Vafasamt hitamet á Eyrarbakka

Í morgun kl. 9 sýndi hámarkshitamælirinn á Eyrabakka 11,0 stig á kvikasilfrinu. Þessi hiti hefur mælst einhvern tíma frá kl 9 í gærmorgun til sama tíma í morgun.  Aldrei hefur mælst þarna meiri hiti í febrúar en hæsta talan áður er 9,4 stig frá þeim 20. 1929.

Ég tek samt ekki mark á þessu meti.

Það er augljóst að lengi hefur verið eitthvað athugavert við hámarksmælingar á kvikasilfursmælinum á Eyrarbakka. Sjálfvirki mælirinn fór ekki hærra en í 8,2 stig allan þennan tíma og var  það milli kl. 18 og 20 í gærkvöldi. Það munar sem sagt þremur stigum á þessum mælum. Og ekki í fyrsta sinn. Sjálfvirki mælirinn er hins vegar í góðu samræmi við aðra mæla í nágrenninu og þess sem vænta má í því veðurlagi sem var í gærkvöldi á þessum árstíma.

Eitthvað er hreinlega bogið við hitamælingarnar á Eyrarbakka undanfarið og jafnvel nokkuð lengi. Kannski stafar það af því hvar hitamælaskýlið er staðsett. Það er svo að segja undir þakskeggi húss í þorpinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Þeta er með ólíkindum.  Hér er maður, sem veit hvar hitamælar landsmanna er staðsettir. ........................Ég segi nú ekki meira.

Sigurbjörn Sveinsson, 18.2.2009 kl. 13:04

2 Smámynd: Lýður Pálsson

Hefur einhver verið að atast í Emil veðurathugunarmanni? Hitinn hér á útihitamæli Byggðasafnsins er uþb 3 gráður. 11 gráður síðasta sólarhring? Varla.

Lýður Pálsson, 18.2.2009 kl. 13:23

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Var ekki bara verið að elda kvöldmatinn í húsinu þarna á Eyrarbakka?

Emil Hannes Valgeirsson, 18.2.2009 kl. 13:30

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Kannski rétt að taka fram að ég er Emil veðuráhugamaður en ekki umræddur Emil veðurathugunarmaður á Eyrarbakka.

Emil Hannes Valgeirsson, 18.2.2009 kl. 13:37

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki veit ég hver tekur veðrið á Eyrarbakka en villan liggur í mælinum eða skýlinu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.2.2009 kl. 13:50

6 identicon

Tek undir þessar áhyggjur þínar. Það er stundum eitthvað bogið við þessar athuganir. Hallast frekar að innsláttarvillu, eða er veðrið ekki enn sent með dulkóða?

Óðinn (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 10:53

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Í morgun er svo hámarkshitinn á Eyrarbakka skráður 10 stig og er það þriðji dagurinn í röð þar sem hann fer yfir tíu stig: 10,5, 11,0, 10,0. Það er ljóst að eitthvað er að. Hvað svo sem það er þá gengur þetta ekki lengur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.2.2009 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband