Trúarjátning

Í eðli mínu er ég ofurstrangur og ósveigjanlegur bókstafstrúarmaður en hef bara aldrei fundið réttu bókina.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dingli

File:Dragons of Eden.jpg 

Prófaðu þessa til að byrja með.

Dingli, 19.5.2010 kl. 01:30

2 Smámynd: Kama Sutra

Prófaðu bókina Kama Sutra.  Ég get lofað instant árangri.

Kama Sutra, 19.5.2010 kl. 01:52

3 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Þú þarft ekki að finna nema hinn eina sanna bókstaf. Það hlýtur að vera auðveldara en að leita nálar í heystakk.

Líkt og að finna hinn eina sanna tón.

Sigurbjörn Sveinsson, 19.5.2010 kl. 10:17

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Líst vel á þessa bók, Carl Sagan alltaf góður.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.5.2010 kl. 12:04

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En Kama Sutra er einhver klámbók!

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.5.2010 kl. 12:04

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég mæli einnigmeð Sagan. Demon Haunted World, er t.d. lesning, sem má hafa sem ritningu.  Nú eða þessi hérna eftir Ken Humphrey.

http://ecx.images-amazon.com/images/I/61787HZKZHL._SL500_AA300_.jpg

Jón Steinar Ragnarsson, 19.5.2010 kl. 13:07

7 Smámynd: Guðmundur Pálsson

Bækurnar eru margar en maður þarf aðeins að lesa vel fáeinar bækur. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt. Finndu eitthvað sem stenst tímans tönn og tísku mannanna.

Guðmundur Pálsson, 19.5.2010 kl. 15:20

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er nú veikastur fyrir veðurbókum! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.5.2010 kl. 16:06

9 Smámynd: Kama Sutra

Halló!!  Kama Sutra er erótík en ekki klám!

Kama Sutra, 19.5.2010 kl. 18:24

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Við Mali erum nú svo strangir og siðsamir eftir bókinni sem við eigum eftir að finna að við setjum hiklaust samasemmerki á milli erótíkur og kláms. Oj og mjáóó!!

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.5.2010 kl. 18:51

11 Smámynd: Kama Sutra

Aumingja Mali.  Ég dauðvorkenni unglingspiltinum að eiga svona strangan pabba!

Sem þýðir bara eitt - hann fær kynlíf á heilann.    Allt sem er bannað verður svo spennandi...

Kama Sutra, 19.5.2010 kl. 20:07

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég lít á kynlíf sem örgustu synd og hafði því vaðið fyrir neðan mig til að koma í veg fyrir að unglingurinn myndi ánetjast þeirri ljótu synd og lét því gelda kattpiltinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.5.2010 kl. 22:38

13 Smámynd: Kama Sutra

Ái, mig verkjar í eistun - þótt ég sé kelling!  Aumingja, aumingja Malalingurinn!

Kama Sutra, 21.5.2010 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband