3.9.2008 | 09:09
Ár liðið
Já, í dag er ár liðið frá því ég eignaðist engan annan en hann Mala. Þá var hann þriggja mánaða. Helga systir og Eva dóttir hennar komu með hann í búri ásamt systur hans. Ætlunin var þröngva öðrum hvorum kettinum upp á mig. Ég valdi Mala sem þá hét að vísu ekki Mali. Miklar umræður fóru fram á blogginu um það hvað hann ætti að heita og margar snjallar uppástungur komu fram. En nafnið kom af sjálfu sér eftir nokkra daga. Ég hef aldrei vitað kött sem malar eins oft og eins hátt og hann Mala. Hann var því auðvitað skírður Mali og ber nafn með réttu.
Það eru aldeilis tímamót að hann Mali sé búinn að vera hjá mér í heilt ár.
Ég hef ekki orðið samur maður og hann ekki samur köttur.
Ég er allur rifinn og tættur en hann er með brotna rófu eftir að hann datt ofan af svölunum á fjórðu hæð eins og heimsfrægt varð á blogginu og þó víðar væri leitað. Allir urðu rosalega sjokkeraðir! En skottið hans Mala hefur alveg jafnað sig og er lengra og listrænna en nokkru sinni fyrr.
En ég mun hins vegar aldrei bíða þess bætur hvernig hann hefur bitið mig og klórað alltaf hreint.
Mali er orðinn eins konar lógó þessarar bloggsíðu. Án hans læsi hana ekki nokkur kjaftur nema þessir tveir sem skoða veðurfærslurnar og svo er Zoa sú þriðja sem fær alltaf hláturskast þegar hún skrollar niður þær síður.
Án Mala væri nú lítið mal í tilverunni.
Meginflokkur: Mali | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 17:19 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
prrrrrrr! Til hamingju með kattarárið.
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 3.9.2008 kl. 09:24
Til hamingju með árið með Mala...já og allt klórið og malið
Didda, 3.9.2008 kl. 10:22
Áttu ekki nóg af sótthreinsispritti og plástrum?
Lára Hanna Einarsdóttir, 3.9.2008 kl. 10:50
Til hamingju með köttinn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.9.2008 kl. 10:59
"Nú árið er liðið í aldanna skaut..."
Beturvitringur, 3.9.2008 kl. 11:45
Mjá
Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.9.2008 kl. 13:12
Ég er sammála - lífið hjá manni hefur ekki orðið samt eftir að litlu katteskjurnar komu inn í það. Eitt af því sem gefur lífinu gildi. Á mínu heimili höldum við litla kisulóran ekki vatni yfir Átrúnaðargoðinu okkar, honum Mala.
Malína (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 14:21
Til hamingju með bévítans óargardýrið.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.9.2008 kl. 14:56
Til hamingju með að hafa átt sæta köttinn þinn í heilt ár. Bit og klór er bara þroskandi.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 3.9.2008 kl. 19:50
Já, allt nema yfirklór.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.9.2008 kl. 19:51
Var að skoða myndina betur. Ég sé ekki betur en að hinn kettlingurinn sé ansi líkur henni Kötlu hvolpastelpu... svona í litfræðilegum skilningi.
Á morgun eru tveir mánuðir síðan ég fékk Kötlu...
Lára Hanna Einarsdóttir, 3.9.2008 kl. 20:06
Já, vel á minnst - hvað varð um systur hans Mala? Ég vorkenni henni mikið að hafa ekki orðið fyrir valinu (snökt ). Kisan mín er einmitt afgangskettlingur úr stóra systkinahópnum sem enginn vildi eiga - öll systkinin úr hópnum voru valin framyfir hana...
Malína (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 21:22
Gaman að lesa um Mala og tilkomu hans. Því miður er erfitt að kenna gömlum ketti að hætta að klóra og bíta, það hefðirðu þurft að taka föstum tökum strax og þú fékkst hann. Hvæsa geðillskulega á hann í hvert skipti sem hann byrjar að sýna slíka takta.
Og meðan ég man -- og á við blogg þitt hér á undan: Stardalur er á Kjalarnesi (norðurbæ Reykjavíkur) en ekki í Mosfellssveit og hefur aldrei verið.
Góð kveðja
Sigurður Hreiðar, 3.9.2008 kl. 21:28
Takk fyrir þessa ábendingu um Stardal Sigurður! Ég er nú bara að grínast með bitin og klórin hana Mala,. Hann er frábær og góður köttur. Systir hans er margra barna móðir. Hún býr á Bifröst.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.9.2008 kl. 21:37
Til lukku með árið ykkar saman.
Marta Gunnarsdóttir, 4.9.2008 kl. 00:16
Til hamingju með Malaárið.
Svava frá Strandbergi , 4.9.2008 kl. 00:22
þau eru bæði svo undurfögur, en þeirra biðu vitaskuld ólík örlög
halkatla, 4.9.2008 kl. 00:35
Heill og sæll; Sigurður, og aðrir skrifarar !
Til hamingju; með þennan árs áfanga, ykkar fóstra. Megið þið, lengi enn, njóta samfélags hvors annars.
Með beztu kveðjum, sem fyrr /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 00:37
(Ó-nei! )
halkatla, 4.9.2008 kl. 00:41
Það liggur við að mig langi til að skrifa athugasemdina aftur! Ég verð að hætta að skrifa orð sem byrja á þ. Nimbus má vinsamlegast eyða þessum athugasemdum eða ekki... nema þeirri fyrstu
halkatla, 4.9.2008 kl. 00:44
Mundu bara Sigurður minn, að börn og dýr vilja aga!!!
Edda (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 01:24
Mali var alinn upp í strangkristilegum aga þó hann vildi hann alls ekki. Dagurinn byrjar með stífum morgunbænum, þá eru iðrunarbænir, þá matsmálsbænir, síðdegisbiblíusögur, kvöldbænir, iðrunarbænir hinar meiri eftir syndir og lögmálsbrot dagsins og loks er spanksreyrsstrangleika bænir með tilheyrandi verklegum upplifunum fyrir svefninn. Eftir þessum gegnumheila kristilega skikk er Mali orðinn bljúgur köttur og frómur og bítur aldrei nema drottni til dýrðar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2008 kl. 07:09
Til hamingju með árið ykkar saman!!
alva (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 13:33
Nú grenja ég af hlátri hreint og beint
z (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 17:04
Ég sé að ég þarf að mjálma aðeins í eyrað á honum Mala áður en þú rústar honum með kristilegri iðrun.
Kristileg iðrun er nefnilega svona þykjustu plat iðrun sem kristnir nota til þess að komast til gudda.... ómögulegt að kisulingurinn falli vegna þessa sko.
DoctorE (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 14:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.