Bók sem allir verða að lesa

Í gær keypti ég bók sem þannig er kynnt á bókarkápu:

Fourteen billion or so years ago, the Big Bang exploded - and it's been downhill from there. For every spectacular discovery throughout history, there have been hundreds of davastating epidemics; for every benevolent despot, a thousand like Vlad the Impaler; for every cup half -full, a larger cup half-empty. This enthralling, enlightening and devilishly entertaining chronicle of disasters and dastardly deeds brings to light the darkest events in histoy and the most abysmal calamities to strike the planet ... so far.

Ég vænti mér mikil af þessari bók enda heitir hún The Pessimist´s Guide to History. An irresistible compendium of catastrophes, barbarities, massacres and mayhem - from 14 billion years ago to 2007.

Ég er að vísu enginn sérstakur svartsýnismaður - aðeins raunsær. Einn kunningi minn hefur reyndar lýst mér þannig að ég sé svartsýnasti bjartsýnismaður sem hann hafi þekkt eða bjartsýnasti svartsýnismaður. Og ég held að mér verði ekki betur lýst. 

En lesið endilega þessa bók. Hún svíkur engan á fögrum og björtum júnídegi.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hljómar spennandi...    En ætli maður verði ekki bara dapur við lesturinn? Þú lætur kannski vita hvernig þér líður við og eftir lesturinn.

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.6.2008 kl. 11:36

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er allur að færast í auka! Nú fyrst tek ég gleði mína!  

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2008 kl. 11:40

3 identicon

Við erum andlega skyld. Ég býst alltaf við hinu versta en vona jafnframt það besta.

Þórdís (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 13:32

4 identicon

Mér finnst svartsýni, áhyggjur, depurð eða reiði vera mesta sóun á tíma og orku sem ég get hugsað mér.
Menn gætu hugsanlega talið að ég sé eitthvað öðruvísi svona miðað við bloggið mitt, það er mesti misskilningur því ég er í góðum fíling má segja nonstop.

DoctorE (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 14:01

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er líka nonstop í góðum fíling en er samt raunsæismaður. Ég veit að allt fer á versta veg en tek því alveg lauflétt. Að lokum aleimurinn verða alkul að bráð en ég slæ því bara upp í kæruleysi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2008 kl. 14:15

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Hér á kannski við hin mikla speki sem segir að hinn sanni svartsýnismaður þurfi ekki að kvíða framtíðinni því hann veit að allt mun fara á versta veg.

Emil Hannes Valgeirsson, 26.6.2008 kl. 15:03

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hehe... Emil góður! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.6.2008 kl. 15:21

8 identicon

Eftir að Jésú afsannaði dauðann, og þeir sem stóðu fyrir aftöku hans fylltust ótta, varð mikið "big bang" og kennimenn og Guðsafneitarar þeyttust um allar trissur í örvæntingafullri tilraun til að kjafta sannleikann í hel, og eyðileggja trúnað manna á skapara . Það verður sennilega ekki betur gert, en með svona big bang bókum !

conwoy (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 21:49

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Í sannleika sagt: Þessi bók er ekkert bull. Hún segir bara heiðarlega en stundum nokkuð kaldhæðnislega frá miklum náttúruhamförum, slysum, þjóðarmorðum, stórstyrjöldum og alvarlegum glæpum. Hún er ekki nein "big bang" bók með fyrirlitningartóni. Þetta kemur trúmálum nákvæmlega ekkert við. Tvisvar er Íslands getið: Skaftárelda og Heimaeyjargosins. Fráögnin mætti vera nákvæmari en hún er ekkert bullshit. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2008 kl. 22:00

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Í bókinni er t.d. sagt frá eldgosum og jarðskjálftum og fellibyljum fyrir mörgum öldum sem upplýsingar um liggja ekki alltaf á lausu. Hvað á annars svona trúardellurembingur að þýða á þessari síðu sem heldur atburðum náttúrunnar í heiðri?

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2008 kl. 22:03

11 identicon

já, örugglega alhyglisverð bók!! Svolítið "skerí" titillinn á henni

alva (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 00:51

12 Smámynd: Beturvitringur

Sá sem er bölsýnismaður fyrir fjörutíu og átta ára aldur veit of mikið. Sá sem er bjartsýnismaður eftir fjörutíu og átta ára aldur veit of lítið.   Mark Twain vissi oft best

Beturvitringur, 27.6.2008 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband