26.4.2009 | 15:54
Heiðurslaun eru heiðurslaun
Það er ekkert stjórnmálalegt við það sem hér fer á eftir. En heiðurslaun listamanna eru ekki starfslaun heldur viðurkenning á listrænum afrekum. Eins konar verðlaun.
Mér finnst það órökrétt að menn geti afsalað sér heiðri. Maður á heiðurslaunum fyrir list er því ekki á tvöföldum launum þó hann sinni líka ólistrænu starfi.
Þess vegna finnst mér að Þráinn, eða hver sem er í sömu stöðu, eigi ekki að láta pólitískan þrýsting hafa áhrif á sig heldur beita rökhyggjunni.
Það er ekki hægt að svipta menn áunnum heiðri.
Þráinn íhugar heiðurslaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Mannlífið | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:58 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Nákvæmlega eiga þá aðrir að skila medalíum og bikurum sem þeir hafa unnið vegna t.d. íþróttaafreka.
Finnur Bárðarson, 26.4.2009 kl. 16:07
Veit svo sem ekki alveg hvernig þetta funkerar en ég hélt að listamannalaun, heiðurs eða ekki væru til þess að menn gætu stundað list sína óhindrað þ.e. án þess að þurfa að strita.
Annars er ég þeirrar skoðunnar að þessi laun eigi að strika algjörlega út. Annað hvort lifa menn af listinni eða finna sér eitthvað annað að gera. Hef horft á konur og karla í frystihúsum framkvæma sína vinnu svo stórkostlega að það mætti hæglega flokka það undir list án þess að nokkrum manni detti til hugar að setja þau í þennan flokk.
Og finnur bikarar og medalíur eru ekki gjaldmiðill.
Róbert Tómasson, 26.4.2009 kl. 16:19
Er ekki rétt, að þessi heiðurslaun fari til Framsóknarflokksins þaðan sem þau komu ? Auðvitað er ÞB í djúpum... Eins og þessi skrumflokkur hans sem ekki mun lifa nema fram að næstu kosningum ...
Ítreka þá tillögu mína að hann leggi til að Guðrún Helgadóttir fái þessi laun í hans stað. Hún hefði átt að vera akomin í þennan flokk svona 30 árum á undan honum.
Eiður (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 16:43
Enn og aftur þetta eru ekki laun, lesið færslu Sigurðar frá upphafi til enda.
Finnur Bárðarson, 26.4.2009 kl. 17:16
Róbert; Heiðursmannalaun eru verðlaun fyrir störf sem þú hefur þegar unnið.
Eiður; Voðalegar dylgjur eru þetta. Ef þig langar að kynna þér málið mæli ég með því að þú lesir þetta:
http://thrainn.eyjan.is/2009/04/svartur-listi.html
Þráinn fékk þessi verðlaun fyrir kvikmyndir sem hann gerði.. væri soldið fáránlegt að veita Guðrúnu kvikmyndagerðarheiðurslaun fyrir bók...er það ekki?
En mér finnst allt í lagi að maðurinn nái sólarhring sem kjörin þingmaður áður en hann er krafinn um ákvarðantökur
Heiða B. Heiðars, 26.4.2009 kl. 17:22
Það kemur alls staðar fram að þetta séu HEIÐURSlaun (þátíð; þegar afrekað) ekki LISTAMANNAlaun sem að líkindum eru ætluð til að listamenn geti unnið að list sinni (nútíð og framtíð) Þá yrði ÞB á tvennum launum.
Ekki ætlumst við til að fólk skili hluta launa fyrrum vinnuveitenda, fari það á þing?!?!
Kaus ekki O
Eygló, 26.4.2009 kl. 17:40
Ég er ekki að taka afstöðu til pólitískra flokka, hvort sem þeir eru taldir skrumflokkar eða eitthvað annað, í þessari færslu aðeins að reyna að benda á rökrétta afstöðu. Það er líka annað mál hverjir eru maklegir í heiðurslaunaflokki. Ég er eingöngu að beina athyglinni að eðli heiðursviðurkenninga.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.4.2009 kl. 18:02
Sama hvað hver segir, finnst myndin var svo góð að eiga þessi HEIÐURSlaun skilið, hefði hún átt að standa undir sér, ef hún gerði það ekki verðskuldar hún engin verðlaun.
Og ég endurtek annað hvort lifa menn af listinni eða éta það sem útifrýs.
Róbert Tómasson, 26.4.2009 kl. 18:11
Róbert: Þess eru mjög mörg dæmi í listasögunni að mestu listamenn heimsins hafa átt mjög erfitt uppdráttar veraldlega, hafa hreinlega átt erfitt með að lifa af list sinni, (Mozart og van Gogh eru skýr dæmi) og list þeirra hefði notið sín betur ef þeir hefðu notið stuðnings. Listsköpun er dálítið sérstakt fyrirbæri, sem ég ætla ekki að fara nánar út í hér, hún er ekki sambærileg hvað ágóða á henni varðar fyrir listamanninn við hvaða atvinnu sem er. Þetta gera flest nútímaþjóðfélög sér ljóst og styrkja því listamenn.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.4.2009 kl. 18:17
Róbert Tómasson : Ég er þér svosem sammála, en þannig eru reglurnar bara ekki. Viltu að menn afsali sér einhverju sem þeir hafa þegar unnið sér inn ef þeir taka við nýju starfi?
Hvað með þegar sjálfstæðismenn unnu tvær vinnur, bæði hjá ríki og borg s.s. Björn Bjarnason, Guðlaugur Þór?
Líklega hefði verið betra ef Þráinn hefði fengið þessi heiðurslaun í eingreiðslu, þá væri ekkert verið að röfla um þetta.
Annars vona ég bara að kauði hafi verið strikaður það mikið út að hann falli af þingi.
Björn I (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 18:18
Satt er það Sigurður, ég hef svo sem ekki séð síðasta listaverk Þráins og ætti þar með ekki að vera að dæma það, en mér blöskrar bara svo oft hvað er flokkað undir list og hvað ekki.
En ég vill fá að "misnota" tækifærið hér og óska öllum sem telja sig sigurvegara í ný liðnum kosningum innilega til hamingju og nýjum þingmönnum og konum velfarnaðar.
Róbert Tómasson, 26.4.2009 kl. 22:27
Maðurinn fékk heiðurslaun. Það virðist ósvífni að hann þurfi að skila þeim ef hann hefur ekkert brotið gegn heiðrinum sem hann fékk þau fyrir. Og heiðarleg vinna er ekki brot á neinum heiðri.
EE elle (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 23:00
Já, og það væri líka órökrétt ef hann yrði að skila þeim.
EE elle (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 23:15
Það myndi enginn móðgast þótt Þráinn skilaði þessum "heiðurs"launum sínum. Eina ósvífnin sem hér er á ferðinni er að hann virðist ætla að þiggja tvöfaldar launagreiðslur frá okkur, skattborgurunum. Og það eftir að hafa gagnrýnt aðra fyrir siðblindu. En auðvitað er það allt annað þegar HANN á í hlut, er það ekki. Það er flott þetta Nýja Ísland - höldum bara áfram öllum gömlum "hefðum" eins og að maka krókinn eins og hægt er - ekki ganga á undan með gott fordæmi.
Whatsername (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 00:19
Hans heiður að halda þeim.
EE elle (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 00:30
En ef Nóbelsverðlaunahafi settist á Alþingi? Þau verðlaun eru reyndar ekki greidd af íslenska ríkinu - en finnst fólki að viðkomandi ætti að afsala sér þeim? Eða afsala sér þá þingfararkaupinu?
Þetta eru bara svona hugleiðingar. Ég hef sjálf eiginlega enga sérstaka skoðun á þessu máli.
Malína (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 01:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.