Sólríkur júní í Reykjavík

Í gær skein sólin í Reykjavík í 17 klukkustundir og 24 mínútur. Þetta er ellefti dagurinn í röð sem sólskinsstundir í borginni eru fleiri en tíu. Það hefur aldrei gerst áður. En í afar köldum apríl árið 2000 voru slíkir dagar tíu í röð.

Sólskinsstundir mánaðarins voru í gær orðnar 282,6.  Þar með var mánuðurinn orðinn fimmti sólríkasti júní frá upphafi mælinga árið 1911 og þegar þessar línur eru skrifaðar er hann örugglega kominn upp í fjórða sæti því fjórði sólríkasti júní var með 286,6 klukkustundir árið 1952 sem var miklu kaldari en þessi.

Þessi mánuður hefur verið hlýr í Reykjavík. Meðalhitinn er nú 10,7 stig og er þetta með allra hlýjustu júnímánuðum sem af er. Hins vegar mun kólna nú síðustu þrjá dagana og mun meðalhitinn líklega falla um svona 0,2 stig. Eigi að síður mun þetta verða með hlýrri júnímánuðum á suður-og vesturlandi og í Vestmannaeyjum er alveg sérstaklega hlýtt. Menn hafa kvartað um kulda fyrir norðan en þar hefur hitinn þó líka verið vel yfir meðallagi, en heldur kaldara inn til landsins fyrir austan en tiltölulega hlýrra við sjóinn. Það er því engan veginn hægt að segja að þessi júní hafi verið kaldur fyrir norðan og austan. 

Það er reyndar mesta furða hve hlýtt hefur verið því kuldi í háloftunum hefur lengi verið viðloðandi landið, mesti kuldapollurinn verið rétt fyrir norðaustan land. Hvern dag hefur þó verið hlýrra en maður átti von á og undanfarið hafa kvöldin verið sérlega ljúf. Loftið hefur verið þurrt og þess vegna hafa næturfrost verið tíð í sveitunum þrátt fyrir tiltölulega háan dagshita. En nú er kuldinn að koma yfir landið af fullum krafti. Það verður þó vonandi ekki lengi. Í þeim spám sem ég hef séð er gert ráð fyrir því að kuldapollurinn eyðist að fullu fyrstu dagana í júlí og ekki nóg með það heldur muni þá koma þessi hlýja austanátt sem gerir allt brjálað þegar hún leggur leið sína hingað til lands. Hæð fyrir austan land og allt hvað þetta hefur!

Úrkoman í Reykjavík hefur aðeins verið 12 mm það sem af er (meðalúrkoma alls mánaðarins er 50 mm) og hefur fallið á aðeins fimm dögum og veitti nú ekki af því að fá dálitla rigningu áður en hitabylgjan kemur!

Mér finnst í seinni tíð fjölmiðlar hlaupa of mikið til og geri meira úr veðri en efni standa til. Það má ekki hvessa að vetri án þess að búist verði við hamförum. Fyrir skömmu var blásið út að von væri á hitameti í maí þó það væri fjarri lagi. Og nú er mikið gert úr þessu kuldakasti. Það er að vísu andstyggilegt að fá það svo seint í júní en oft hefur verið miklu kaldara í slíkum köstum. Í nótt fraus hvergi í byggð og hvergi var föl á jörð í morgun á veðurstöð.

Það er auðvitað alveg týpískt að einmitt þegar útitónleikar eru haldnir í Laugardal skuli vera komin köld og leiðinleg norðanátt eftir margra vikna blíðu!

Hér er svo loks kort af hafís á norðurslóðum mönnum til íhugunar og uppbyggingar.

Athugasemd: Þessa færslu tók ég niður og setti inn á nýjan leik til þess að hún yrði ofar færslunni um kulda og snjó í júní. Þá hafði Emil H. Valgeirsson sett inn eftirfarandi athugassemd:

Það er nefnilega það. Þá ætti þessi mánuður að ná þriðja sætinu af júní 1991 með 295 stundir og möguleki á 300 sólarstundum í fyrsta sinn frá 1928, hafi ég lesið gögnin rétt. En eitthvað sýnist mér hann þó vera að þykkna upp núna.

 is.27.6._2008

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta var gaman að lesa, takk! En geturðu nokkuð vinstrijafnað myndina svo hún sjáist betur?

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 00:06

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nei, myndin vill bara koma svona. Mér sýnist nú mikið þurfa að  bráðna næstu tvo eða þrjá mánuði.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband