Bloggfćrslur mánađarins, janúar 2009

Burt međ ţá báđa!

Geir Haarde forsćtisráđherra hefur setiđ á fundi međ lögreglunni og áreiđanlega gefiđ fyrirmćli um ţađ hvernig taka skuli á mótmćlendum.

''Geir sagđi ađ lögreglunni bćri ađ vernda borgarana og hún vćri ađ sinna hlutverki sínu afar vel. Hann tekur ekki undir gagnrýni um ađ lögreglan hafi gengiđ of hart fram í störfum sínum.''

Hann tekur ţarna í sama streng og dómsmálaráđherra. Ţeir vita báđir ósköp vel ađ nú er lögreglan fyrst og fremst ađ vernda hagsmuni ráđandi afla, ríkisstjórnin situr nú einungis í skjóli lögregluvalds eins og Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafrćđingur bendir á. Báđir neita ţví ađ lögreglan hafi gengiđ of langt ţrátt fyrir fjölda vitnisburđa venjulegs fólks um ađ svo hafi veriđ.

Báđir gefa skít í ţjóđina. Báđir gefa skít í allt nema eigin völd. 

Enginn bjóst svo sem viđ öđru.

Báđum ţessum gaurum ber ađ velta úr sessi sem  allra fyrst.


Niđur međ valdsstjórnina!

Ţađ fór eins og ég sagđi í síđasta bloggi ađ einu ađgerđir ríkisstjórnarinnar viđ mótmćlunum, kröfu fólks um kosningar, ađgerđir gegn fjárglćpamönnum og mörgu fleiru, yrđu ţćr ađ efla lögregluna og viđbúnađ hennar. Björn Bjarnason dómsmálaráđherra segir ţađ einmitt í dag: 

''Ef ađ mótmćli verđa harđari og mótmćlendur einbeittari í ţví ađ brjóta á bak aftur valdsstjórnina ţá ţarf ađ útbúa hana ţannig ađ hún geti tekist á viđ ţađ viđfangsefni, bćđi međ tćkjum og mannafla."

Ţetta skilst alveg. Dómsmálaráđherra er ţađ efst í huga ađ berja á mótmćlendum af enn meiri hörku en var í gćr. Hann segir um ađgerđir lögreglunnar; ''ađ lögreglan hafi haldiđ afar vel á málum og neyđst til ađ grípa til ađgerđa sem hann vilji helst ekki ađ gripiđ sé til hér á landi.''

Ţađ er samdóma álit allra ţeirra sem blogguđu um ţessa atburđi í gćr, bćđi á Moggablogginu og annars stađar, svo og eftir vitnisburđi manna í fréttaviđtölum í sjónvarpi, ađ lögreglan hafi upphafiđ ofbeldi fullkomlega af tilefnislausu. 

Björn Bjarnason er ţví hreinlega ađ ljúga framan í ţjóđina um ástćurnar fyrir ađgerum lögreglunnar. Hann hlustar heldur ekki á ţjóđina af ţví ađ hann skynjar  hana ekki . Hann fyrirlítur ţjóđina en skynjar einungis hagsmuni ţeirrar valdastéttar sem hann er hluti af. Og hugur hans fer ekki framhjá neinum. Hann ćtlar ađ svara kalli ţjóđarinnar um kosningar og um einhverjar ađgerđir gegn stórglćpamönnum sem vađa uppi međ dólgshćtti og hroka međ enn meira ofbeldi. Vopnuđu ofbeldi sem getur drepiđ.

Ţetta er ţađ sem hann er ađ bođa í reynd ef mótmćlunum verđur haldiđ áfram.

Mótmćlunum mun verđa haldiđ haldiđ áfram. Ţađ skal hann vita. Mótmćlunum veđrur haldiđ áfram ţangađ til ađ hann og ađrir ţeir sem gerđu landráđamönnunum kleyft ađ fremja landráđ sín og hafa haldiđ hlífiskildi yfir ţeim í reynd til ţessa dags hafa lagt niđur völd. 

Mótmćlendur ćttu ađ setja dómsmálaráđherra algjörlega í herkví. Gera honum ókleyft ađ mćta í  vinnuna til ađ skipuleggja stríđ sitt gegn ţjóđinni.

Taka hann úr sambandi. 

Og ţannig á ađ afgreiđa alla ráđherra ríkisstjórnarinnar, hvern af öđrum. Ţingfundi hefur nú veriđ aflýst. Ţađ er gott. Mótmćlin eru farin ađ hafa alvöru áhrif. Ţađ er ekkert gagn af ţessu skrípalega ţingi. 

Ţađ má ekki gefa valdsstjórninni neinn vinnufriđ af ţví ađ viđ viljum ekki ţessa stjórn. 

Niđur međ valdstjórnina!

 


Lögreglan hefur gefiđ tóninn fyrir áframhaldiđ

Lögreglustjórinn í Reykjavík sagđi í Kastljósi ađ lögreglan hafi sýnt óvenju mikla ţolinmćđi viđ mótmćlendur hingađ til en í dag hafi ţeir gengiđ of langt.

Ţetta stangast alveg á viđ frásagnir ţeirra sem voru á stađnum, bćđi í sjónvarpinu og á blogginu, eins og til dćmis Ómars Ragnarssonar.  Ţeir segja ađ lögreeglan hafi gengiđ fram af fátćma fantaskap án raunverulegs tilefnis. 

Auđvitađ gátu menn sagt sér ţađ sjálfir ađ lögreglan myndi skapa ţessar ađstćđur og réttlćting lögreglustjórans var eins og tekin beint úr lélegustu bloggunum ef ekki bara frá ţeim allra lélegasta í ţjóđfélaginu, sjálfum forsćtisráherranum.

En lögreglan er búinn ađ gefa tóninn fyrir framhald mótmćlanna. Ţau verđa hörđ og ofbeldisfull og jafnvel blóđug. 

Látum ekki blekkjast af orđum lögreglustjórans um ađ lögreglan sá einungis ađ gćta laga og réttar. 

Lögreglan er búinn ađ sýna sitt rétta andlit.

Ţó hlutverk hennar sé ađ halda uppi lögum og reglum međan allt leikur í lyndi í ţjóđfélaginu ţá breytist hlutverk hennar viđ ađstćđur eins og ţćr sem nú ríkja. Hún verđur ţá fyrst og fremst varđskjöldur  hinna óhćfu stjórnvalda og mun beita valdi sínu vćgđarlaust í ţeirra ţágu.

Almenningur á ekki ađ láta ţessi ofbeldisöfl kúga sig.

Hann á ađ margeflast í mótmćlunum.

Láta hart mćta hörđu. 

En ekki mega mótmćlendur fyllast bjartsýni og halda ađ ţađ verđi neinn leikur ađ fá stjórnina til ađ gera einhverjar breytingar. Ţađ sem stjórnin mun gera á nćstu dögum verđur fyrst og fremst ţađ  ađ efla viđbúnađ lögreglunnar og ef fram heldur sem horfir mun koma til meiri átaka, menn munu verđa handteknir og ákćrđir, ekki fyrir brot á lögreglusamţykkt heldur fyrir meint alvarlegri brot og ţeir munu verđa dćmdir og settir í fangelsi. Bćđi lögreglan og dómstólar munu ganga í liđ međ valdinu ţegar  á reynir. Ţađ er eitthvađ ađ gerast, eitthvađ óskipulegt og sprengjufimt, eittvađ sem á sér enga hliđstćđu í í íslensku ţjóđlífi en á uppsprettu í ţjóđardjúpinu. Valdastéttin er farinn ađ óttast. Og hrćdd valdastétt er til alls vís. Ţessi ríkisstjórn mun ekki lyppast niđur. Hún mun fyrst og fremst verja sig og ţau hagsmunaöfl sem hún er fulltrúi fyrir. Hún mun ekki hika viđ ađ reyna ađ kćfa mótmćlin niđur međ hörku. 

Mótmćlendur verđa ađ gera sér grein fyrir ţessu. Ţeir eiga ađ halda  áfram mótmćlum allan sólarhringinn dögum saman, skipuleggja mótmćlavakt sem aldrei linnir, vera alltaf međ hávađa,  teppa götur sem ráđherrar fara um, varna ţeim ađ komast inn í stjórnarráđin eđa út úr ţeim. Og mótmćlendur eiga ađ mćta međ grímur ţví ástćđa er fyrir einstaklinga  í mótmćlum ađ óttast lögregluna. Hún mun héđan í frá einskis svífast ţví hún er ekki lengur gamla góđa löggan heldur hefur breyst í raunverulega lífvarđarsveit ríkisstjórnarinnar. 

Ađgerđir lögreglunnar í dag sýna ţađ.

Mótmćlendur eiga engan griđ ađ gefa, ţeir eiga ađ mótmćla allan sólarhringinn i marga daga stanslaust, skiptast á vöktum og gefa ekki eftir.

Fólk hefur engu ađ tapa lengur en allt ađ vinna ađ koma ţessari spillingarstjórn frá völdum.   

 

 


2009

picture_019.jpg

Gleđilegt ár! Ég ćtla ađ halda mér saman á ţessu ári!


« Fyrri síđa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband