28.6.2008 | 19:41
Í tilefni dagsins
Þar sem bloggið er vettvangur sjálfhverfunnar þar sem menn segja skoðun sína á öllum hlutum ætla ég að nota tækifærið og segja álit mitt á náttúruvernd skýrt og skorinort nú meðan Sigurrós og Björk eru að reyna að bjarga náttúrunni með tónleikum í norðangarranum í Laugardal.
Ég er algjörlega andvígur því virkjanaæði og þeim olíuhreinsunardraumum sem heltekið hefur suma. Ég vil á engan hátt hrófla við náttúrunni nema hvað ég vil endilega láta græða upp landið eins og hægt er. Mér svíður mjög hvað það er nakið og bert miðað við það sem það var í fornöld og gæti verið enn af náttúrufarslegum ástæðum. Ég geri mér samt engar grillur um það að Ísland sé "hreint og ósnortið". Það er einmitt afskaplega óhreint og snortið. Í þessu sambandi langar mig til að benda á grein í Lesbók Morgunblaðsins í dag "Ímyndin Ísland" eftir Önnu Björk Einarsdóttir sem færir m.a. rök að því að söguskoðun Bjarkar smellpassi við söguskoðun nýfrjálshyggjunnar og hina rómantísku söguskoðun sem kemur fram í skýrslu forsætisráðuneytisins sem sagnfræingar hafa mótmælt sem helberri firru.
Hvað hlýnun jarðar varðar finnst mér ég vera í einkennilegri stöðu. Ég hef haft brennandi áhuga fyrir veðurfari í yfir 40 ár og kynnt mér vel það sem vísindamenn segja um hlýnun hnattarins. En ég get ómögulega lesið út úr því allar þær ógnir sem fjölmiðlar, stjórnmálamenn og margir umhverfissinnar segja að séu yfirvofandi. En ég er alveg til í að viðurkenna að þrátt fyrir fjörtíu ára pælingar um loftslagsmál sé ég bara í afneitun og hvaða náttúrusinnaður listamaður, fjölmiðlamaður og umhverfissinni sem er viti miklu betur en ég í þessum efnum.
Vildi bara koma þessu auðmjúklega á framfæri.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ég vil líka græða. Landið.
Þessvegna er ég stundum dáltítið snefsinn út í rollurnar og hryssingslegur út í hrossin. Þótt ég tali annars alltaf vel um dýr. En laðast að lúpínu, ösp og elri. Og auðvitað björk.
K.S. (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 22:56
Ég ætlaði á þessa Náttúru tónleika með vinkonum mínum, en hætti við af því það er svo andskoti kalt úti á kvöldin núna. Já, og á nóttunni líka, enda hafa t.d. blöðin á begóníunni sem ég forræktaði úti á sólsvölum og setti svo í pottinum út í garð, verið náhvít vegna næturkulda á morgnana.
Þau hafa sem sagt kalið. Þetta er nú allur helvítis hitinn á þessu guðsvolaða landi.
Erla Ósk, Garðar og Rafn fóru á tónleikana og skemmta sér eflaust vel.
Ertu búinn að sjá nýjasta ömmubarnið mitt?
Svava frá Strandbergi , 28.6.2008 kl. 23:01
Mjá!
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 00:07
Í útlöndum eru skólar - góðir skólar.
Í útlöndum eru sjúkrahús - góð sjúkrahús.
Í útlöndum eru almenningssamgöngur - góðar almenningssamgöngur.
Í útlöndum er hægt að fara milli staða með járnbrautarlestum...
... bæði ofanjarðar og neðan.
Í útlöndum er mannvænt veður.
Í útlöndum er engin Samfylking og enginn er Sjálfstæðisflokkurinn.
Í útlöndum er engin íslensk króna.
Í útlöndum kostar Hunts-tómatsósa ekki helling .... bara vegna íslensks landbúnaðar...
Er ekki kominn tími til að gera það sem "þetta" fólk vill... leyfa náttúrunni að njóta sín..
Loka skerinu og flytja þetta fáa fólk sem hér býr á "náttúruvænni" stað .. stað þar sem "losun" og mengun er ekki með því mesta sem gerist í víðri veröld (það segir "umhverfisráðfrú") og leyfa svo náttúrinni að hafa sinn gang...
Ef við værum farin burt .. í þágu náttúrunnar ...
... þá hefði ekki t.d. ekki þurft að deyða ísbirnina um daginn....
... ekki að hafa áhyggur af vatnsleysi á Suðurlandi, taprekstri Droplaugarstaða ... og lokun Reykjavíkurflugvallar...
Hvernig stendur á því árið 2008 að "fólk" skilur ekki hvað þarf til að halda landi eins og þessu í byggð ... með þægindum nútímans ... öryggi ... skólum ... og atvinnu (og þá er átt við annað en svona "leikaradútl") ...
Er kjánaskapurinn alltaf allsráðandi hér ... er aldrei neitt annað en ökklinn eða eyrað á Íslandi?
Hér má aldrei gera þetta og aldrei hitt ... bara eitthvað annað...
... það veit bara enginn hvað þetta "eitthvað annað" er.... en það er víst voða gott ... og "náttúrulega" umhverfisvænt... hvað svo sem það nú er... !
Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 01:30
Hvaða Sigtryggur?
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 09:59
ég er sammála þér, en varðandi bráðnun og hlýnun og gróðurhúsaáhrif þá verð ég að kvarta einsog Guðný, því ég var að heyra það að norðurpóllinn verði íslaus í sumar því að þar bráðnar allt svo hratt, en samt bý ég nánast á norðupólnum og það hefur ekki komið einn einasti almennilegi hitadagur hérna í allt sumar! ok ég er ekki hrifin af of miklum hita og vil helst hafa vorveður allan ársins hring en fyrr má nú vera, ég er að hugsa um sólardýrkendurna hér fyrir austan sem treysta á að fá amk eina litla hitabylgju einsog þeir eru vanir... það er svívirðilegt að það sé verið að tala um hlýnun og bráðnun á norðurpólnum þegar íslendingum er kalt.
halkatla, 29.6.2008 kl. 11:20
Ég hef ekki fundið neitt fyrir þessari hnatthlýnun. Kannski teljumst við ekki með, svona sá og fá?
Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 11:36
Ég dreg ekki hlýnun jarðar í efa, ef einhver skyldi halda það og ekki heldur að hún kunni að einhverju leyti að vera af mannavöldum. En ég get ekki séð af því sem vísindamenn segja að afleiðingarnar verði eins óskaplegar eins og sumir aðrir vilja meina en reyndar líka sumir vísindamenn. Mér finnst það reyndar nokkuð dæmigert um umræðuna um gróðurhúsaáhrifin að það að grein í útlendu blaði, sem styðst við einstaka útreikninga vísindamanna í Colorado, skuli á íslenskum bloggsíðum vera talin sem óefuð vísbending um það sem muni verða, að því er virðist án nokkurs minnsta snerts af vafa. Þetta er mjög dæmigert um umræðuna. Einhver spá eða hugsanleiki kemur fra og hann er umsvifalaust gerður að óumdeilanlegri staðreynd og gegnur þannig ljósum logum um bloggheima. Það er heldur ekki verið að tala um það að allt norðurskautssvæðið verði íslaust heldur bara hugsanlega norðurpólinnin sjálfur og hvergi kemur fram hvað það á að vera stórt svæði. Ég hef annars ekki séð þetta í smáatriðum en finnst eins gott að anda rólega.
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 11:55
Já og Anna Karen: Haf langlundargerð! Það er hitabylgja á leiðinni en kannski nær hún sér ekki á strik fyrir austan. En bíddu samt bara. Þú býrð á einhverju hitabylgjuvænasta svæði á landinu og bráðum kemur betri tíð með blóm í haga. Það hefur svo hlýnað mikið á Íslandi síðustu sjö ár svo við teljumst sannarlega með.
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 12:00
Hvenær kemur hitabylgja? Þá ætla ég að skella mér í tjaldferðalag!
Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 12:11
Það er spáð hlýju veðri eftir miðja vikuna en kannski ekki beint "hitabylgju". En ef allt gengur eftir gæti komið 20 stiga hiti þar sem best verður. Það er samt ekki sama hvar þú ert. Farðu upp í góðsveitir en ekki útkjálka. Passaðu þig bara á að verða ekki úti ef spáin skyldi bregðast.
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 12:16
ég veit ekki einu sinni hvað orðið langlundargeð þýðir - en ég verð nú að segja að veðurspáin sem ég horfði á eftir fréttir í gær er ekki að rætast, það átti að koma rigning og rok í dag en ég get setið úti léttklædd með bók og það er bara sæmileg gola, en það getur að vísu allt gerst ennþá, stormurinn hefur klukkutíma til stefnu (ef spáin á að rætast) og það eru eilítið dökk ský í austri...
Kassandra veinar og vælir og það gæti verið fyrir einhverju rosalegu, í báðar áttir.
halkatla, 29.6.2008 kl. 14:02
Viltu endilega fá vont veður? Ertu ekki þakklát fyrir vondar spár en gott veður?
Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 14:53
ég var alls ekki að kvarta, en það er mikið rétt að þetta er skárra svona heldur en þegar öllu fögru er spáð og svo situr maður uppi með óveður.
halkatla, 29.6.2008 kl. 15:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.