17.6.2008 | 10:12
Óþokkar eru þetta!
Ísbjörninn fær ekki að vera í friði. Í morgun flaug flugvél lágflug yfir hann. Það kom styggð að honum. Samt er flug bannað þarna.
Þvílíkir óþokkar eru þetta!
Annars kemur fátt á óvart ef menn hafa lesið blogg manna um ísbjörninn. Björninn er vel vaktaður og auðvitað verður gripið í taumana ef hann fer að gerast hættulegur mönnum áður en svæfingameistarinn mætir á staðinn. Þrátt fyrir þetta má lesa mörg blogg þar sem menn vilja óðir og uppvægir drepa björninn - að því er virðist af drápfýsn einni saman - og hæðast að yfirvöldum og öðrum sem vilja freista þess að reyna að bjarga birninum. Kalla þá alls kyns lítilsvirðandi nöfnum.
Hvers konar hugarfar er þetta eiginlega?
Já, og svo var kominn tólf stiga hiti strax kl. 9 í morgun í Reykjavík í sól og norðanátt. Þetta ætlar að verða góður þjóðhátíðardagur - það er að segja ef hann kemst ekki á spjöld sögunnar fyrir það að þá var annar ísbjörn felldur á hálfum mánuði.
Ég er annars að hlusta á útvarpið frá serimóníunni á Austurvelli. Það voru lesin upp nöfnin á hverri silkihúfunni upp af annarri; forsetinn og frú, ráðherrar og frúr því auðvitað eru ráðherrar aldrei einhleypir og því um síður hommar eða lesbíur, borgarstjóri, biskupinn og ég veit ekki hver. Má ekki stilla þessu partýi fína fólksins í hóf og hafa með einhverja fulltrúa sauðsvarts almúgans? Er hann nú ekki þjóðin eftir allt saman?
Og vel að merkja: Hvers vegna í ósköpunum er ríki sem rekið er á veraldlegum forsendum að flagga æðsta yfirmanni trúflokks í fremstu röð? Hvern fjandann er biskupinn yfir Íslandi að gera þarna?
Dagskráin hófst náttúrlega á því að formaður "þjóðhátíðarnefndar" flutti ótrúlega flatt og lágkúrulegt ávarp sem líka var fullt af mærðarlegri þjóðrembu. Hann nefndi til dæmis Jón Sigurðsson og Ingólf Arnarson sem var nú bara billeg þjóðsaga fremur en landnámsmaður.
Síðan söng karlakór þjóðsönginn svo hörmulega að einum afdönkuðum tónlistargagnrýnanda rann kalt vatn milli skins og hörunds og er hann þó ýmsu vanur.
Well, forsætisráðherra er nú að flytja "hátíðarræðu" í þessum skrifuðu og þjóðhollu bloggorðum mínum og er þegar búinn að nefna tvisvar þennan Jón Sigurðsson sem þjóðin hefur aldrei þolað í raun og veru enda virðist hann hafa verið einhver leiðinlegasti Íslendingur allra tíma. Já, og nú fer hann að mæra Bjarna Benediktsson, dónann sem ruddist inn í einkalíf nokkurra Íslendinga til að hlera símana þeirra.
Mín tillaga er sú að þessi auma serímónía á Austurvelli á 17. júní verði þegar í stað lögð niður.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Til hamingju með daginn! Ég er líka að hugsa: hvar er víkingasveitin? Væri ekki ágætt fyrir hana að æfa sig í að skjóta niður flugvélarnar sem koma of nálægt ísbirninum -því hvað eru það annað en hryðjuverkamenn sem stjórna þeim?
María Kristjánsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:20
Já það er ótrúlegt, að Geir Haarde skuli nefna nafn Bjarna Benediktssonar í ræðu núna á þessum þjóðhátíðardegi. Honum rennur þó sennilega blóðið til skyldunnar og reynir með þessu að draga dulu yfir hlut Bjarna í augum fólks eftir að komst upp um hann liggjandi á hleri hjá nokkrum blásaklausum vinnufélögum sínum og ýmsum heiðvirðum og dagfarsprúðum alþýðumönnum eins og t.d undirrituðum. Þetta mun Geir þó ekki takast. Til þess liggur sú ástæða, að sök Bjarna í hlerunarmálunum er of augljós.
Verra er þó, að þrásköllun ríkisins gagnvart því að biðjast afsökunar á pólitískum hlerunum fyrri tíma verkar á fólk eins og þögult samþykki gagnvart slíku ofríki og viðurkenning á því að i einhverjum tilfellum séu slíkar innrásir í pólitískum tilgangi inn í einkalíf fólks bæði eðlilegar og nauðsynlegar.
Það leggst lítið fyrir kempurnar Geir og Ingibjörgu.
Baldur Pálsson (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 16:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.