Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Sjötíu ára gamalt hitamet

Mesti hiti sem mælst hefur í september í Reykjavík er 20,1 stig frá þeim þriðja árið 1939. Þetta er elsta hitametið að sumri í borginni og næst elsta metið yfir alla mánuði ársins. Eldra er febrúarmetið frá 1935.

Þetta er í eina skiptið sem tuttugu stiga hiti hefur mælst í Reykjavík í september. 

Veður þetta var beint framhald af veðrinu sem sagt er frá í næstu bloggfærslu hér á undan þegar mældist enn meiri hiti í Reykjavík síðasta dag ágústmánaðar

Austanátt var í lofti 3. september og skýjað og sólfar lítið milli skýja, aðeins tvær klukkustundir. Vindur var fremur hægur, 3 vindstig frá morgni og frameftir degi en lægði með kvöldinu og á miðnætti var komið logn. Ekki kom dropi úr lofti.

Nóttin hafði verið hlý, hitinn fór ekki niður fyrir 14,4 stig. Strax klukkan átta um morguninn var hann orðinn 16,2 stig en 19,0  á hádegi og 19,2  klukkan 17. Einhvern tíma þarna á milli hefur hitinn orðið mestur.

Hlýtt var um allt land en ekki síst á suður og vesturlandi. Á Hvanneyri fór hitinn í 22,7 stig, 22,3 í Síðumúla í Hvítársíðu, 20,9 á Þingvöllum og 20,0 stig á Hæli í Hreppum og Víðistöðum við Hafnarfjörð. Í Borgarfirði hefur aldrei mælst jafn mikill hiti í september en hins vegar á suðurlandsundirlendi.

Þessi hlýindi, sem hófust síðustu dagana í ágúst, héldu lengi áfram. Áður hefur verið sagt frá 31. ágúst en daginn eftir mældust 24,6  stig á Sandi í Aðaldal, sem er septembermet þar, 23,4  á Húsavík og 22,0 stig á Akureyri sem þar er septembermet.

Í Reykjavík mældist hitinn 18,0 stig 1. september en daginn eftir 19,0. Eftir metdaginn  þ. 3. mældist mesti hitinn 15 stig í tvo daga en síðan hlýnaði aftur og var hámarkið 17,7 stig þ. 6.(en þá náðu hitarnir hámarki á norðausturhorninu og var þar yfir tuttugu stiga hiti) og næstu þrjá daga 17,4, 16,5 og 17,0 stig. Hlýtt var um allt land alla dagana en upplýsingar um daglegan hita á  næstum  því  öllum veðurstöðvum eru af skornum skammti, aðeins þegar allra hlýjast varð.

Eiga þessir hitar sér enga hliðstæðu í septembermánuði í Reykjavík. Eftir þann 10. kólnaði nokkuð en var þó áfram hlýtt og þegar upp var staðið var mánuðurinn annar af tveimur hlýjustu septembermánuðum sem mælst hafa á landinu.    

Enn lengur héldu samt hlýindi áfram á Íslandi og linnti ekki fyrr en 10. nóvember. Þá höfðu ríkt dæmalaus hlýindi alveg frá því í mars. Ekkert ár skartar til dæmis eins mörgum hitabylgjum á landinu sem 1939.

Daginn sem mestur septemberhitinn var í Reykjavík lýstu Bretar og Frakkar yfir stríði á hendur Þjóðverjum.  

Árið 1939 er orðið goðsögn í veðurfari landsins og það er merkileg tilviljun að það hafi einmitt verið hið sögulega ár þegar síðari heimsstyrjöldin hófst og upphaf stríðsins hafi í ofanálag verið sveipað mestu hitum sem í september hafa komið á Íslandi.

 

 

 

 

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband