Bloggfærslur mánaðarins, maí 2017

Að hlýindunum loknum

Hlýindin sem voru dagana 3.- 8. maí voru með þeim allra mestu sem gerast eftir árstíma.

Ýmis dagshitamet fyrir meðalhita og hámarkshita voru til dæmis sett í Reykjavík og á Akureyri og miklu viðar. Dagshitamet merkir að einhvern ákveðinn mánaðardag hafi ekki mælst meiri hiti þó hann gæti hafa mælst hærri einhverja daga fyrr eða síðar í mánuðinum. Hér verður getið um nokkur þessara hitameta og eru gömlu metin höfð innann sviga.

Þann 3. maí kom dagshitamet fyrir meðalhita í Reykjavík frá 1936, 11,9 stig (9,9° 1964).Daginn eftir var aftur slíkt dagshitamet, 11,2 stig (9,3° 1939). Dagshitamet fyrir hámarkshita komu ekki í Reykjavík að þessu sinni. 

Dagshitamet að meðalhita frá og með 1949 komu á Akureyri þann annan, 12,3 stig (10,4° 1980), þann þriðja,15,7 stig (11,0° 2000) og þann fjórða, 13,1 stig (12,3° 1975). Meðalhitinn þann þriðja er mesti meðalhiti nokkurs sólarhrings svo snemma vors á Akureyri en næstur  kemur 26. apríl 1984 með 14,7 stig. Þriðji maí setti einnig dagshitamet fyrir hámarkshita á Akureyri, 21,2 stig, en einu sinni fyrr að vori hefur mælst meiri hámarkshiti þar, 21,5 stig. Var það 29. april 2007 en mjög hlýir dagar komu í lok þess mánaðar. Þann 4. maí núna var einnig met fyrir hámarkshita á Akureyri, 19,0 stig (18,0°,2010). 

Það var líka hlýtt fyrstu tvo dagana og meðalhiti fyrstu 8 daga mánaðarins var í Reykjavík 8,65 stig en 9,82 stig á Akureyri og 8,33° stig í Stykkishólmi. Á Akureyri og Stykkishólmi er það met fyrir þessa daga en fáein ár hefur verið hlýrra í Reykjavík.     

Þó öll kurl séu ekki komin til grafar má telja nokkurn veginn víst að 2. og 3. maí hafi verið þeir hlýjustu að meðalhita á landinu síðan Veðurstofan var stofnuð 1920. Meðalhiti allra sjálfvirkra stöðva var 12,0 þann þriðja og 10,3 stig þann fjórða. Fyrri dagurinn er sá hlýjasti sem komið hefur svo snemma vors á landinu og slær þá út 22. april 2003 sem var með 11,2 stig að meðalhita. Þriðji mai var hins vegar aðens kaldari en 28. og 29. arpíl 2007 og að því er virðist sjónvarmun kaldari en 6. mai 2001. Þessir hlýju dagar sem komu núna í mai eru sem sagt í toppflokki hlýinda sem búast má við eftir árstíma. Já, eiginlega toppurinn! Meðaltal hæsta dagsahita á landinu öllu 1.-8. maí er hvorki meira en 20,0 stig sem er miklu meira en hægt er að finna allt frá stofnun Veðurstofunar fyrir þá daga. Þess ber auðvitða að gæta að veðurstöðvar eru miku fleiri en nokkru sinnni fyrr. Þetta er samt alveg sláandi og einstakt.

Hvað tuttugu stiga hita eða meira varðar einhvers staðar á landinu voru sá þriðji og fjórði afkatamestir. Báða dagana mældu 14 veðurstöðvar 20 stiga hita eða 12,9 af hundraði alla stöðva.Seinni daginn fór hitinn i 23,4 stig á glænýrri sjálfvirkri stöð í Bakkagerði á Bogarfirði eystra. Og ef við tökum hana alvarlega á sínum fyrsu skrefum, ef svo má segja, er þetta mesti hiti á landinu sem komið hefur svo snemma vors. Næst eru 23,0 stig á Ásbyrgi,furðudaginn 29. apríl 2007. Það er svo einmitt Ásbyrgi sem var með næst mesta hitann í okkar hlýindasyrpu núna en þar mældust 22,8 stig 3. maí (reyndar líka í Bjarnarey og er þar maímet). Hámarkshitinn þann þriðja ruddi burtu fyrra dagshitameti á landinu (20,4° á Hallormsstað 2000) en hitinn þann fjórða sló út fyrra met þann dag (21,7° í Skaftafelli 2010). Reyndar var dagshitametið líka slegið þann fimmta þegar 19,5 stig mældust á Reykjum í Fnjósakdal (19,4° á Hallormsstað 2010).           

Já og dagshitametið þann sjötta var einnig slegið þegar Hjarðarland (kvikasilfursmæirinn) mældi 20,6 stig (20,0° Neskaupstaður 2001). Og það er ekki aðeins dagshitamet fyrir hámarkshita á landinu heldur er þetta fyrsta dagsetning að vori á suðurlandsundirlendi sem tuttugutigahiti eða meira mælist þar. Þann sjöunda kom enn eitt dagshitametið þegar Reykir i Fnjóskdal mældu 20,8°(20,2° Teigarhorn 1937). Þann áttunda komst svo hitinn í 18,0 stig á Kirkjubæjarklaustri sem ekki er þó neitt met. Sama mánaðardag árið 2006 mældust hins vegar 22,4 stig á Hæli í Hreppum og daginn eftir 22,0 á Hjarðarlandi. Aðeins á eftir fyrsta tuttugustigadeginum á svæðinu núna! 

Fjölmög dagshitamet og mánaðarmet voru sett á veðurstöðvum með mislanga athugunarsögu þessa daga. En hér verður látið staðar numið.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband