Mesti hiti í septembermánuđi

Međaltal mesta hita á Íslandi í september frá 1949 er nákvćmlega tuttugu stig. Mesti hiti sem mćlst hefur í mánuđinum er 26,0 stig á Dalatanga, austast á landinu,  ţ. 12. áriđ 1949. Ţá var víđa 22-23 stigi hiti á norđausturlandi. Á hádegi var hitinn 19,0 stig á Dalatanga en ađeins 14,4 kl. 15 svo hitinn staldrađi ekki lengi viđ, en 26 stigin voru lesin á hámarksmćli  kl. 18 og hafa líklega komiđ einhvern tíma um hádegisbiliđ ţví um morguninn var ekkert  sérstaklega hlýtt. Á hádegi ţennan dag var víđa 20 stiga hiti á norđausturlandi eins og sjá má hér ađ neđan á korti. Ţennan dag var suđvestan hvassviđri eđa stormur um allt vestanvert landiđ en sól  norđaustantil.  

Á Dalatanga mćldust 25,8 stig ţ. 14. áriđ 1988. Sama dag mćldust 24,5 stig á Neskaupsstađ, og 23,5 á Kollaleiru í Reyđarfirđi en 25,0 á Seyđisfirđi. Mesti hitinn var á Dalatanga ađeins stutta stund einhvern tíma eftir hádegi og fram ađ kl. 15 en aftur hlýnađi međ kvöldinu og kl. 21 var hitinn 23,3 stig. Á Seyđisfirđi var hins vegar mikill hiti allan daginn, 20 stig kl. 9, 25 stig kl. 15 og 21 stig kl. 21. Ţađ var suđvestanstrekkingur um allt land. Rigndi mjög mikiđ á suđur-og vesturlandi en á norđur-og austurlandi var yfir 20 stiga hiti á mörgum stöđum. Međalhitinn á Akureyri ţennan sólarhring var 16,8 stig en hámarkiđ ţó ekki meira en 20,4 í allnokkru sólskini. Mestu hlýindin voru austar.

Á Vopnafirđi mćldust 25,3 stig ţ. 1 áriđ 1981. Ţá var suđvestanátt međ rigningu á suđur-og vesturlandi, en bjart á austurlandi. Ţetta eru einmitt ţćr ađstćđur sem helst má búast viđ methita á landinu í september og ţá alltaf á austurlandi.

Áriđ 1939 mćldust 24,6 stig á Sandi í Ađaldal ţ. 1. en ţá voru ekki gerđar mćlingar á hitavćnustu stöđunum í september á austurlandi. 

Tuttugu stiga hiti mćlist stundum í september á suđurlandi og vesturlandi en miklu sjaldnar en á norđurlandi. Á Vestfjörđum og í Húnavatnssýslum hefur aldrei mćlst 20 stiga hiti í september en í öđrum landshlutum hefur ţađ gerst.  

Í Reykjavík og á Víđistöđum viđ Hafnarfjörđ náđi hitinn tuttugu stigum 3. september 1939. Mikil hitabylgja kom í september 1971 á suđur- og suđvesturlandi sem gćtti ekki svo mjög annars stađar og ţ. 11. mćldist hitinn á Mógilsá viđ Kollafjörđ 21,9 stig sem er mesti septemberhiti sem mćlst hefur á Reykjavíkursvćđinu, en sama dag mćldust 21,1 stig á Hólmi viđ Rauđhóla. Í Reykjavík fór hitinn ţó ekki nema í 18,2 stig. Mesti hiti sem mćlst hefur á suđurlandsundirlendi mćldist ţennan dag, 21,8 stig og var ţađ á Ţingvöllum, en víđa var á ţessu svćđi 20-21 stigs hiti. Á Hćli í Hreppum var hitinn 20,5 stig kl. 15 og enn 20,0 stig kl. 18 en fyrri talan var hámark dagsins. Ţetta má telja mestu septemberhitabylgju á suđur-og suđvesturlandi, ásamt ţeirri sem kom 2002, og sterkari ţar en bylgjan í september 1939 sem var hins vegar sú mesta sem komiđ hefur á vesturlandi međ t.d. 22,7 stigum á Hvanneyri.

Í september 1968 mćldist hitinn á Ţingvöllum 20,2 stig ţ. 10.

Áriđ 2002 voru miklir hitar á landinu frá 10.-15. september og komst hitinn alla dagana einhvers stađar í 20 stig ef sjálfvirkar stöđvar eru taldar međ. Er ţetta einhver mesta hitabylgja sem komiđ hefur á landinu í september. Ţann 13. fór hitinn fyrir norđan víđa vel yfir 20 stig en einnig í 21 stig á sjálfvirku stöđvunum á Skrauthólum á Kjalarnesi og í Hvammi undir Eyjafjöllum og 20 á Steinum í sömu sveit, Gullfossi og Ţingvöllum. Daginn eftir fór hitinn á fjórum mönnuđum stöđvum á suđurlandi í 20 stig eđa meira og var ţađ met í september á ţeim öllum, 21,0 stig  Jađri í Biskupstungum, 20,7 á Hćli  og Hjarđarlandi og 20,2 á Hellu.

Í september 2003 fór hitinn á Írafossi ţ. 16.  í 20,5 stig, reyndar í suđaustan illviđri.

Ţá eru upptalin öll ţau tilvik sem hitinn hefur náđ 20 stigum eđa meira á suđur-og suđvesturlandi í september.

Hér fyrir neđan má sjá Íslandskort frá hádegi hlýju dagana 1949, 1981, 1988 og 2002 og auk ţess háloftakort frá ţví í kringum 1400 m hćđ og 5 km hćđ og á ţeim síđarnefndu sést líka ţrýstifar viđ sjávarmál. 

1949-09-12_12

Rrea00119490912

Rrea00219490913

1981-09-01_12

1988-09-14_12

Rrea00119880914

Rrea00219880914

2002-09-13_12

2002-09-14_12

Rrea00120020914

Rrea00220020914

 

 


Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Kv. B

Baldur Kristjánsson, 27.9.2008 kl. 23:17

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hefurđu stillt mánuđunum upp hliđ viđ hliđ, ţ.e. ţessum metmánuđum í rigningu, hita, kulda o.s.frv. og athugađ hvort ţú sért mynstur?

Er ţetta kannski heimskuleg spurning? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.9.2008 kl. 01:04

3 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ţađ er alltaf heilmikiđ mynstur. Ţađ einfaldasta er bara ţađ ađ hlýir mánuđir eru sunnanáttamánuđir međ oft mikilli rigningu á suđurlandi en kaldir mánuđir eru norđanáttamánuđir međ sól á suđurlandi en rigningu fyrir norđan. Ţađ sést jafnvel smávegis mynstur í textanum ađ ţessu leyti.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 28.9.2008 kl. 01:29

4 identicon

Eruđ ţér hćttir ađ blogga, herra Nimbus?

Malína (IP-tala skráđ) 30.9.2008 kl. 00:30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband