Mesta frost sem mælst hefur á Íslandi í september eru hrollvekjandi -19,6 stig sem komu á Möðrudal á Fjöllum þ. 27. 1954. Gríðarlegt kuldakast gekk þá yfir landið með einhverju kaldasta lofti í háloftunum sem vitað er um í september. Kuldamet mánaðarins voru all-víða slegin svo sem í Borgarfirði, -10,2 stig í Síðumúla, Dölunum, í Strandahreppi, Hrútafirði, Blönduósi, Skagafirði, Akureyri, Húsavík, Hallormsstað, Stórhöfða í Vestmannaeyjum, Hæli í Hreppum og Þingvöllum. Síðustu sex daga mánaðarins var meðalhitinn undir frostmarki hvern dag á flestum veðurstöðvum. Víða festi snjó í þessu kuldakasti, t.d. í Reykjavík en þar var skódjúpur snjór að morgni þ. 26.
Árið 1943 mældist frostið -16,1 stig þ. 26. í Reykjahlíð við Mývatn og hefur aldrei mælst þar eins mikið frost í september. Mánaðarmet voru einnig sett á Úthéraði, á einni stöð á Vestfjörðum og í Hornafirði. Víða varð alhvítt í þessu kasti, sem stóð í nokkra daga með snjókomu nyrðra og hvassviðri um land alt og sums staðar festi einnig snjó á suðurlandi, t.d. á Eyrarbakka og í Fljótshlíð.
Á Möðrudal komst frostið í -15,0 í þeim afar kalda september 1918. Þá mældist mesta frost sem komið hefur í Reykjavík, -4,6 stig þ. 29.
Miklir kuldar voru á norðausturlandi í september 1975, allt niður í 13,3 stig þ. 30. á Vöglum og 13,1 á Grímsstöðum sem er septembermet þar.
Í september 1995, mældust -13,2 stig í Möðrudal þ. 29.
Þetta eru mestu einstöku frostin á Íslandi í september.
Enginn september hefur verið alveg frostlaus á landinu frá því mælingar hófust á fleiri en einni stöð. Árið 1881 hefur hæsta landslágmark, -0,1 stig. Þess ber að gæta að mælt var þá á mjög fáum stöðvum en í það minnsta er víst að ekki var alveg frostlaust á landinu þó líklega hafi enn meira frost orðið einhvers staðar, en frostlaust var reyndar á Grímsstöðum á Fjöllum og þetta var mjög hlýr september.
Meðaltal snjólagsprósentu á veðurstöðvum 1924-2002 er 2% en í ágúst nær hún ekki upp fyrir núllið að meðaltali þó snjó hafi fest í einstaka tilfellum með margra ára millibili. Snjóþyngsti september var 1954 með 13 % snjóhulu. Næstir honum koma september 1924, 11%, 1943, 10% en svo eru 1963, 1974 og 1979 allir með 8% snjóhulu. Snjór í september er auðvitað algengastur á stöðum sem liggja hátt yfir sjávarmáli, en á láglendi má helst búast við snjó á Vestfjörðum, inni í dölum í Skagafirði, á útskögum fyrir norðan og austan, en sjaldnar festir snjó á suður- og vesturlandi þó það gerist stundum og enginn staður á landinu er alveg óhultur fyrir snjó í september.
Dæmi eru um það að hvergi sé getið um að snjó nái að festa í september á veðurstöðvum sem hafa að vísu verið mjög mismunandi margar gegnum árin. Frá og með 1924 til 2007 hefur enginn snjór verið talin á veðurstöðvum í byggð árin 1925, 1928, 1930, 1933, 1938, 1939, 1941, 1953, 1957-1961, 1966, 1973, 1976, 1986, 1993, 1996, 1998, 2001, 2002.
Fyrsta dagsetning á alhvítri jörð að morgni í Reykjavík er 9. september 1926 en snjódýptin var aðeins 0,2 cm. Þessi snjór kom í suðvestanátt og var snjórinn aðallega vestanlands og á Vestfjörðum. Frá 1924 hefur verið alhvít jörð í september í Reykjavík árin 1924, tvo daga, snjódýpt 1 cm þ. 28. og 29., (flekkótt einn dag 1929), (flekkótt tvo daga 1943), 1954, einn dag, snjódýpt 6 cm þ. 26. (og flekkótt einn annan dag), 1969, einn dag, þá mældist mesta snjódýptin í Reykjavík, (flekkótt einn dag 1979), (flekkótt einn dag 2000).
Mesta snjódýpt sem mælst hefur á landinu er 55 cm sem mældist á Sandhaugum í Bárðardal þ. 24. 1975. Mesta snjódýpt í Reykjavík er 8 cm þ. 30. 1969.
Mjög sjaldan verður jörð alhvít á suðurlandi, frá Hornafirði til Reykjavíkur. Eftir Veðráttunni að dæma hefur það gerst í þessum tilvikum. Á Kirkjubæjarklaustri 1940 þ. 11, Á Hólum í Hornafirði þ. 29. 1947 og Þingvöllum 1963 og Hólmi við Reykjavík. Og heldur betur árið 1969!
Álíka kalt loft flæddi yfir landið í lok september það ár og kom 1954. Mánuðurinn var allur kaldur en tók steininn úr síðustu tvo dagana. Þá kom eftirminnilegt snjóakast síðustu tvo dagana ofan í kaldan mánuð þar sem jörð hafði þegar orðið alhvít á stöku stað á suðurlandi. Þá var alhvítt mest fjóra daga þar, í Vegatungu, en víðast hvar þó aðeins í 1-2 daga, allt frá Hornafirði upp á Snæfellsnes en þó ekki í Borgarfirði.
Þann 28. var hæg norðanátt og kuldi með éljum norðanlands. Daginn eftir var komin austanátt en grunn lægð þokaðist þá austur með suðurströndinni. Henni fylgdi snjókoma og sums staðar þrumuveðrur. Um nóttina, þegar lægðin var komin suðaustur fyrir landið, kom aftur norðaustanátt og birti til syðra, en fór að snjóa norðanlands og austan. Síðasta dag mánaðarins var því mjög víða alhvít jörð og mikill kuldi. Meðalhiti tvo síðustu sólarhringana var á flestum stöðum undir frostmarki, þar með talið í Reykjavík, -0,1 og -1-0 stig. Eru það einu septemberdagarnir frá og með 1935 a.m.k. þar sem meðalhiti hefur verið undir frostmarki þar ásamt 23. september 1974, -0,2 stig, en það er fyrsta dagsetning að hausti sem sólarhringsmeðaltal í höfuðborginni er undir frostmarki. En þá var enginn snjór. Miklir kuldar fylgdu snjónum 1969, þó ekki mettölur, en hins vegar komst hitinn víða varla upp fyrir frostmarkið um hádaginn, jafnvel þó sólin skini, en snjór var yfir öllu.
Eftir 1969 hefur orðið alhvítt einhvers staðar á suðurland (langt oftast aðeins á einni stöð) 1974, 1979, 1988, 1990, 1994, nokkrum stöðvum frá Kvískerjum í Öræfum til Fljótshlíðar 1995, 1997, 1999, Kirkjubæjarklaustri, Snæbýli, Hæli í Hreppum og Lækjarbakka 2005. Í fyrra festi snjó á suðurlandi með allra fyrsta móti, 15. og 16. Seinni daginn var snjódýptin 3 cm á Kvískerjum, 5 á Kirkjubæjarklaustri og 2 cm á Hæli í Hreppum, en 10 cm á Snæbýli við Skaftártungu.
Hér fyrir neðan sést á kortum sýnishorn af kuldanum 1954 og tvo síðustu dagana í september 1969 og fyrsta deginum að hausti í Reykjavík sem meðalhitinn hefur verið undir frostmarki.
Flokkur: Veðurfar | 5.10.2008 | 14:32 (breytt 30.10.2008 kl. 13:35) | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006