9.12.2009 | 17:39
Loftslagsráðstefnan
Ég leyfi mér að efast um efann og efasemdamennina.
En ég efast alls ekki um það að loftslagsráðstefnan mun fyrst og fremst hugsa um efnahagslega hagsmuni öflugustu og ríkustu iðnríkjanna.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Gott að þú efist, Sigurður Þór. Það bendir til gagnrýnnar hugsunar, sem er lítt í tísku þessa dagana.
"Samningur" 6.700.000.000 manna um að draga úr vaxtarhraða meintrar hlýnunar jarðar hlýtur að vera góður fyrir alla, ekki satt? Sérstaklega fámenn eyríki á norðurhjara.
Ívar Pálsson, 9.12.2009 kl. 18:39
Ísinn minn bráðnaði þegar ég las þetta.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.12.2009 kl. 18:54
Ætlarðu ekki að mótmæla Villi? Þá verður þér kannski stungið í svartholið.
Sigurður Þór Guðjónsson, 9.12.2009 kl. 22:30
Ég efast ekki um það að þú ert mikill efasemdarmaður Sigurður.
Ágúst H Bjarnason, 10.12.2009 kl. 06:06
Ég er alltaf að mótmæla Siggi. Ég mótmæli því t.d. að Ólafur Gufa sé að díla við Íran, svörtustu sauðina í bók Amnesty International, þegar hans eigin þjóð þarf á honum að halda. Ég mótmæli því að við þurfum að halda uppi forseta sem er gufaður upp, eða notfærir sér loftslagsráðstefnuna til að frysta þjóð sína og ata hana auri. Það gera bara svín.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.12.2009 kl. 09:49
"Samningur" 6.700.000.000 manna um að draga úr vaxtarhraða meintrar hlýnunar jarðar hlýtur að vera góður fyrir alla, ekki satt? Sérstaklega fámenn eyríki á norðurhjara.
Ívar, þetta segir þú í þinni athugasemd.
Hversvegna er svona mikilvægt að draga úr hlýnun hjá fámennum ríkjum á norðurhveli jarðar?
Sagan segir okkur, og við Íslendingar eigum ótrúlega góðar heimildir um loftslag og veðurfar fyrr á öldum í Íslendingasögum og Annálum, að mestu hörmungar sem yfir alþýðu þessa lands gekk á 16. og fram á 19. öld var kuldi og hafís sem stundum umlukti landið 100%. Því miður bendir ýmislegt til að við séum á leið inn í kalt tímabil á Norðurhveli sem muni ná hámarki um 2030.
Þess vegna er algjör óþarfi að berjast gegn agnarsmárri stærð í gufuhvolfi sem er CO2 og er aðeins 0,0387% af öllu því sem í gufuhvolfinu er.
Sumir á blogginu kalla CO2 "Lífsandann" og það er ágætt nafn á þessari einni mikilvægust undirstöðu lífs á jörðinni. Það er með ólíkindum að hægt sé að trylla nánast alla stjórnmálmenn heimsins (þar á meðal á Íslandi) til að mæta á eina fáránlegustu samkomu sem haldin hefur verið, Loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn, þangað sem menn koma á 140 einkaþotum og tekist hefur að skrapa saman 1200 límósínur fyrir "stórmennin" og þurfti að leita til Svía og Þjóðverja til að það tækist.
Þetta lið lætur sér auðvitað ekki nægja venjulega leigubíla.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 10.12.2009 kl. 10:35
Ísland hefur aldrei 100% verið umlykt hafís. Þó CO2 sé nauðsynlegt fyrir lífið getur það samt verið skaðlegt í of miklu magni. Það eru áhrifin sem máli skipta en ekki hlutfallið af öllum þeim lofttegundum sem i andrúmsloftinu eru. Auk þess eru gróðurhúsaloftegundir, sem valda hlýnun andrúmsloftsins af mannavöldum, fleiri en það eitt.
Íslendingasögur eru ekki nothæfar heimildir um veðurfar. Og annálar eru gloppóttir og sérstaklega er 15. öldin fátækleg, nánast algjör eyða. Merkilegar rannsóknir á setlögum í stöðuvötnum og sjó undan norðausturlandi hafa verið gerðar en hafa ekki verið almennilegar kynntar almenningi í Íslandi en birst í útlendum vísindaritum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 10.12.2009 kl. 13:27
Sigurður Grétar, athugasemd mín var misheppnuð kaldhæðni: Ég tek 100% undir skrif þín. Auðvitað er ráðstefnan í Kaupmannahöfn ekki samningur allra jarðarbúa, enda ekki hægt að semja um þessa firru án þess að valta yfir smælingja eins og okkur.
Ívar Pálsson, 10.12.2009 kl. 14:50
Ditto.
Halldór Egill Guðnason, 11.12.2009 kl. 02:32
Ef ég man rétt, er N 78% af gufuhvolfinu og O tæplega 20%. Þarna eru sumsé 98% gufuhvolfsins komin og aðeins 2% eftir. Hversu mikið getur eiginlega verið af þessum ,,gróðurhúsalofttegundum" og hver eru áhrif þeirra? Spyr sá sem ekki veit...
Sigurjón, 12.12.2009 kl. 03:52
Sigurjón, þegar þú dregur andann þá færðu í lungun tæp 20% af súrefni og tæp 80% af köfnunarefni. Það má líta á köfnunarefnið sem vagninn sem flytur okkur súrefnið sem við að sjálfsögðu nýtum okkur til lífsviðurværis, skilum köfnunarefninu.
En í loftlögum gufuhvolfsins er ýmislegt fleira og þá er rétt að líta á það sem ég nefni ætíð gróðurhúshjálminn sem er mín þýðing á "greenhouse effect". Þessi hjálmur varnar því að við töpum öllum þeim varma sem sólin hefur gefið okkur á sólríkum degi, raunar gefur hún okkur varma hvort sem er sólríkt eða skýjað. Ef gróðurhúshjálmurinn væri ekki til væri meðalhiti á jörðinni ekki +14,°C heldur -18°C, jörðin væri óbyggileg. Í öllu gufuhvolfinu er hlutfall koltvísýrings CO2 0,0387, ef við viljum greina þetta enn frekar og segja að af þeim lofttegundum sem eru í gróðurhúsahjálminum þá sé CO2 nálægt 1%, en vatnsgufa er þar 95% svo nokkrar fleiri gastegundir í mjög litlu magni svo sem metan.
Gegn þessari lífsnauðsynlegu vörn, gróðurhúsahjálminum, og einni að minnstu einingum hans, koltvísýringi CO2 sem er undirstaða alls lífs á jörðinni, er öll barátta furðulegra öfgaafla sem hefur tekist að trylla nánast alla stjórnmálmenn heimsins. Þess vegna er þessi yfirgengilega ráðstefna í Kaupmannahöfn, þar sem menn og konur lifa í vellystingum á sama tíma og 17000 börn deyja úr hungri á degi hverjum. Þessir pólitísku fulltrúar, óheiðarlegir vísindamenn og fylgifiskar þeirra koma til Kaupamannahafnar í 140 einkaþotum, nota 1200 límósínur sem tókst að skrapa saman í Danmörku, Þýskalandi og Svíþjóð, éta og drekka og fá niðurgreidda kynlífsþjónustu.
Hve lágt getur mannkynið sokkið í fáránleika, heimsku og sukki !!!
Sigurður Grétar Guðmundsson, 12.12.2009 kl. 12:19
Þakka þér fyrir svarið Sigurður Grétar. Þetta er fróðlegt og ég er alveg sammála þér: Þessi ráðstefna er dæmd til að misheppnast og það er yfirgengileg frekja og viðurstyggð af vesturlöndum að krefjast þess að fyrrum nýlendur þeirra dragi saman og hreinsi þar með upp skítinn eftir þau. Öss!
Sigurjón, 12.12.2009 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.