30.11.2008 | 12:54
Biskupinn hungrar ekki eftir réttlæti.
Í dag byrjaði aðventan. Ég hlustaði á prédikun biskupsins sem útvarpað var frá Hallgrímskirkju.
Hann sagði eitthvað á þá leið að okkur hungraði eftir kærleika og umhyggju. Hins vegar sagði hann ekki eitt einasta orð um það að nú hungrar íslensku þjóðina fyrst og fremst eftir réttlæti.
Enn þá eru sömu öfl við völd í stjórnmálum og í bönkunum og komu þjóðinni á vonarvöl.
Í þessari athöfn, sem biskupinn bar ábyrgð á, var beðið binlínis fyrir þessum öflum. Alveg beinlínis. Með þeim gjörningi er biskupinn að ofbjóða þjóðinni. Það hefðu verið sterk skilaboð ef hann hefði sleppt þeirri venju að biðja fyrir yfirvöldum.
Biskupinn hafði tækifæri til að tala máli réttlætisins fyrir almenning gagnvart stjórnvöldum. Hann brást og reyndist vera huglaust þý yfirvalda. Þannig er hann auðvitað að taka skýra afstöðu með stjórnvöldum gegn þjóðinni.
Gegn þeim þúsundum sem mótmæla á torgunum um hverja helgi þrátt fyrir það að veturinn hafi tekið völdin.
Það er skömm að prédikun biskupsins. Og framferði hans er andstyggð í augum guðs og allra gróðra manna.
Meginflokkur: Guð sé oss næstur | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 17:12 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Þetta er ósköp einfalt, biskupinn er þessa dagana að leggja drög að nýjum Þjóðkirkjulögum. Markmiðið er að nýta sér ástandið og óvissuna til að tryggja hagsmuni kirkjunnar til frambúðar (eftir að BB hættir).
http://www.kirkjan.is/stjornsysla
Þú passar þig á að styggja ekki yfirvöld meðan þau eru á fullu við að gæta sérhagsmuna þinna.
Úr umræðum um drög að frumvarpinu:
Matthías Ásgeirsson, 30.11.2008 kl. 13:29
Hann er jú á ofurlaunum hjá ríkinu og undir pilsfaldi ráðherra!!!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 30.11.2008 kl. 13:32
Sæll kæri Sigurður.
Ef ekki er nauðsyn á að biðja fyrir ráðamönnum á tímum sem þeim sem við lifum nú, þá er sennilega aldrei ástæða til. Ekki veitir af að biðja þeim blessunar í þeim mikilvægu störfum sem þeir sinna. Sömuleiðis að biðja Guð að veita þeim visku og náð svo að þeir geti tekið réttar ákvarðanir í erfiðum og jafnframt umdeildum málum.
Byskupinn yfir Islandi, hr. Karl Sigurbjarnarson dr. theol. h.c., kann að hafa talað á þann veg að ekki liggi alveg ljóst fyrir hver merking væri, en er ekki réttlæti fram komið þegar kærleiki og umhyggja umljúka þjóðfélagið eins og hann mun hafa kallað eftir? Að kalla hann huglaust þý er beinlínis þvert á þekkt störf hans og orð um tíðina. Hann hefur einmitt ekki verið neinn veifiskati og er kannski besta dæmið þess staðfesta hans um orð Guðs um hjónaband karls og konu. Svona uppnefningar eru þér ekki til neinnar sæmdar kæri SIgurður Þór.
Yfirlýsingar eins og þá um hverjir komu okkur á vonarvöl eru sennilega best geymdar þar til rannsóknarnefnd sú sem er í burðarliðnum á Alþingi sem og embætti sérstaks saksóknara með víðtækar rannsóknarheimildir umfram aðra slíka, hafa lokið störfum sínum og komist að því hverjir raunverulega bera þessa ábyrgð. Þá skulum við taka höndum saman minn kæri og sjá til þess að þeir verði látnir sæta ábyrgð sem í ljós kemur við þessa rannsóknarvinnu að hafa átt sök í málinu.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 30.11.2008 kl. 14:22
Hér ferðu örugglega offari, Sigurður. Það er afar gott, að biskupinn leggi áherzlu á nauðsyn kærleika og umhyggju, og predikun hans hefur örugglega mótazt mest af þessum tíma kirkjuársins, upphafi aðventunnar og ritningartextum dagsins. Þegar þú segir: "Í þessari athöfn, sem biskupinn bar ábyrgð á, var beðið beinlínis fyrir þessum öflum," í beinu framhaldi af orðum þínum um stjórnvöld og yfirmenn bankanna, þá er það örugglega rangur skilningur lesanda þíns, að biskupinn hafi sérstaklega verið að biðja fyrir fjárglæframönnum og útrásarvíkingum. En í sérhverri messu er beðið fyrir yfirvöldum landsins, að biblíulegri fyrirmynd, og finnst þér nokkuð veita af því, kunningi?
Jón Valur Jensson, 30.11.2008 kl. 14:45
Það er svo skrítið með þjóðina að hafa hungrar ekki eftir réttlæti gagnvart þeim sem stálu.
Einar Þór Strand, 30.11.2008 kl. 16:12
Hvaðahvaða, við biðjum einmitt fyrir þeim sem eiga undir högg að sækja eða hafa villst af réttri leið, hafi maður á annað borð trú á bænum. Núna er alveg sérstaklega brýnt að biðja fyrir forseta vorum og ríkisstjórn og Alþingi landsins. Að ósekju mætti bæta við skilanefndum og auðmönnum, skuldurum, lánadrottnum, fjölmiðlum og síðast en ekki síst: Íslensku krónunni.
Svavar Alfreð Jónsson, 30.11.2008 kl. 22:34
Ég get nú ekki annað en tekið undir þetta. Biskup hefði átt að biðja bara fyrir íslensku þjóðinni og sleppa því að nefna yfirvöld.
Spurning hvort sá í neðra hafi haft um þau einhver orð nýverið...
Lára Hanna Einarsdóttir, 30.11.2008 kl. 23:18
Það mætti líka biðja fyrir Prédikaranum Svavar Alfreð. Hann segir: " Svona uppnefningar eru þér ekki til neinnar sæmdar kæri Sigurður Þór". Svona segja menn, að eitthvað sé ekki til sæmdar fyrir einhvern,m þegar þeir eru að reyna að koma því að hjá fólki hve viðkomandi sé fyrirlitlegur og bæta þá gjarna við "kæri" eða eitthvað álíka. Ég hef gaman af því að vera stóryrtur með mínu lagi stundum. Biskupinn hefur líka verið það með sínu lagi um hitt og þetta, t.d. trúleysingja. En ég er ekki rætinn eins og Prédikarinn sem leynist undir dulnefni eins og aumingi. Ég ætti kannski að tka upp þá reglu míns ágæta bloggvinar JVJ, sem stundum fer nú offari eins og margir meiningarmiklir menn, að loka á nafnleysingja. En ætli ég láti ekki Prédikararæfilinn lafa inni úr því hann þorir ekki að koma til dyranna eins og hann er kæddur heldur felur sig í sínu fullkomlega húmorslausa dularverfi. Svo held ég að Matthías hafi hitt naglann á höfuðið.
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.12.2008 kl. 01:10
Þú ert of harður – umfram efni – við Predikarann, Sigurður. Eftir samhengi hans eru orð hans skiljanleg og eru naumast til þess að koma því inn hjá neinum, að þú sért fyrirlitlegur. En þetta sagðírðu um biskupinn:
Þetta kallaði ég, að þú færir offari, en Predikarinn kallaði það "uppnefningar [sem væ]ru þér ekki til neinnar sæmdar." – Það minnir mig á hugtakið "að missa marks" ... sem aftur minnir reyndar á gríska hugtakið hamartanó. Og spáðu nú.
Jón Valur Jensson, 1.12.2008 kl. 01:58
Ég er harður við Prédikarann af því að hann er nafnlaus. Ég er harður við biskupinn af því að hann er að forminu til andlegur leiðtogi sem hefur þúsund tækifæri til að koma skoðun sinni á framfæri og er varinn í bak og fyrir af heilli stonfunn og her manns, eins og t.d. þín og mér finnst hann hafa brugðist og vera í raun þægur ljár í þúfu fyrir yfirvöld. Er eitthvað betra að segja það svona linlega heldur en með þeim orðum ég notaði? Meining mín um þetta atriði, auðsveipni við yfirvöld, kemur skýrt fram. Viðbótin um hvernig þetta lítur út í augum guðs er auðvitað áhersluatriði, retórík, hvað ég hefði haldið að þú myndir gera þér ljóst. Harðlega nokkuð að orði kveðið hjá mér um eitthvað sem mér finnst ekki rétt af honum, sem sagt rangt, ekki þakkarvert. Og ég er viss um að þér og Prédikaranum fyndist þetta allt í lagi ef það væri ekki biskupinn, það er einhver sem er ykkur þóknanlegur, jafn orðhvatir og þið nú oft eruð. Spáðu í það! Ég get svo svarið það að mér - og fleirum - finnst biskupinn auðsveipur yfirvöldum. Má þá ekki kalla hann þý? Hvers konar viðkvæmni er þetta?
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.12.2008 kl. 02:24
Ég nenni ekki að deila frekar við þig um þetta, Sigurður. Þú kallar biskupinn "auðsveipan yfirvöldum", "þægan ljár í þúfu fyrir yfirvöld" og "huglaust þý yfirvalda", það er þitt sjónarmið, ÓSANNAÐ að vísu, en mitt sjónarmið er allt annað. Látum þar við sitja. – Kveð þig með góðum óskum, en gleymum aldrei þessum lestexta: Mt. 12.36–37.
Jón Valur Jensson, 2.12.2008 kl. 03:12
Sæll kæri Sigurður.
Ég var ekkert að reyna að koma því að undir rós að þú værir fyrirlitlegur, enda ekki álitinn slíkur af þeim sem hér ritar svo það sé á hreinu. Heldur var ég að reyna að benda á að málflutningur sem þessi, eins og Jón Valur benti einnig á, væri þér ekki til neinnar sæmdar eða virðingarauka. Yfirlýsingar þessar eru eins og Jón Valur bendir reyndar á ÓSANNAÐAR. Fremur er þær öfugmæli ef eitthvað er samanber dæmi þar um sem ég tiltók.
Hinn kæri ritvallarvinur minn, Jón Valur, hafi þökk fyrir stuðning við skrif mín hér. Ég tek undir með honum að við skyldum aldrei gleyma lestextanum sem hann vitnar í og er að finna í guðspjalli Mattheusar :
"En ég segi yður: Hvert ónytjuorð, sem menn mæla, munu þeir verða að svara fyrir á dómsdegi.
Því af orðum þínum muntu sýknaður, og af orðum þínum muntu sakfelldur verða."
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.12.2008 kl. 03:29
Ég nenni þessi heldur ekki lengur. En Mt. 12.36-37. hljóðar svo" En ég segi yður: Hvert ónytjuorð, sem menn mæla, munu þeir verða að svara fyrir á dómsdegi. Því af orðum þínum muntu sýknaður, og af orðum þínum muntu sakfelldur verða". Ég skil. Þú ert að segja að ég fari með ónytjuorð - eins og þú sért fær um að dæma það - og ýjar að því að á dómsdegi verði eg dæmdur. Þakka!
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.12.2008 kl. 03:37
Þegar menn segja að eitthvað sem aðrir skrifa sé þeim ekki til vegsemdar eða sæmdar eru þeir að segja í raun að vansæmd hvíli á þesim og vegsauki þeirra sé lítill. Auðvitað er þetta til þess fallið að koma fyrirlitningtstimli á viðkomandi. Og þetta gerir trúfólk trekk í trekk á þessari síðu um mig. Hverju skyldi það þurfa að svara á degi dómsins ?
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.12.2008 kl. 03:52
Þetta er alveg agalegt, Sigurður minn, við verðum allir dæmdir!
Jón Valur Jensson, 2.12.2008 kl. 04:52
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.12.2008 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.