Jóhanna er ekkert betri

Það var verið að dæma Jóhönnu forsætisráðherra fyrir að brjóta stjórnsýslulög.

Þar með er hún orðin lögbrjótur.

Hún iðrast samt einskis og vill ekki biðjast afsökunar.

Það var ömurlegt að horfa á hana í fréttum sjónvarpsins. Afneitunin, sjálfsréttlætingin og hrokinn ætlaði hana alveg lifandi að drepa. Hún margtók það fram að hún undi dómnum en talaði samt eins og ekkert hafi verið athugunarvert við framgöngu hennar en bara þess sem hún braut á. Mótsögnin á milli orða hennar innbyrðis, sætti sig við dóminn sem hún gerði samt lítið með, gerðu alla orðræðu hennar marklausa.

Jóhanna er ekkert skárri með frekjuna og valdníðsluna en aðrir stjórnmálamenn. Þeir eru sannkallað þjóðarmein.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Hvar ertu Markús Árelíus?

Sigurbjörn Sveinsson, 16.2.2009 kl. 23:21

2 identicon

Jú, mér finnst Jóhanna samt vera betri.

Ég veit ekki af hverju - en ég hef yfirleitt miklu meiri samúð með Jóhönnu heldur en flestum öðrum sem sitja á Alþingi.  Kannski er það vegna þess að ég hef aldrei fengið það á tilfinninguna að hún sé að skara eld að sinni eigin köku eins og svo margir aðrir þarna.

Malína (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 23:42

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kannski er hún skárri að þessu leyti en sama frekjan og valdníðsluhugsunarhátturirnn er í henni, sem sé það að valta yfir menn með röngu af því að menn geta það í krafti valds Og það gerði hún þarna með röngu, segir dómurinn,  

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 00:13

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hún er samt bara Jóhanna, inn við beinið...

& mér líkar það skárr en hitt...

Steingrímur Helgason, 17.2.2009 kl. 00:57

5 Smámynd: Stefanía

En hún er alveg afspyrnu leiðinleg líka.

Stefanía, 17.2.2009 kl. 02:00

6 Smámynd: María Kristjánsdóttir

En ætlaði sá sem kærði ekki að valta yfir okkur með röngu, Sigurður?

María Kristjánsdóttir, 17.2.2009 kl. 02:25

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég sendi henni bréf og bið hana að hætta og flytja til Ástralíu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.2.2009 kl. 08:08

8 identicon

Það versta er að íslensk þjóðarsál grípur alltaf í það sem er að sukka minnst... og segja það vera gott.

Muna: Lesser evil is still evil.

DoctorE (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 08:47

9 identicon

Þessi stjórn er bara popularisk, allt mjög táknrænt en fremur rýrt inni hald í frumvörpum. Jóhanna er með geislabaug og mér er illa við við Baug.

sandkassi (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 08:50

10 identicon

Hvernig átti hann að gera það María, vinsamlegast útskýrðu ?

Kristinn (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 09:21

11 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Sammála.  Sjá Vald.org - Nýtt stjórnmálaafl óskast - HÉR.

Og meira: Baldur McQueen - Jóhanna á að víkja - HÉR.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 17.2.2009 kl. 09:27

12 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Er Jóhanna ekki heilög?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.2.2009 kl. 10:45

13 identicon

Hvað er það eiginlega sem gerir Jóhönnu svona spes... ég man ekki eftir neinu rosalega spes atriði sem hún hefur gert.
Eina sem ég man eftir að er hún hefur sagst ætla vera rosalega góð við skrælingja, og að hennar tími myndi koma.

DoctorE (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 11:59

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Máríá, mild og há: Sá sem kærði var ekki fyrir dómi. Hann var ekki borinn neinum sökum. Jóhanna er nú orðin lögbrjótur. En af því að hún er ráðherra kemst hún upp með það eins og ekkert sé. Hvernig hún reyndi að koma sökinni yfir á þann sem kærði hana er svona álíka og ef vasaþjófur myndi kenna þeim sem hann stal frá um glæpinn vegna þess að hann hafi haft verðmæti í vasanum. Menn eiga ekki að verja eða réttlæti yfirgang valdamanna gegn borgunum og skiptir þá engu hver valdsamaðurinn er eða af hvaða flokki. Þeir sem verja Jóhönnu í þessu máli gera það kannski einmitt á sama hátt og hún: að reyna að koma einhvers konar ámæli, vanvirðu eða jafnvel sök yfir á þann sem kærði. Það er lágkúrulegt athæfi en kannski einmitt við hæfi þar sem stjórnmálamaður á í hlut. Þeir eru sannarlega þjóðarmein og veitti ekki af að skipta þeim öllum út og byrja á hreinu borði. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 12:56

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Tek undir þessi orð Baldurs McQuenn: ''Ráðherra sem brýtur lög á að víkja.'' Þetta er ekki flóknara en það. Og það að þjóðin geti ekki aðeins þolað slkíkan forsætisráðherra heldur er beinlínis stórhrifin af honum sýnir best að það er ekki í lagi með þjóðina.

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 13:25

16 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hvað segir þú María mín?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.2.2009 kl. 14:01

17 identicon

En glæpurinn er orðin að hefð... hefðarglæpurinn er ok fyrir hefðarmærina ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 14:32

18 identicon

".....Og það að þjóðin geti ekki aðeins þolað slkíkan forsætisráðherra heldur er beinlínis stórhrifin af honum sýnir best að það er ekki í lagi með þjóðina."

Þurfum við þá ekki bara að skipta um þjóð? - eins og hinn stórskemmtilegi hagfræðingur Guðmundur Ólafsson hefur margoft stungið upp á.

Malína (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 17:06

19 Smámynd: Hilmir Arnarson

Ó Guð, hvað ég skammast mín fyrir forsætisráðherrann minn... buhuhu og ég sem hélt að enginn gæti toppað Davíð og Geir

Hilmir Arnarson, 17.2.2009 kl. 17:06

20 identicon

Svo ég haldi nú áfram nöldrinu hérna:  Ég segi fyrir sjálfa mig - ég er ekki tilbúin til að sleppa takinu af Jóhönnu fyrr en ég sé einhvern betri valkost koma fram á sjónarsviðið.

Það er alltaf verið að tala um ný framboð - en svo gerist bara ekki neitt í þeim málum.

Malína (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 17:51

21 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Ég verð að viðurkenna það að mér var þó nokkuð brugðið þegar ég sá að Jóhanna hefði verið dæmd fyrir að brjóta lög í embættifærslu sinni. En svo sá ég þessa færslu hérna :

En ætlaði sá sem kærði ekki að valta yfir okkur með röngu, Sigurður?

Og þá skildi ég þetta allt svo miklu betur, Jóhanna var að vernda okkur og þá skiptir svona smáskiterí eins og nokkur lögbrot ekki miklu máli. Þó rétt sé að krefjast þess almennt að ráðherrar sem eru átaldir af kærunefnd jafnréttismála, umboðsmanni alþingis nú eða dæmdir af dómstólum , segi af sér þá gildir það ekki um Jóhönnu (eða Hrannar B.) - hún (þau) er nefnilega svo miklu jafnari en aðrir.

Hólmgeir Guðmundsson, 17.2.2009 kl. 18:07

22 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hólmgeiri: Tökum eftir því hvernig hinn dæmdi, ráðherrann, fer að því að gera þann sem leitaði réttar síns og fékk hann viðurkenndan af dómstóli að sökudólgi. Þetta er alveg ótrúlegt en enn þá ótrúlegra að flokksmenn ráðherran skuli þykja þetta allt í lagi en þaðan koma engin andmæli. Ég flokka þetta undir adstyggilegheit með öðru að ráðherra með allt sitt vald og auðvelda aðgang að fjölmiðlum skuli geta fengið af sér að gera þá sem leita réttar síns að sökudólgum. Það lýsir fyrst og fremst frekju valdsins og öryggi og vissu um það að komast upp með það (sem hún gerir) en líka grunnri hugsun. Hún virðist annað hvort ekki skilja eða ekki skeyta um grundvallaaratriði: menn gera ekki þá sem vinna dómsmál að sökudólgum.  Ef menn gera það er eitthvað að.

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2009 kl. 18:20

23 identicon

"....Hún virðist annað hvort ekki skilja eða ekki skeyta um grundvallaaratriði: menn gera ekki þá sem vinna dómsmál að sökudólgum.  Ef menn gera það er eitthvað að."

Halló - það er mikið að dómskerfinu hérna!  Fólk er almennt hætt að treysta því.  Hvernig má annað vera þegar flestir dómararnir hafa verið handvaldir af annaðhvort Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokknum í gegnum tíðina?

Malína (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 18:30

24 identicon

Sigurður

Þetta er alveg rétt hjá þér Jóhanna er ekkert betri

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.2.2009 kl. 18:45

25 identicon

Sigurður, það er satt sem þú segir.  Og þó við höfum fundið að dómkerfinu í öðru bloggi er samt enginn hafinn yfir lög og dóm.  Þó dómarar séu mannlegir og skeikulir er dómurinn gildur.  

EE elle

EE (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 09:37

26 identicon

Mér finnast viðbrögð Jóhönnu fremur hrokafull. Hún er ekki hafin yfir eðlilega kurteisi og ætti alls ekki að tjá sig um dóminn með þeim hætti sem hún gerir.

sandkassi (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 13:27

27 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Því miður rétt Gunnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.2.2009 kl. 13:32

28 identicon

æ já þetta er englaeffectinn-:)

sandkassi (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband