Bloggfærslur mánaðarins, september 2014
26.9.2014 | 18:45
Blíðviðrisdagar seint í september
Athugið: Fylgiskjalið, sem greinir frá daglegu veðri, er áfram virkt þó ekki bætist við nýjar bloggfærslur.
Í gær, 25. september, komst hitinn ekki hærra en 9,4 stig í Reykjavík (9,6 í dag). Það er fyrsti dagurinn sem hitinn nær ekki tíu stigum siðan 19. maí. Þetta er aðeins betra en í langtíma meðallagi því síðasti dagurinn að meðaltali síðan 1920 í Reykjavík með tíu stiga hámarkshita er 21. og 23. september (22. hafði það af).
Nú má segja að hausti að.
Þrátt fyrir það koma alloft hlýir dagar síðasta þriðjunginn í september. Þá er oftast skýjað en góðir sólardagar með hlýindum eru sjaldgæfir því aðal sólaráttin í Reykjavík er vitaskuld af norðri og hún vill vera köld þegar orðið er þetta áliðs sumars. Vel hlýir sólardagar eru samt ekki óþekktir seint í september.
Frá 1920 er meðalhiti allra síðustu tíu dagana í september í höfuðborginni 7,0 stig en kólnar jafnt og þétt á hverjum degi, meðaltal hámarkshita 9,5 stig en meðalfjöldi sólskinsfjölda 34,5 stundir. Fyrir það sem af er þessari öld eru samsvarandi tölur 7,4, 9,8 og 35.
Ef við miðum við 13 stiga hámarkshita með tíu stunda sólskini fáum við eftirfarandi daga í leit okkar að sólríkum blíðviðrisdögum síðasta þriðjunginn í september í Reykajvík, fyrst er árið, þá dagsetningin og loks sólarstundirnar.
2006: 21. 13,0°, 10,2 sólarstundir.
2000: 28. 13,9°, 10,1 st.
1999: 21. 16,4°, 10 st. Glæsilegur dagur!
1993: 21. 13,9°, 10,5 st.
1967: 26. 13,2°, 10 st. Þetta var fyrsti september sem ég fylgdist með veðri. Þarna komu þrír dagar í röð með tíu stunda sól eða meira, 25. með 10,6 sólarstundir (hámarkshiti 11,4°), sá 26. og loks 27. með 10,8 sólskinsstundir (hámarkshiti 10,3°). Þann 26. var hámarkið um klukkan 18. Ég var þá niður við tjörn í blíðunni. Og ég hef aldrei gleymt þessum degi og hann er fyrir mér hinn erkitýpiski síð september blíðviðrisdagur.
Mikið sólskin er því miður oftast ávisun á kulda seint í september í Reykjavík. Sólríkustu síðustu tíu dagarnr í þessum mánuði voru 1975 þegar sólin skein í einar 86 stundir en hann er líka fjórði kaldasti þessa tíu daga (eftir 1974, 1954 og 1969). Já, næst sólríkustu síðustu tíu septemberdagarnir voru 1974, 75 klukkustundir, og það má fullyrða að þeir séu einmitt þeir köldustu alveg frá því Veðurstofan var stofnuð, 2,2 stig að meðaltali. Sólríkasti endasprettur september á þessari öld var 2005 þegar sólin skein í 62 stundir en fyrir þessa síðustu tíu daga er hann einmitt sá kaldasti það sem ef er öldinni þá daga, 3,1 stig.
En áfram með blíðviðrisdaga í Reykjavík seint í september. Tíu stunda sólskinsmælikvarðinn er auðvitað nokkuð strangur svo síðla árs. Stundum koma vel hlýir dagar á þessum tíma þegar sólar nýtur talsvert, fyrir nú utan þá hlýju sólarlausu eða sólarlitlu, og fólk mun upplifa sem sannkallaðan sumarauka þó sólin skíni ekki í heilar tíu stundir.
Þar er efst á blaði síðasti septemberdagurinn árið 1958. Þá komst hitinn í 16,9 stig og sólin skein í 8,4 stundir. Þetta er mesti hiti sem nokkru sinni hefur mælst í Reykjavík svo seint á sumri. Hitinn var enn 15,7 stig klukkan 18 en þá er skipt milli sólarhringa hvað hámarkshita varðar á Veðurstofunni. Og svo vægast sagt ólánlega vildi þá til að sá hiti er enn þann dag í dag talinn mesti hiti sem mælst hefur í höfuðborginni - í október! En síðustu fimm dagararnir í september 1958 voru afar hlýir en þessi var samt toppurinn og sá eini sem sólin lét sjá sig að ráði.
Næst síðasta daginn í september 1992 fór hitinn í 16,8 stig í Reykjavík og sólin skein í næstum því fjórar stundir. Það var alltaf sól annað kastið og mönnum fannst þetta sjaldgæfur dýrðardagur.
September 1935 var óvenjulegur í Reykjavík fyrir það að vera bæði vel hlýr og nokkuð sólrikur, miðað við september. Síðasti hlutinn var engin undantekning frá mánuðinum í heild og þann 28. fór hittinn 14,6 stig og sólin skein í næstum því sjö klukkustundir.
Varla þarf svo að taka það fram að sannkallaðir blíðvirðrisdagar síðustu tíu dagana í september eru öllu tignarlegri fyrir norðan og austan heldur en hér syðra.
En stöðuna í september núna má sjá í fylgiskjalinu.
Mánaðarvöktun veðurs | Breytt 22.11.2014 kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2014 | 21:05
Eini 20 stiga septemberdagurinn í Reykjavík
Þennan dag, 3. september, árið 1939 mældist mesti hiti sem mælst hefur í Reykjavík í september, 20,1 stig. Og er þetta í eina skiptið sem hiti í höfuðstaðnum hefur mælst 20 stig eða meira í september. Lágmarkshiti næturinnar fór ekki lægra en í 14,4 stig. En sólarstundir voru aðeins tvær.
Á þessum degi mældist svo hitinn á Hvanneyri 22,7 stig og 22,3 í Síðumúla og er það mesti septemberhiti sem mælst hefur í Borgarfirði fram á þennan dag. Á suðurlandi fór hitinn í 20,9 stig á Þingvöllum og 20,0 á Hæli í Hreppum.
Mesti hiti á landinu mældist hins vegar á Sandi í Aðaldal, 23,0 stig en á Akureyri mældust 21,0 stig. Tuttugu stiga hiti eða meiri mældist á 11 veðurstöðvum af 31 sem voru með hámarksmæla eða um 35% sem er ansi gott á septemberdegi. Vandræðastöðinni Lambavatni á Rauðsandi er hér sleppt en hún skráði 25,0 stig sem ekki er hægt að taka alvarlega.
Lægð var suðvestur af landinu en hæð yfir norðurlöndum sem beindi hlýju lofti til landsins. Fremur hæg austan eða suðaustanátt var, þurrt eða úrkomulítið vestan til og nokkuð bjart yfir norðvestanlands og í innsveitum fyrir norðan en mikil rigning á suðusturlandi og austfjörðum. Næsta morgun mældist úrkoman t.d. 34,3 mm á Teigarhorni við Berufjörð, 31,3 mm á Fagurhólsmýri og 11,6 á Seyðisfirði.
Þessi hlýi dagur var hluti af mjög hlýrri syrpu sem hafði byrjað 31. ágúst og hélst í svo sem viku.
September 1939 er svo í heild sá hlýjasti sem mælst hefur í Reykjavík og annar af þeim tveimur hlýjustu á landinu. Meðalhitinn í Reykjavík var 11,4 stig eða jafn þeim ágúst sem nú var að líða, 2014.
Varla þarf svo að minna á það að þennan dag lýstu Bretar og Frakkar Þjóðverjum stríð á hendur en þeir höfðu ráðist inn í Pólland 1. september.
Mánaðarvöktun veðurs | Breytt 25.9.2014 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006