Hausinn fauk af hálfbróður Saddams

Nú eru þeir búnir að hengja hálfbróðir Saddams  ásamt einhvejrum öðrum glæpagaur. Þetta átti að vera ljúfmannleg fyrirmyndar aftaka, ólík þeirri gömlu og trylltu, en ekki tókst þó betur til en svo að hausinn fokkaðist af strjúpanum á hálfbróðurnum og hefur örugglega  rúllað langa leið frá gálganum með blóðgusum bunandi all gassalegum. Svo hefur einhver hlaupið í spreng á eftir hausnum og tekið hann upp á hárinu og gert við hann ég veit bara ekki hvað.

Á hvaða tímum lifum við eiginlega? Þessar tvær aftökur eru með meiri ólíkindum en nútímamenn hafa nokkru sinni upplifað eða látið sér detta í hug.

Og svo er guði gefin dýrðin!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Kannski aftökurnar á þessum mönnum - einkum athyglin sem þær hafa vakið - geti orðið til þess, að stjórnvöld heimsins hætti að taka fólk af lífi. En - þá minnist maður þess, að fyrri heimsstyrjöldin átti að vera stríðið til að binda endi á öll stríð. Þegar mannskepnan er annars vegar ...

Hlynur Þór Magnússon, 15.1.2007 kl. 13:20

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Við skulum já vona að þessum ósköpum fari að linna.

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.1.2007 kl. 13:30

3 Smámynd: Árni Matthíasson

Það þykir mér eins líklegt að Barzan Ibrahim Hassan al-Tikriti hafi sjálfur tekið upp höfuð sitt og jafnvel haldið á brott; dæmi eru um annað eins, til að mynda reið Græni riddarinn á brott með höfuð sitt undir hendinni, en þeir fóru gangandi hver á sinni öldinni Cú Roí mac Dáire konungur Munster, Baba Deep Singh Ji hetja sikha, heilagur Helier og heilagur Denis meðal annarra. Mjög vinsælt minni í kristnum draugasögum.

Árni Matthíasson , 15.1.2007 kl. 20:43

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ja, hvur andskotinn! Og þetta, aftakan og allt heila klabbið, er víst það sem kallað er gálgahúmor! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.1.2007 kl. 21:57

5 identicon

Húrra segi ég nú bara!

Ívar Kjartansson (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 11:12

6 identicon

Það er áhugavert að velta fyrir sér hvernig umræðan hefur þróast í kjölfar aftöku Saddam. Hún hefur breyst frá því að snúast um dauðarefsingar og hve rangar þær eru í umræðu um aðferðafræði við aftökur og að aftaka Saddam hafi verið  algerlega "ómannsæmandi". Þar sem böðlarnir hans Saddam tóku aftökuna upp þá var hægt að velta sér uppúr því sem minna máli skipti, aðferðinni við aftökuna frekar en því að aftökur eru alltaf óréttlætanlegar. Samkvæmt þesari umræðu þá má ekki hæða þann sem taka á af lífi því þá sýnum við honum óvirðingu...en við megum taka frá honum það sem heilagast er, lífið sjálft. Ég get ekki að því gert en mér finnst þetta frekar öfugsnúið

bv (IP-tala skráð) 17.1.2007 kl. 09:06

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Algjörlega sammála. Þetta er auðvitað aðalatriðið þó þessar grótesku aftökuaðfarir veki sérstaka athygli. Mér finnst líka auðvirðilegt þegar ýmsir stjórnmálamenn heimsins segjast vera á móti dauðarefsingum en bæta við að þeir virði rétt Íraka til að dæma eftir sínum lögum.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.1.2007 kl. 11:41

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Einhvers staðar las ég það að haus sem með einhverjum hætti er losaður af búk manns, (kannski dýrs líka datt mér nú sjálfri í hug núna) hugsi og sjái í allt að tuttugu sekúndur á eftir.
Sem betur fer geta svona aflosaðir hausar víst ekki talað eða gefið frá sér nein hljóð.
Alla vega hef ég ekki heyrt nein dæmi þess, en þú Sigurður? 

Svava frá Strandbergi , 17.1.2007 kl. 22:03

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Af einhverjum dulardfullum ástæðum er þessi færsla að troða sér fram fyrir hinar þó hún sé skriufað daginn sem hausinn fór af Brazan Hassan al-Tígris eða hvað hann nú hét. Líklega er þetta afturganga hans sem er að glettast við oss.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.1.2007 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband