Víkverji um blogg

Víkverji á Morgunblaðinu segir þetta í dag um blogg og bloggara:

"Víkverji sér ansi oft vitnaði í blogg í fjölmiðlum. Hann getur ekki séð að menn hafi þar ýkja mikið fram að færa. Mest eru þetta skammir eða raus á fremur illa skrifaðri íslensku. Það er eitthvað sérlega dapurlegt við það að fólk sé farið að eyða mörgum tímum á dag í að kynna sér þessi ómerkilegu skrif. Fólk ætti að taka sér góða bók í hönd eða horfa á fugla himinsins, fremur að eyða þeim í leit að vitleysislegum og síst mannbætandi skrifum á netinu."

Alveg er ég hjartanlega sammála Víkverja en bendi á með fágætri auðmýkt og lítillæti að það er svo sem hægt að rausa og skammast líka á hinn vitleysislegasta hátt í blöðunum á óprenthæfri íslensku og það jafnvel nafnlaust eins og huglausustu og ómerkilegustu bloggararnir. 

Það sannaar grein Víkverja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Já, þetta var náttúrulega mjög vel ígrundaður og málefnalegur pistill hjá Víkverja dagsins - og frábærlega vel skrifaður og stílbragðið með eindæmum skemmtilegt.

Ég vona að við fáum fleiri slíka í framtíðinni.

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 16:14

2 identicon

Sælir

Ég er mikið uppá samsæriskenningar og þess vegna dettur mér í hug hvort það sé eitthvað samhengi milli þess að uppúr því að hart er herjað á Sjálfstæðismenn á bloggsíðum fyrir meinta spillingu að þá komist Víkverji að því um bloggskrifin að "mest eru þetta skammir eða raus á fremur illa skrifaðri íslensku.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 17:03

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Það er tímaeyðsla að lesa hinn nafnlausa Víkverja. Enn meiri tímaeyðsla að lesa nafnlausa Staksteinana. Og fólk sem hangir á Z-unni eins og um sjálfstæði landsins sé að ræða er ekki sérfræðingar um gott íslenskt mál.

Friðrik Þór Guðmundsson, 29.6.2008 kl. 18:12

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og nú ætla ég að fara að horfa á leikinn. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 18:41

5 Smámynd: B Ewing

Mikið er ég hjartanlega sammála ykkur Víkverja.

 Hins vegar verð ég (enn eina ferðina) útskýra og taka upp hanskann fyrir okkur nafnlausu bloggarana.  Ég held að fæst okkar séu hugleysingjar í leit að einhverju/m til að níðast á.  Hvað sjálfan mig varðar þá er ég mikið þekktari undir netheimanafninu mínu heldur en raunheimanafninu.  Þetta væri svona svipað og ef ég færi upp úr þurru að kalla þig Tóta en þú kysir að vera kallaður Sigurður Þór og ekkert annað.  Enginn myndi þekkja þig ef ég myndi bara spyrja um Tóta þegar ég væri að reyna að ná í þig í síma.

Af hverju "nafnleysi" ?

Ég hef hvorki tíma né nennu til að útskýra raunheimanafn mitt fyrir útlendingum (því þeir hafa jú líka þetta "internet" sem okkur finnst svo gaman að) þannig að ég einfaldlega vel mér nafn sem fólk allstaðar í heiminum getur stafsett og lesið skammlaust.  Séu útlendingarnir, eða aðrir sem ég spjalla við, forvitnir þá er lítið mál að upplýsa það (og þá fyrst eyða tíma í útskýringar á -son og -dóttir nafnahefðinni hér á landi) , auk þess er það í höfundarhlekknum mínum.

p.s. sér enginn nema ég mótsögnina í því að skrifa stuðningsyfirlýsingu við blaðagrein um lélega bloggara í bloggi ?

B Ewing, 29.6.2008 kl. 23:01

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er ekkert á móti nafnlausu bloggi og er bara að stríða Víkverja.

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.6.2008 kl. 23:32

7 Smámynd: Sigurjón

Bara til að það sé á hreinu, eru Staksteinar ekki nafnlausir.  Þeir eru skrifaðir af ritstjórn Moggans.  Þetta las ég alla vega í Staksteinum...

Sigurjón, 30.6.2008 kl. 05:26

8 Smámynd: Rebekka

Jájá,  förum bara öll að horfa upp í loftið á bíbí, með góða bók í hönd...

Getur maður ekki bara gert bæði,  lesið góðar bækur og bloggað?  Ég hef nú ekki mikinn áhuga á fuglum himinsins, en internetið er þeim mun skemmtilegra.

Rebekka, 30.6.2008 kl. 09:43

9 Smámynd: Kreppumaður

50 metrar hérna undir Vatnajökli í dag í verstu hviðunum!  Kannski ég snúi mér ekki bara að því að blogga um veðrið, ég hef hvort eð er aldrei neitt merkilegt að segja!

Kreppumaður, 2.7.2008 kl. 05:12

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha Sigurður, skemmtilega háðskur tónn í þessuhjá þér, sömuleiðis skemmtileg viðbrögð margra hérna.

Og get alveg sagt það, að þið Einar Sveinbjörns og Ómar Ragnars stundum, eruð ekki beinlínis leiðinlegustu né vitlausustu bloggararnir og hvað þá ílla skrifandi!

Magnús Geir Guðmundsson, 2.7.2008 kl. 16:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband