Bloggfærslur mánaðarins, desember 2014
13.12.2014 | 13:45
Kulda og illviðratíð
Umskiptin sem gengu í garð í desember frá því sem var í nóvember hafa víst ekki farið framhjá neinum.
Meðalhitinn í Reykjavík það sem af er mánaðar er 2,1 stig undir hinu kalda meðaltali 1961-1990 en 1,0 undir því á Akureyri.
Alls staðar á athugunarstöðvum er alhvít jörð nema í Stykkishólmi, á Miðfjarðarnesi og Eyrarakka þar sem jörð er flekkót. Mest snjódýpt er 60 cm við Mývatn.
Nánari daglegar upplýsingar eru í fylgikskjalinu.
Mánaðarvöktun veðurs | Breytt 1.1.2015 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2014 | 12:58
Íbúar við Höfðatorg lagðir í hættu
"Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við miklum vindstrengjum við Höfðatorg og í Borgartúni við háhýsin sem þar eru. Vindstrengirnir eru það miklir að þeir geta verið hættulegir gangandi vegfarendum og þeim sem eru á reiðhjólum. Fólk er varað við að vera þarna á ferðinni."
Svo segir í frétt Rkisútvarpsins.
En hvað með íbúa við Höfðatorg?
Eftir að hótelið var reist við torgið eru oft miklir vindstrengir, jafnvel í blíðuveðri, sem aldrei voru áður, vestur eftir öllu Bríetartúni og reyndar allt í kringum Höfðatorg. Að ekki sé nú minnst á hinn skrímslaturninn.
Íbúarnir verða auðvitað að sinna sínum erindum og kaupa í matinn og því um líkt. Þeir eru því neyddir til að leggja sig í hættu á stundum.
Fleiri turnar eru fyrirhugaðir á Höfðatorgi.
Hvernig verður ástandið þegar þeir hafa allir risið?
Og síðast en ekki síst: Finnst yfirvöldum bara sjálfsagt að leyfa verktötum að byggja mörg háhýsi sem hvert og eitt, hvað þá mörg saman, skapar vindstrengi sem geta verið gangandi íbúum í nágrenninu verulega hættulegir nokkrum sinnum á vetri miðað við það hvernig íslenskt veðurfar hagar sér?
Hafa skipulagsyfirvöld ekkert hugsað út í þetta? Eru þar eintóm flón sem gera sér enga grein fyrir því hvernig háhýsi breyta vindadfari umhverfis sig á nokkuð stóru svæði?
Og hvað nú ef einhver íbúi á leið heim til sín úr matvörubúðinni fýkur út í hafsauga?
Ætlar forstjóri Eyktar eða skipulagsfulltrúi borgarinnar að bæta skaðann ef hann brotnar ofan frá og niður úr?
Er ekkert mannvit í skipulagi þessa ólánsreitar sem Höfðatorg er?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2014 | 13:18
Hverjar eru launkakröfur lækna
Fjármálaráðherra, opinber embættismaður sem ber mikla ábyrgð, hefur gefið sterklega í skyn, nefnt prósentuna beinum orðum, að læknar krefjist launahækkana upp á 50%. Formaður samninganefndar lækna neitar því.
Ekki er auðvelt að trúa því að fjármálaráherra ríkisstjórnar, hvaða skoðun sem stjórnmálaandstæðingar hans kunna að hafa á honum, sé að fara með ábyrgðarlaust fleipur eða ósannindi fyrir alþjóð um jafn viðkvæma og afdrifaríka kjaradeilu fyrir almenning varðandi þær aðstæður þar sem hann er veikastur fyrir í bókstaflegri merkingu.
Það stendur því upp á lækna að leggja spilin á borðið.
Það er einfaldlega sjálfsögð kurteisi og tillitssemi við þjóðina og sjúklinga að læknar kunngeri um launakröfur sínar svo almenningur sem verður verst úti í deilunni viti hverjar þær eru.
Getur hugsast að læknar óttist að missa samúð 80% almennings ef þeir upplýsa um þær?
Bloggar | Breytt 10.12.2014 kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2014 | 11:10
Snjór um land allt
Nú hafa þau umskipti orðið eftir snjóleysið í nóvember að alhvítt er á öllum veðurathugunarstöðvum nema hvað flekkótt er talið í Borgarfirði, Vopnafirði, Hornafirði - og Grímsstöðum á Fjöllum, merkilegt nokk! Mest er snjódýptin talin 104 cm á Lamvabatni á Rauðasandi, tala sem maður í fljótu bragði efast þó um.
Fylgiskjalið er á sínum stað.
Mánaðarvöktun veðurs | Breytt 6.12.2014 kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006