7.7.2008 | 19:05
Kælandi áhrif sjávarins
Í dag var loftið í háloftunum yfir landinu hlýrra en það hefur verið áður í sumar. Því miður ná þessi hlýindi sér óvíða á strik vegna þoku og skýja sem koma frá hafinu. Á svæðinu kringum Þingvelli, Borgarfjörð og sunnanverðu Snæfellsnesi, ásamt hálendinu milli Hofsjökuls og Vatnajökuls hafa hlýindin skilað sér. Á Þingvöllum og Hvanneyri fór hitinn í 24 stig, 22 í Stafholtsey í Borgarfirði, 21 á Mýrunum og í Húsafelli og 20 á Bláfeldi á suður Snæfellsnesi. Og 22 stig voru svo í Veiðivatnahrauni og 20 á Setri fyrir sunnan Hofsjökul.
Í Reykjavík komst hitinn í 15 stig sem er auðvitað ekkert til að hrópa húrra fyrir. Hins vegar var sami hiti á Skálafelli í yfir 700 metra hæð og í Bláfjöllum komst hitinn í 18 stig og 19 á Hellisheiði. Sýnir þetta vel kælandi áhrif sjávarins.
Þetta hægviðri er reyndar alveg vonlaust fyrir höfuðborgarbúa. Ekki er von um neitt skárra nema hreyfi vind af hagstæðri átt.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Mér er spurn og þó fyrr hefði verið: Afhverju gerir aldrei neinn efnislegar athugasemdir við veðurfærslur mínar þó menn kommenti eins algjörir besservisserar á allar aðrar færslur á þessari bloggsíðu?
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 21:54
Það gera sér allir grein fyrir að þú veist betur um veðrið - ég að minnsta kosti - og Emil er í Barcelóna.
Ég var útivið í dag þegar þokunni létti loksins og mikið lifandis skelfing var það gott... ylurinn var yndislegur. Mér finnst 15 stig í sól í Reykjavík bara mjög fínt, ekkert hægt að kvarta yfir því.
Býst við að þú sért búinn að sjá þokufærslu Einars Sv. Hún var athyglisverð.
Lára Hanna Einarsdóttir, 7.7.2008 kl. 21:57
Hugur minn er nú mjög í þoku. En gaman var að sjá fyrsta besservisserann birtast!
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 22:12
Sólskin, logn, fimmtán stiga hiti og minnkandi mengun vegna hækkandi bensínverðs.
Gæti ekki betra verið.
Þorsteinn Briem, 7.7.2008 kl. 23:02
Ertu búinn að breyta mér úr hysterískum aðdáanda í besservisser? Varla get ég verið hvort tveggja, það fer svo illa saman!
Lára Hanna Einarsdóttir, 7.7.2008 kl. 23:04
Mér finnst nú bara gott að búa út við sjóinn, það verður frekar sjaldan of heitt fyrir mig hérna. En það hefur samt komið fyrir, ég fjárfesti í borðviftu sem bjargar mér á heitustu dögunum.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.7.2008 kl. 03:00
hreppurinn minn kemst ekki einu sinni á blað!
halkatla, 10.7.2008 kl. 01:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.