2.1.2010 | 11:50
Krýsuvíkurkirkja
Um áramótin voru brotnar rúður í Grensáskirkju. Nú er Krýsuvíkurkirkja brunninn. Sagt er að einingis ''mannleg mistök'' eða íkveikja hafi verið orsök brunans.
Svo sannarlega hefur ekki verið um nein mistök að ræða þegar Grensáskirkja var brotin. Það var viljaverk.
Talað var um ''mikinn eril'' hjá lögreglunni í fréttum af áramótunum. Það eru skrauthvörf fjölmiðla um mikið fyllerí og vesen sem má víst ekki nefna fullum fetum.
Ekki kæmi mér á óvart þó drykkjuskapur epa dópneysla hafi tengst báðum þessum atburðum. Ótrúlegt sukk og stjórnleysi virðist hrjá þessa hrundu þjóð sem samt hefur efni á að brenna upp hundruðum miljóna til að spilla andrúmslofti borgarinnar á nýjársnótt.
Engan hef ég séð kenna trúleysingjum um að hafa komið nærri málunum. En einn vantrúarseggur vildi samt meina að einhverjir hafi kennt þeim um kirkjubrotið.
Ég tek það fram að ég kveikti ekki í kirkjunni þó slæmur sé og reikull í trúnni.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Ásakanir hafa fyrst og fremst verið óbeinar. Að gagnrýni á kirkju valdi því að fólk brjóti rúður. Það er semsagt verið að reyna að nota þessi skemmdarverk til að þagga niður í gagnrýnisröddum.
Matthías Ásgeirsson, 2.1.2010 kl. 12:04
Það hefur enginn minnst einu orði á flugelda? Það þarf nú ekki mikið til að kveikja í svona hrófi. Ein brennandi neyðarfallhlíf hefði nægt til og ekki ólíklegt að hún hafi borist þangað frá vestustu byggðinni í Hafnarfirði.
Nú er að bíða og sjá hvað dramadrottninginn Þórhallur Heimisson segir í næsta bloggi. Hann hefur jú haft tilhneigingu til að klína öllum fjandanum á trúleysingja að ósekju.
Annars brenna kirkjur eins og önnur hús. Kirkjan á Ísafirði brann hinsvegar við grunsamlegar kringumtæður og mælti Gróa á leyti að þar færu trúmenn sjálfir, sem lengi höfðu haft horn í síðu hússin og langað í nýja kirkju. Sú gamla var ekki nógu moderne, þótt hún rúmaði flest það sem þar fór fram.
Í grunninum var reist feikilega ljót monstrúm, sem minnir einna helst á skólpdælustöð eða lítið kjarnorkuver þarna smack í miðjum bænum. Verta umhverfislys í sögu bæjarins og þó var samkepppni nóg þar um.
Hún verður allavega ekki brennd svo léttilega, enda svo mikið af steinsteypu að varla var skilið eftir rúm inni í henni fyrir fólk.
Jón Steinar Ragnarsson, 2.1.2010 kl. 12:12
Ég man ekki til þess að nokkur hafi brennt kirkju hér á landi vegna hugmyndafræði. Ég man ekki til þess að nokkur hafi afmyndað kirkju eða skemmt vegna hugmyndafræði. Meira að segja þegar hakakrossar voru sprautaðir á Háteigskirkju fyrir nokkrum árum síðan, áleit presturinn (HSK) það unglingapör en ekki afleiðing hatrammar herferðar gegn kristni. Ég veit ekki hvernig hægt er að fá það út að prestur/ar kenni samtökum óbeint um, þótt þeir noti tiltekin orð (níðingsverk) bæði í samtölum við fulltrúa samtakanna og um rúðubrot.
Mér finnst slík orðanotkun frekar til merkis um fátæklega orðanotkun í tilfinningarita en nokkuð annað.
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:16
Gleðilegt nýtt ár Sigurður minn og þökk fyrir það litla sem við höfum haft að sælda á síðastliðnu ári. Gaman þætti mér, ef þú sæir þér fært að koma til Eyja á nýbyrjuðu ári. Ég er ennþá í vinnu, en aðeins fjóra tíma hvern dag, nema auðvitað um helgar. Nú er vinna mín tengt söfnunum hér í Eyjum. Ólíkt skemmtilegra en sú vinna sem ég áður vann í íþróttamiðstöðinni. Kær kveðja.
Þorkell Sigurjónsson, 2.1.2010 kl. 13:18
Sénsinn að maður færi að skemma kirkjur og annað... líklegra að trúarnötti hafi skemmt þetta til að fá samúð.. :)
Svo skulum við athuga það að ef guddi er almáttugur gaur og stoppar ekki af skemmdarverk á tilbeiðsluhöll sinni... þá er tvennt.
1 Guddi fílar ekki kirkjur
2 Guddi er ekki til.
Gleðilegt ár.
DoctorE (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 14:12
Gleðilegt ár Þorkell. Það getur vel verið að ég komi til Eyja í sumar.
Gleðilegt ár herr doktor! Rökfræði þín er óumdeilanleg. En gleymdu því ekki að hinn almáttki guð er líka algóður og er því líklegur til að taka ærlega í lurginn á vondu köllunum sem kveiktu í.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.1.2010 kl. 17:56
Gleðilegt ár síðuhaldari. Mér finnst oftast sem ég sé kominn í eitthvað þvaður eftir Samuel Beckett þegar þið byrjið trú- og ekki trúmála blaðrið. En ég get alveg lesið það án þess að komast að niðurstöðu eða hafa skoðun á því. Og jafnvel haft gaman að þrautseigju nöldrara á báða bóga, sem mala sem eilífðarvélar, þindarlausa án þrauta og þvera án útkomu. Takk fyrir það.
Yngvi Högnason, 2.1.2010 kl. 18:35
Síðuhaldari hugsar þetta eingöngu sem skemtiefni. Því getið þið trúað.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.1.2010 kl. 18:40
Það er ekki nein hætta á að Guddi hefni sín í þessu eða öðrum málum..... Fyrir það fyrsta er guð ekki til, í annan stað eru kirkjur ekkert nema skurðgoð.. sem Guddi hatar samkvæmt skáldsögunni.
Þó er viss hætta á að Þórhallur prestur snapi peninga af þjóðinni til þess að endurbyggja þetta einka afdala skurðgoð sitt... þetta er jú það hræðilegasta sem Þórhallur hefur lenti í á sinni ævi, hann getur ekki á sér heilum tekið.. eiginlega verra en icesave og allur hrunadansinn á klakanum.
Hann kom 2 á ári í þessa kirkju til að tjá fólki hversu rosalega þykjusu bossinn hans elskar alla.. ef þeir elska hann og umboðsmenn hans fyrst OG borga.
Þeir sem eru að spá í að sóa fjármunum sínum í að byggja afdala himnakofa fyrir Þórhall og ríkiskirkju skulu spá í því að þið borgið nú þegar þúsundir milljóna til þessara manna... sem segjast vera bestur vinir master of the universe..... takið þá á orðinu og gefið frekar peninga í alvöru mál.. hér er mikið um fátækt og hungrað fólk.... gefið peninga í það í stað þess að punga enn meira undir lygamerðina í þjóðkirkjunni sem hafa selt ykkur gamla erlenda þjóðsögu á tugiþúsundamilljarða í gegnum árin
DoctorE (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.