstöðum og var það þá mesta frost sem mælst hafði á landinu í maí, -13,5 á Bjarnarstöðum í Bárðardal, -12,0 á Núpsdalstungu í Miðfirði, -11,4 á Þingvöllum og -10,7 á Hæli í Hreppum. Á Fagurhólsmýri mældist lægsti hiti sem þar mældist í maí á árunum 1898-2007, -6,9 stig. Kirkjubæjarklaustur setti líka met (frá 1932) -8,0 stig og einnig Stórhöfði í Vestmannaeyjum (1921) -7,2 stig og Sámsstaðir (1927-1999) -8,4. Hæll í Hreppum, sem hefur mælt frá 1880, mældi hins vegar mesta frost í maí árið 1888, -12,2 stig sem var reyndar mesta frost á landinu í þeim mánuði.
Mesta frost í maí í Reykjavík mældist þ. 9. 1892,- 8,2 stig. Sama dag mældist mesta frost í Vestmannaeyjum, ótrúleg -9,5 stig og það í kaupstaðnum, en á Eyrarbakka varð frostið -9,2 stig og er það maímet. Á landinu varð kaldast -14,3 á Gilsbakka í Hvítársíðu.
Síðasti maídagurinn þegar sólarhringsmeðaltalið hefur verið undir frostmarki í Reykjavík var þ.18. 1979, -0,4 stig.
Einstaka maímánuðir mega teljast nánast eitt samfellt kuldahret. Þeirra alræmdastur er maí 1979. Í byrjun mánaðarins geisuðu hörkur sambærilegar við frostakaflana 1943 og 1982. Þann 17.-18. voru kuldar þeir mestu sem gerast svo síðla mánaðarins eins og sést á frostunum á Brú og Grímsstöðum sem áður er getið aðfaranótt þ. 19. Árið 1949 var líka frægur kuldamánuður. Þetta er sá maí sem hefur mest snjólag á landinu í prósentum talið, 48%. Árið 1914 var líka vondur maí og gekk á með útsynningséljum til mánaðarloka en hríðar fyrir norðan fyrri hlutann.
Ef ég ætti að velja hraklegustu maídaga síðustu áratugi myndi ég velja 3. maí 1982 og þ. 1. 1979 en einna lakasta maídag í síðsta þriðjungi mánaðarins myndi ég telja þ. 23. 2006. Takið samt eftir því hvað mestu kuldar eftir 20. maí eru mildari en fyrstu daga mánaðarins.
Fyrir norðan er auðvitað ekki tiltökumál að snjó festi á jörðu í maí. Ekki er það hins vegar algengt í Reykjavík. Það hefur gerst í 12 mánuðum frá og með 1924, síðast árið 1993 og voru þá fleiri dagar taldir alhvítir en í nokkrum öðrum mánuði, alls þrír dagar. Oftar er snjór á suðurlandsundirlendi en í Reykjavík í maí og reyndar oftar en maður gæti haldið. Þann snjó tekur þó oftast fljótlega upp. Ekki er lengra síðan en í fyrra að alhvít jörð varð allvíða á suðurlandsundirlendi kringum 25. maí en Reykjavík slapp þá. Enn síðar í maí hefur reyndar snjóað sunnarlega á landinu. Á Kirkjubæjarklaustri var alhvít jörð síðasta daginn í maí 1936.
Hér verður drepið á nokkra hreta- og snjódaga.
Mjög slæmt norðanhret kom 4. maí árið 1923 og stóð í tvo daga.
Af einhverjum ástæðum var snjór algengari en á flestum öðrum tímum á suðurlandi á síðari hluta þriðja áratugarins. Árið 1926 snjóaði mjög víða 8.-9. maí og var snjódýpt 5 cm í Reykjavík að morgni þess 9. en 6 cm í Vík í Mýrdal þ. 10. Árið 1929 gerði frægt maíhret þ. 4.-5. Stórhríð skall á mjög skyndilega á með mikilli veðurhæð. Í Fnjóskadal beið maður þá bana í snjóflóði. Fjárskaðar urðu um allt suðurland og jafnvel á Reykjanesskaga. Í uppsveitum suðurlands stífluðust sumar ár alveg af fannkomunni. Þjórsá varð svo lítil að enginn mundi hana slíka. Alhvítt varð svo að segja um allt land. Að morgni 17. maí 1931 mældist snjódýpt á Fagurhólsmýri 8 cm en snjór var þá líka í Vík í Mýrdal.
Mikla hríð gerði um miðjan maí 1945 á vestfjörðum og þ. 16. mældist snjódýptin á Suðureyri 90 cm.
Árið 1948 snjóaði mikið sums staðar á suðurlandi þ. 2. og mældist snjódýpt að morgni þ. 3. hvorki meira né minna en 65 cm á Stórhöfða í Vestmannaeyjum sem er einsdæmi. Árið eftir mældist snjódýpt þar reyndar 20 cm þ. 25. maí en um þær mundir var linnulaust hríðarveður á norðurlandi en náði þennan dag suður á land.
Í þeim óvenjulega hlýja maí 1961 brast þó á norðan hvassvirði með snjókomu um norðanvert landið þ. 23. en stytti til vestan til næsta dag en á norðausturlandi snjóaði fram á kvöld þ. 24. Var þetta slæmt hret ofan í það góðæri sem á undan var komið.
Árið 1966 var snjódýptin á Hornbjargsvita 100 cm í nokkrar vikur.
Oftar var snjór og kuldatíð á hafísárunum 1967-1971 en unnt er að rekja.
Um snjó og önnur veðursins ótíðindi í maí 1979 má lesa hér.
Fyrsta maí 1987 var snjódýpt in 17 cm í Reykjavík og er það mesta snjódýpt sem þar hefur mælst í maí. Hafði snjóaði í breytilegri átt á öllu suðvesturlandi um nóttina. Ekki tók upp þennan snjó samdægurs.
Í maí 1989 var snjór fádæma mikill á landinu. Á Nesjavöllum mældist mesta snjódýpt 140 cm og meðalsnjódýptin var sums staðar á landinu yfir 100 cm.
Árið eftir mældist svo mesta snjódýpt á landinu í maí, 204 cm þ. 1. á Gjögri á Ströndum.
Í maí 1995 var alhvítt í Kálfsárkoti í Ólafsfirði allan mánuðinn en þar er sérstaklega snjóþungt.
Af svo miklu er að taka af kuldum og snjó i maí á 19. öld að hér verða nokkrar glefsur að nægja:
Héldust frost og gróðurleysi. 20.-23. maí 1854 og mikil hríð og fannkynngi á útsveitum, segir Brandsannáll.
Um hvítasunnuna 1860, 27.-28. maí 1860 var mikið norðanveður og hörkufrost fyrir norðan.
Hinn 5. maí 1863 var ofsalegt dimmvirði á norðurlandi með 12-14 stiga frosti. Enn var rifhjarn á Mosfellsheiði þ. 13. og ekki sást í dökkan díl í byrjun júnímánaðar í Eyjafjallasveit.
Eitthvert mesta harðindaár nítjándu aldar var 1866. Nóttina milli 2. og 3. maí gerði þá gaddbyl af landnorðri í uppsveitum Árnessýslu og Rangárvallasýslu á auða jörð og var fénaður í haga og urðu miklir fjárskaðar. Nóttina milli 19. og 20. kom annað illvirði og varð þá fannfergi svo mikið að skaflar tóku víða í klyftir í Reykjavík og í Vík í Mýrdal varð svo mikil ófærð að sums staðar voru skaflar jafn háir húsunum. Rétt fyrir lok mánaðarins voru enn norðaustanveður í Reykjavík með 4-7 stiga frosti.
Stórhríð var nánast um allt land 29.-30. maí 1872 og linnti sums staðar ekki fyrr en í júní.
Á hinum kalda níunda áratug 19. aldar var oft ótíð í maí:
Svo dimm hríð var um allt norðurland þ. 24. 1882 að kunnugir menn villtust á alfaravegi og í Hrútafirði varð maður úti,.
Norðanhríðir með frostum hófust 5. maí 1883 og var verst í Þingeyjarsýslum út mánuðinn.
Árið 1886 var Hrútafjörður riðinn á lagnaðarís við Þóroddsstaði 20. maí.
Mikið hret kom á uppstigningardag 17. maí 1887 og stóð til 21. og varð mikið fjártjón.
Frá átjándu öld eru hér tvö fróðleg dæmi:
Hinn 9. maí 1725 var fjúkhríð mikil af norðaustan og féll þá snjóflóð á bæinn Vatnsenda í Héðinsfirði og dó bóndinn, kona hans og eitt barn þeirra, að sögn Brandsannáls.
Á hvítasunnu 16. maí 1728 gerði sums staðar kviðsnjóa, segir Hvammsannáll.
Heimildir: Nokkrir annálar.
Hér fyrir neðan eru Íslandskort frá verstu maídögunum að mínu áliti eftir 1949 og kort frá kuldunum miklu í háloftunum í maí 1982, en ekki ósvipaður kuldi var þar á köldustu dögunum 1949 og 1979.
Flokkur: Veðurfar | 26.5.2008 | 18:51 (breytt 30.10.2008 kl. 14:46) | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
hjá mér er gróður kominn mun lengra en venjulega á þessum tími.....svo nú bara má ekki koma hret
Hólmdís Hjartardóttir, 27.5.2008 kl. 10:49