4.9.2010 | 18:44
Nýju septemberhitametin í dag
Í dag voru allmörg hitamet fyrir september sett á landinu á mönnuðum veðurstöðvum. Þau eru þessi, í svigum eru gömlu metin og hve nær þau mældust og þar fyrir aftan er árið þegar fyrsti septemberinn var athugaður.
Hólar í Dýrafirði 20,2 (19,0, 2. 2010, - 1993). Þetta er í fyrsta sinn sem 20 stiga hiti mælist á Vestfjörðum í september á mannaðri veðurstöð.
Æðey 19,9 (18,3, 2. 2010, - 1954).
Hraun á Skaga 20,0 (17,6, 8. 2004, - 1956).
Akureyri 23,6 (22,0, 1. 1939, 19. 1941- 1882).
Mánárbakki 24,7 (21,7, 4. 1996, 10. 2002, - 1963).
Staðarhóll 23,1 (21,7, 2. 2010, - 1962).
Torfur í Eyjafjarðardal 23,1 (20,7, 1. 2010, - 1998).
Skjaldþingsstaðir í Vopnafirði 21,6 (21,4 23.-24. 1997, - 1994, 25,3° mældust á Vopnafirði þ. 1. 1981).
Þetta er nú all nokkuð. Og það var glaðasólskin á norðurlandi.
Á sjálfvirku stöðinni á Blönduósi mældust 23,0 stig en svo mikill hiti hefur aldrei mælst á Blönduósi í september, mest á mönnuðu stöðinni 18.8 þ. 5. 1958. Mælingar nokkuð stopular.
Aðrar athyglisverðar sjálfvirkar mælingar:
Möðruvellir í Hörgárdal 24,9 stig.
Straumnesviti 21,0.
Grímsey 21,5 (á mönnuðu stöðinni mældust mest 17,0 stig meðan hún var í gangi).
Siglufjörður 20,8.
Húsavík 23,9 (á mönnuðu stöðinni 1925-1994 mældust mest 23,1, þ. 1. 1939).
Reykir í Fnjóskadal 22,5.
Végeirsstaðir í Fnjóskadal 23,6.
Raufarhöfn 22,8 (á þeirri mönnuðu 1949-2008 mest 22,0 þ. 12. 1949).
Tálknafjörður 19,8.
Ísafjörður 19,6.
Mestu hlýindin hafa ekki náð austur á landið nema hvað 21 stig mældust í Skaftafelli.
Á suðurlandi var líka nokkuð hlýtt þó rosi væri, 17,5 á Hjarðarlandi og 16,5 í sjálfri Reykjavík.
Íslandsmetið í september stendur enn, 26,0 stig á Dalatanga þ. 12. 1949. Lesa má um þetta hér.
Enn hefur hitinn ekki komist í 25 stig í sumar á landinu og er það merkilegt miðað við það sem á hefur gengið. Dagurinn í dag er reyndar hlýjasti dagur sumarsins yfir landið þó komið sér fram í september.
Hér má sjá í fylgiskjali veðurmet á mönnuðum íslenskum veðurstöðvum.
Og vöktunin á september er svo á sínum stað.
Viðbót: Meðalhitinn á Akureyri hefur ekki verið hærri nokkurn dag í september síðan a.m.k. 1949 og líklega miklu lengur. Hann er 17,9 stig. Næst hlýjastur er 23. 1997 sem var 17,0 stig og tiltölulega hlýrri miðað við árstíðina. Meðalhitinn 28. ágúst 1976 var hins vegar 19,6 stig. Dagurinn er reyndar líka að meðalhita sá hlýjasti í Reykjavík fyrir 4. september í a.m.k. svona 75 ár, 14,7 stig. Hlýrra var þó nær örugglega fyrstu þrjá dagana í september 1939 og 31. ágúst það ár gæti ég trúað að meðalhitinn hafi verið í kringum 15,7 stig í Reykjavík. Og loks held ég að þessi dagur í dag hafi kannski mesta meðalhita á öllu landinu í september frá 1949, sé enn hlýrri en sá 12. 1949.
Hitinn sem mældist á Skjaldþingsstöðum og er skráður þ. 4. mældist í raun og veru eftir kl. 18 en fyrir miðnætti þ. 3. Áður var komið nýtt septembermet í Litlu-Ávík 18,7, þ. 2., mælt frá 1995.
Önug og verulega viðskotaill viðbót: Ansi oft koma ekki háloftaathuganir frá Keflavík. Á blaðinu þar sem þær birtast með fallegum gröfum á vefsíðu Veðurstofunnar er ofarlega til vinstri á síðunni listi (Sounding Indexes ) með skammstöfunum með stórum stöfum. Þær segja frá því sem háloftaathugunin er að mæla. En engar skýringar eru á síðunni um þetta. Þær þyrftu að koma úr því listinn er þarna birtur á annað borð.
Hér má sjá skýringar.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Veðurfræðingurinn í sjónvarpinu talaði um fremur hlýtt veður fyrir norðan þegar þar geisa meiri hitar víða en dæmi eru um í september. Á mbl. is er frétt þar sem segir að hitinn á Akureyri sé hátt upp í 20 stig (eins og það sé eitthvað sérstakt) og fréttin er samt skrifuð eftir að Veðurstofan birti að væti 23 stiga hiti á Akureyri kl. 15. Hvað eru menn eiginlega að hugsa? Eru þeir ekki með sjálfum sér?
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.9.2010 kl. 19:59
Bestu veðurfréttirnar fær maður hér á blogginu, það er ljóst.
Það þarf endilega taka það upp aftur að sýna Íslandskort dagsins í veðurfréttum Sjónvarpsins. Sérstaklega á svona dögum.
Emil Hannes Valgeirsson, 4.9.2010 kl. 20:56
Snöggur varstu að taka saman þetta fína yfirlit. Það tókst á endanum í þessari lotu að koma hitanum í 20°C á Vestfjörðum. Eins þykir mér hitinn í Grímsey með nokkrum ólíkindum og ef ég man rétt eru 21,5 gráða nærri því sem mest hefur mælst í Grímsey (abs. met).
Sólarhringshiti Akureyrar í dag er 18,08°C. Það hlýtur að vera með því mesta, en þú er fljótur að finna samanburð í töflunum þínum.
ESv
Einar Sveinbjörnsson, 4.9.2010 kl. 22:46
Á Kiðafelli í Kjós mældist í gær 4.9.2010 kl 09:48 18.8°C á sjálfvirkri stöð. Mælirinn er á víðavangi í 2 m hæð í hvítu búri. Stöðin er í um 120 m hæð yfir sjó en telst strandstöð.
Sigurbjörn Sveinsson, 5.9.2010 kl. 22:06
Sæll Sigurður Þór.
Faðir minn sá staðreyndarvillu hjá þér:
Veðurathugarnir hófust á Mánarbakka í desember 1961 (enn ekki 1966). Áður athugað á Mána, 1 km sunnar, frá júlí 1956. Aðalgeir Egilsson og fjölskylda hafa athugað frá upphafi.
Pálmi Freyr Óskarsson, 6.9.2010 kl. 17:00
Takk fyrir ábendinguna Pálmi Freyr. Fyrsti september á Mánaárbakka sem hámarksmælingar voru stundaðar var reyndar 1963 en ekki 1966. Verður leiðrétt. Á Máná voru ekki gerðar hámarksmælingar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 6.9.2010 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.