Hvað segir Páll Óskar

Lögreglan gekk ekki í skrokk á mótmælendum sem andmæltu mannréttindabrotum á hommum og lesbíum. Það var bara vegna þess að athygli umheimsins beinist að Rússlandi vegna Söngvakeppni Evrópu. Undir venjulegum kringumstæðum sparar lögreglan ekki barsmíðarnar. En nokkrir  tugir voru handteknir og þeirra bíður líklega ekki neinar ljúfar trakteringar. 

Svona ganga í Rússlandi er ekki skemmtiganga eins og Gay Pride gangan er að mestu leyti á Íslandi. Þarna er hópur fólks að mótmæla einhverri grimmúðlegustu kúgun sem nokkrir hópar í Evrópu verða að sæta. Ekki bara mismunun og höfnun heldur oft og tíðum beinum misþyrmingum.

Sagt er að sumum keppenda í Söngvakeppninni sé órótt og ætli jafnvel að  mótmæla þegar keppnin fer fram. Vonandi að þeir láti að því verða. 

Hvað ætli Páll Óskar annars hugsi en hann er alltaf að tala um keppnina í sjónvarpinu? Getur hann nú ekki sagt eitthvað sem máli skiptir? Eða horfir hann bara í aðra  átt og blikkar augunum  þó verið sé að þjarma af félögum hans?

Sigmar Guðmundsson sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að íslensku keppendurnir hafi ekki mikið frétt af þessum mótmælum og handtökum. En nú ættu þeir að hafa frétt af þeim.  Ekki geta þeir nú borið fyrir sig að vita ekki af þessu.

Ef nógu margir keppendur myndu mótmæla í kvöld myndi keppnin að vísu fara úr böndunum.  En það myndi beina athygli heimsins rækilega að  því að mönnum væri ekki sama um níðingslega meðferð Rússa á hommum og lesbíum. 

Eftir því yrði tekið. 

 


mbl.is Handtökur vegna gleðigöngu í Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maðurinn er heimskasta dýr jarðarinnar á svo marga vegu....

DoctorE (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 13:11

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Ef eðalhomminn Friðrik Ómar sýnir rússneskum bræðrum okkar og systrum ekki samstöðu á sviðinu í kvöld - t.d. með því að draga upp regnbogafánann góða - finnst mér að það ætti að meina honum þátttöku á Gay Pride á Íslandi næstu 10 árin eða svo!  

Róbert Björnsson, 16.5.2009 kl. 17:51

3 identicon

Það var viðtal við Friðrik Ómar varðandi þetta á RÚV í gærkvöldi og mér fannst hann virka eitthvað svo furðulega linur og hlutlaus í afstöðu sinni gagnvart þessu málefni.  Eins og hann væri að reyna að passa sig á því að styggja engan.  Þannig kom þetta mér fyrir sjónir.

Malína (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband