Nýr vefur Vefurstofunnar

Ég ætla ekki að sinni að fjölyrða um nýjan vef Veðurstofunnar enda gert smáúttekt á hinum gamla  áður en þessi nýi er í meginatriðum eins og sá gamli. Eitt atriði vil ég þó gera að umtalsefni. Á forsíðu er hægt að sjá mesta úrkomu á landinu og mesta og minnsta hita. En það vantar alveg tímakvarða. Það er bara sagt: í dag. Það er allsendis ófullnægjandi.  Á öðrum stað á vefnum kemur freyndar ram að þetta sé fræa miðnætti en það þarf að koma fram við töflurnar sjálfar. Það er heldur ekki greint á milli mannaðra og sjálfvirkra stöðva. Einnig þyrfti að  vera hægt að smella á viðkomandi stöðvar til að komast beint inn á þær til frekari skoðunar. (Það er hins vegar gleðiefni að loksins er búið að útrýma þrálátustu villu í heimi sem var sú að lágmarkshiti sjálfvirkra stöðvar sem sýndur var á hverjum morgni var ekki neinn raunverulegur lágmarkshiti yfir marga klukkutíma heldur einungis hvað þær sýndu lægst við athugun kl. 9!).

Svona töflu þarf svo að útbúa fyrir allar stöðvar, ekki aðeins þær sem mæla mest og minnst. Eins og þetta hefur reyndar þegar verið sett upp á  elsta vef Veðurstofunnar (þetta er víst þriðji vefurinn og allir í gangi samtímis) er nú það allra besta hvað skeytastöðvarnar varðar. Vonandi verður því ekkki breytt eða það tekið niður. 

Viðbót: Mér finnst ótækt að hafa í þessum forsíðuskrám lágmarkshitann í einum graut frá stöðvum í byggð og á heiðum. Í dag (25.3.) eru það t.d. Holtavörðuheiði og Kleyfaheiði sem eru efstar á blaði en engin byggðastöð kemst á blað. Auk þess eru þetta aðeins sjálfvirku stöðvarnar sem sjást á þessum listum. En vonandi koma seinna svona listar fyrir allar stöðvar, vélrænar sem mannaðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki aðeins nýr vefur - líka ný stofnun:  Vefurstofan!

Malína (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 15:58

2 identicon

Vefst fyrir manni þessi vefurstofa. 

EE elle (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 16:57

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eruð þið nokkuð systur?

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.3.2009 kl. 17:02

4 identicon

Kannski  og kannski bara svipaðir (1/2) vitar?    

EE elle (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 17:47

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þið eruð sem sagt systur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.3.2009 kl. 18:15

6 identicon

Malína (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 19:10

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Tvíburar?

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.3.2009 kl. 19:19

8 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Góðir Landsmenn. Þetta voru umræður um hinn nýja vef Veðurstofunnar.

Emil Hannes Valgeirsson, 23.3.2009 kl. 22:25

9 identicon

Þökkum fyrir á meðan einhver setur ekki R í staðinn fyrir V í Veðurstofu!

Ýmislegt gerist nú hérna á þessari bloggsíðu!

Malína (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 22:58

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.3.2009 kl. 23:45

11 identicon

Maður veltir því fyrir sér hvort það komi aldrei nein almennileg veðurfrétt úr þessari Vefurstofu.  Eins og stormur og svoleiðis!?

EE elle (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 09:17

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Maður veltir því fyrir sér hvers vegna eintómir veðurhálfvitar gera athugasemdir þegar ég blogga um veður en aldrei neinn sem hefur eitthvað til málefnalegt til veðurmálanna að leggja. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.3.2009 kl. 09:38

13 identicon

 

Malína (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 16:18

14 identicon

Yawn  

CloudLightning Bolt

EE elle (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 16:37

15 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Er þetta nú alveg sanngjarnt Sigurður? Þann 4. mars reyndi ég að gera gáfuleg athugasemd um veðurfar á júratímabilinu:

"Leikmaður stígur í stólinn:

Fyrir nokkrum árum var á Rás 1 þáttaröð, sem ég man ekki hvað hét með stjórnandanum X þar sem rætt var við íslenska vísindamenn um hugðarefni þeirra og viðfangsefni. Síðdegis á sunnudegi ef mig minnir rétt. Þá var rætt við vísindamann sem unnið hafði að veðurfarsathugunum sögunnar með borkjörnum vítt og breytt um jarðir m.a. í Síberíu. Tengdist að ég held ekki dansk-íslenska verkefninu á Grænlandsjökli. Það sem mér þótti athyglisvert í máli hans var hve gríðarlegar hitasveiflur höfðu átt sér stað í lofthjúpi jarðar í gegnum jarðsöguna og voru sveiflur á meðalhita allt að 14° ef mig minnir rétt. Þetta er auðvitað langt umfram það, sem verið er að ræða núna af mannavöldum.

Mér er ljóst að þetta snertir ekki beint kjarna þess, sem rætt hefur verið hér að framan, en það opnar augu okkar fyrir því, hve siðmenningin er brothætt í höndum náttúrunnar, þegar litið er til meintra áhrifa mannsins á hitafarið."

Þú leist ekki við henni frekar en ýmsu öðru.

Sigurbjörn Sveinsson, 24.3.2009 kl. 21:50

16 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Svo maður falli í ekki í flokk veðurhálfvita þá ætla ég að reyna að vera málefnalegur. En eins og ég hef einhvern tíma sagt áður þá sakna ég mikið í veðurkortum nútímans að sýnt séu gömlu góðu skilin, þ.e. kuldaskil, hitaskil og samskil en þau ásamt þrýstilínum segja svo mikið hvaða loftmassar eru á ferðinni hverju sinni, og bara yfirleitt hvað er að gerast í veðrinu. Þetta er þó auðvitað háð því að fólk kunni að lesa úr svoleiðis enda þarf til þess lágmarksþekkingu á veðri. Kortin á vef veðurstofunnar sýna engin svona skil, bara klessur og litatilbrigði sem segja vissulega sína sögu en það vantar alveg forsendurnar þegar ekki eru sýnd skilin.

Þess vegna held ég mikið uppá veðurkort eins og þau sem birtast t.d. á Metoffice:

http://www.metoffice.gov.uk/weather/europe/surface_pressure.html

Emil Hannes Valgeirsson, 24.3.2009 kl. 22:44

17 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er dáldið kátur með nákvæmnizspána hjá Belgíngi.

Enda nægjusamur í tíma, rúmi & nágrenni.

Steingrímur Helgason, 24.3.2009 kl. 23:33

18 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og nú eru allir orðnir málefnalegir!

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.3.2009 kl. 23:57

19 identicon

Það var nú samt einhvern tíma þannig að fólk mátti djóka og ærslast og fíflast á þessari bloggsíðu.  Maður þurfti ekki alltaf að vera svo málefnalegur í tætlur og drep.

Hvenær hætti það??

Malína (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 00:16

20 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hefi nú ákveðið að gjörast stífur og streit í hverri grein á þessari rafrænu dagbók.

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.3.2009 kl. 00:24

21 identicon

Confused

EE elle (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 00:35

22 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Menn kvarta um að enn sé kalt og komið jafndægur á vori. Gaman væri að rifja upp veðrið á lamdinu síðustu vikuna fyrir kosningarnar í apríl 1983.  Þá var kafaldsbilur og ófærð um allt norðanvert landið fram að kjördag og tafði m.a. annars talningu á Vestfjörðum ef ég man rétt.

Hefurðu e-ð í handraðanum um þetta SÞG?

Sigurbjörn Sveinsson, 25.3.2009 kl. 09:12

24 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sigurbjörn: Árið 1983 var á kuldaskeiði miklu, einhverju því mesta síðan á 19. öld. Það veðurfar sem við höfum vanist síðustu ár, svona tíu til fimmtán, er miklu mildara og þess vegna finnum við meira fyrir því þegar veðrið sýnir á sér ómildari blæ. En það mun það gera annað slagið hvað sem líður hlýnandi veðurfari.

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.3.2009 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband