2.5.2009 | 13:55
Ills viti
Í fréttum Ríkisútvarpsins um hádegið var sagt að fulltrúar Rauða krossins með sálfræðing í fararbroddi væru að fara til Alsírsbúans sem er í mótmælasvelti.
Mér finnst þetta ills viti.
Verður maðurinn ekki beittur einhvers konar þrýstingi eða þvingun?
Það sem ég óttast er einfaldlega þetta: Með fortölum verður maðurinn talinn á að hætta mótmælasveltinu. Tíminn líður og hann nær aftur fyrra þrótti. Athygli fjölmiðla hvarflar frá málinu og það gleymist. Þá nota yfirvöld tækifærið til að flæma varnarlausan manninn úr landi.
Það er líka verið að skapa óhagstæða ímynd af manninn með því að senda sálfræðing til hans. Það gefur til kynna að eitthvað sé sálarlega athugavert við hann. Hann sé vandamálið.
En vandamálið er ekki þessi maður. Vandamálið er Útlendingastofnun og yfirvöld.
Að þeim eiga menn að beina athygli sinni en ekki manninum sem er í mótmælasvelti. Enginn getur leyst þetta mál nema yfirvöld, allra síst Alsírbúinn sjálfur.
Ég hef reyndar mjög sterka tilfinningu fyrir því að það muni ekki geta gerst á Íslandi að nokkur maður, innlendur sem erlendur, geti farið alla leið í mótmælasvelti. Yfirvöld munu leggja hann inn á sjúkrahús og skipa læknum að gefa honum næringu. Og læknar munu hlýða yfirvöldum.
Það fer annars lítið fyrir þessari frétt. Hún kom aðeins fram í útvarpsfréttum en finnst ekki á vefsíðu Rúv. Aðrir fjölmiðlar þegja um málið.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Það er beinlínis hlutverk RKÍ að gæta að hagsmunum og líðan hælisleitenda. Með því að heimsækja manninn geta þau greint frá líðan hans, og um leið haldið málinu vakandi gagnvart yfirvöldum.
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 14:51
Starfsfólk Rauða krossins ásamt sálfræðingi fer og hittir alla sem fara í hungurverkfall. Það gera þeir reglulega til að fylgjast með líðan viðkomandi, andlegri og líkamlegri.
Halldóra (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 15:57
Jæja, en í hvað tilgangi?Til að gefa stjórnvöldum upplýsingar? Hvernig væri að mótmæla stjórnvöldum? En það verður aldrei gert, aldrei.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 16:29
Það er ákvörun einstaklingsins að svelta sig. Þetta er því tilganglaust tiltal við manninn.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 16:34
Já, í alvöru. Ef Rauði krossinn reynir hvorki að hafa áhrif á manninn né stjórnvöld sé ég ekki tilganginn með svona afskiptasemi.En ég held að í reynd muni sálfræðingurinn beita áhrifum sínum við manninn.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 16:36
Mér finnst líklegt að bráðlega muni maðurinn láta af svelti sínu og svo munu stjórnvöld mala hann. Þá mun ekkert heyrast frá Rauða krossinum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 16:46
væri ekki nær að gauka að honum samloku?
Brjánn Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 17:32
Alltaf að vera góður við þá sem eru að deyja eða vilja deyja.
Komast þarf að því hvort hann vill láta brenna sig eða jarða.
Og algjör skylda útlendingastofnunar að láta fjölskyldu mannsins vita þegar þetta er gengið um garð. Já, fjölskyldan hvar er hún.???????????
Johanna þórkatla (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 17:44
Það skildi þó ekki vera að eitthvað væri sálarlega að manni sem reynir að kúga land til að taka við sér sem flóttamanni eftir að hafa logið ítrekað í umsókn og í því ferli sem umsókn hans hefur verið í.
Burt með svona rusl.
Jóhann Einarsson (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 17:47
Mjög trúverðugur og gegn ríkisborgari í framtýðinni. Mæli með að hann fái vinnu í banka strax. Og síðan að berjast fyrir því að fjölskyldan komi á eftir, hvort sem það er ein, tvær eða þrjár konur og börnin( þetta sem danir eru að berjast við núna)og síðan bræðurnir, (heitir slektinvandring á sænsku,sem ekki er hægt að stoppa) og allir fá vinnu,af nógu er að taka í velmegunarsamfélaginu. Og svona er hægt að halda áfram endalaust. Hvað þarf að gerast til þess að þið áttið ykkur á að þið eruð IDIOT!
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 18:18
Sammála.
Þetta er hin fínfalska byrjun á valdbeitingunni sem er í vændum.
Balzac (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 18:36
Mikið eru þrjár síðustu athugasemdir aumkunarverðar. Og það er auðséð að þeir sem koma með þær njóta þess að koma meinfýsni sinni á framfæri.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 18:38
Ekki mín ;)
Balzac (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 18:41
Þín var ekki komin Balzac þegar ég gerði mína athugasemd.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 18:50
Sigurður, Johanna að ofan er búin að fara um með slík´comment´: http://runarbergbaugsson.blog.is/blog/runarbergbaugsson/entry/867965/
EE elle (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 21:50
Íslendingar eru 20 - 25 árum á eftir öðrum norðurlöndum í"hælisleitendvandamálum" og væri mjög skynsamlegt ef íslendingar sendu sæmilega vel gefinn íslending,ef hann fynnst, í fræðluleiðangur til frændþjóðanna og fái að vita hvað fór úrskeiðis hjá þeim. Það er mjög gáfulegt að læra af mistökum annara, en ekki að bíða eftir eigin mistökum, af því að við vitum allt betur en aðrar þjóðir, samber útrásarvíkingarnir, sem allir vita að eru færustu viðkiptajövrar alheimsins, að egin mati. Ég er EKKI að grínast í þetta sinn,því ég hef búið á hinum norðurlöndunum í 20 ár og hef séð óhuggulega þróun þar hjá hælisleitendum og þá sérstaklega" annari kynslóð", sem er fædd og uppalin í nýja landinu. Frekjan,dónaskpurinn og uppvöðulsemi gagnvart frumbyggjum er algjörlega ólíðandi fyrir almenning, en hið opinbera gerir ekker, því málið er óleysanlegt. Nú er orðið of seint að stoppa af innflæðið á Asíu og Afríkubúum, vegna skyldmenna innflutnigs. Þegar sonurinn ,hælisleitandinn,sem kemur fyrst, hefur fengið dvalarleyfið, þá bíður hann rólegur í 3 - 4 ár og fer þá fram á að foreldranir komi líka. Ekki veit ég hvernig lög eru á Íslendi gagnvart svona innflytjendum, en þetta er ekki hægt að stopp í Svíþjóð og flæðið ár hvert af skyldmennum er um 100.000 persónur .
Það má ekki blanda saman útlendingum sem koma hingað í atvinnuleit og hafa gert í áraraðir. Það fólk fer á atvinnuskrá sem er send út um allt land til sveitarfélag og fyrirtækj og er það væntanlegur atvinnurekandi sem tekur ábyrgð á viðkomandi og sér um hanns skatta og skyldur, enda er hann með alla pappíra í lagi frá heimalandinu.
Hælisleitandinn er í allt annari aðstöðu eins og komið hefur hér fram margsinnis, en fáir virðast skilja, hver sem orsökin er. Sennileg vanþekking.
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 00:13
Góður pistill hjá þér Sigurður. Það er þó slæmt að rasistar skuli fara svo mikinn í þessari umræðu.
Mér finnst vanta mannúðina í móttöku okkar á hælisleitendum og er það nokkuð sem þarf að breyta sem fyrst. Ég vona því auðvitað að manninum verði veitt hæli hér og lífi hans verði bjargað.
Hilmar Gunnlaugsson, 3.5.2009 kl. 00:36
"- -sæmilega vel gefinn íslending,ef hann fynnst- -"
Bara því miður V. Jóhannsson, við erum öll svo nautheimsk, myndum ekki vita hvern af okkur vitleysingunum við ættum að senda nema kannski útrásarglæpon. En, get ég minnt þig á, að fjöldinn allur af landsmönnum hefur búið lengi erlendis, í ýmsum löndum, og þó þú virðist halda að þú hafir verið síðasti vitringurinn sem yfirgaf landið og hafir skilið eftir hóp eintómra 1/2-vita, sem aldrei hefur stigið fæti inn í annað land og ekki lært neitt. Ja, nema þú. En þú hljómar eins og sannkallaður vitringur og gætir kannski bara farið fyrir okkur fávitana? Og í lokin, "fynnst" á að skrifa finnst og "framtýðinni" á að skrifa framtíðinni. En þú vissir það þó.
EE elle
. (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 00:47
EEelle.Ritvilla er ekki sama og skynvilla og þar skilur okkur að. Ef ég vissi ekki um alla þá íslendinga og heimamenn, sem búa á erlendri grund og eru mér sammála, þá myndi ég ekki nenna að benda á neikvæðu hliðarnar í málinu. Hitt er annað mál að það virðist ekki hafa neinn tilgang því þið eruð, það sem ég hef sagt áður. Heimóttalegir,illa upplýstir fáráðlingar, sem hafað patent lausn á öllum hlutum, þar til annað kemur í lós. Og þetta veit ég að enginn rengir.Kveðja
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 10:52
Það mætti kannski byrja könnunina hjá lögreglunni í Danmöku og fá upplýsingar um það, hvað margir einstaklingar hjá þeim vinni einvörðungu við að hlera og njósna um múslima í landinu vegna öryggisástæðna!!! Danir telja þetta lífsnauðsýnlegt og það væri gaman að vita hver kostnaðurinn er ,bara við þennan málaflokk.
Ég hef sagt það áður. Þeir eru 25 árum á undan íslendingum með þessi vandamál. (Hugsið ykkur 25 ár fram í tímann). Nei , annars, þið getið það ekki. sorry.
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 11:14
"Hvað þarf að gerast til þess að þið áttið ykkur á að þið eruð IDIOT!"
"- -sæmilega vel gefinn íslending,ef hann fynnst- -"
"Heimóttalegir,illa upplýstir fáráðlingar, sem hafað patent lausn á öllum hlutum, þar til annað kemur í lós. Og þetta veit ég að enginn rengir".
Það er ýmislegt í landinu sem er heimskulegt og óþolandi. Enda erum við ekkert bundin við landið fremur en þú og hinir sem hafa flúið. Hins vegar finnst mér það heimska og skynvilla að ætla öllum landsmönnum aumingjalegar og lágkúrulegar lýsingar þínar að ofan. Og lýsir ekki vitibornum manni. Í landinu er fjöldi lærðra og viturrra manna, þó ýmsir miður vel gefnir pólitíkusar hlusti ekki og haldi sig oft vita alla hluti. Og hafi stýrt landinu norður og niður. Það er líka illa gefið fólk innan um í öðrum löndum og þó þú kannski hafir ekki vit til að skilja það.
EE elle
. (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 11:47
Hér tók ég út athugasemd. Persónulega niðrandi og svívirðileg ummæli um einstaklinga sem búið er að nafngreina í fréttum eru hér ekki ekki leyfðar, allra síst gagnvart þeim sem ekki geta svarað fyrir sig.
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.5.2009 kl. 11:57
Þegar ég tala um heimóttarlega , illa upplýsta fáráðlinga, þá er ég að sjálfsögðu ekki að tala um ala þjóðina heldur YKKUR hér á blogginu, sem halda uppi vörnum fyrir lygara á þeim forsendum að VIÐ ÍSLENDINGAR séum ekki nógu mannúðlegir. Maðurinn sagði sjálfur að hann væri eftirlýstur í heimalandinu af ríkisstjórn og LÍKA G I A .
Maðurinn er enginn unglingur og við vitum ekkert um hans bakferil.
Skiljið þið nú orðið heimóttarlegir.
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 12:06
Sigurður , afsakaðu fljótfærnina, en sannleikurinn er oft hvað sárastur og sérstaklega þegar ég veit að þjóðin kemur til með að blæða fyrir velvild og góðsemi gagnvart svona fólki og vísa ég á hin norðurlöndn því til staðfestingar. Afsakaðu aftur
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 12:18
http://sydsvenskan.se/malmo/ Þetta dagblað er "krata" blað, en ekki rasista blað. Þið ættuð að lesa blaðið á hverjum morgni, áður en þið byrjið daginn og þá kannski áttið þið ykkur á því hvers vegna ég er svona neikvæður í þessum málum. Ég er ekki einn, eins og margir virðast halda.
V. Jóhannsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.