1.12.2010 | 21:08
Desember í harðri baráttu
Jæja, börnin góð!
Ef árið í Reykjavík ætlar að verða það hlýjasta sem þar hefur mælst verður meðalhitinn í desember að ná næstum því þremur stigum. Það er ekki vonlaust. Þrisvar hefur meðalhitinn náð fjórum stigum, síðast árið 2002.
Ef hitinn verður nákvæmlega í núgildandi en algerlega gamaldags og úreltu meðallagi verður árið það fjórða hlýjasta. Verði hann hins vegar jafn kaldur og sá kaldasti sem hingað til hefur mælst, -7 stig verður meðalhiti ársins samt vel yfir meðallagi.
Stundum er sagt að eftir kuldaskeiðið sem hófst með hafísárunum hafi byrjað að hlýna á Íslandi kringum miðjan síðasta áratug tuttugustu aldar, en sumir hafa jafnvel nefnt miðjan níunda áratuginn en þá var mestu kuldunum á þessu síðasta kuldaskeiði lokið. En stóra stökkið var þó ekki fyrr en með aldamótunum. Einmitt frá 2001 hafa öll ár í Reykjavík verið yfir fimm stigum, en það var árshiti hlýindaskeiðsins mikla 1931-1960. Þess vegna verður gaman þegar árið er liðið að gera upp þennan makalausa áratug sem að hlýindum hefur slegið út alla aðra áratugi í mælingasögunni.
En á meðan við bíðum eftir að árið líði í aldanna skaut getum við fylgst með veðrinu í Reykjavík og á Akureyri og að nokkru leyti á landinu öllu í hinu óþreytandi fylgiskjali, blaði eitt og tvö.
Meginflokkur: Mánaðarvöktun veðurs | Aukaflokkar: Bloggar, Veðurfar | Breytt 9.12.2010 kl. 18:49 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Það er dálítið spælandi fyrir okkur sem erum í metahugleiðingum að fá nóvember sem er fyrir neðan þennan úrelta meðalhita og um leið kaldasta nóvember síðan 1996.
Annars var varla hægt að kvarta yfir veðrinu að öðru leyti. Veðurgæðakerfið mitt, hvað sem er að marka það, gaf liðnum nóvember 4,9 stig sem er mjög gott fyrir árstímann og reyndar sama einkunn og hinn hlýi nóvember árið 2002 fékk. Besti nóvember hjá mér var árið 2000 með 5,0 stig en sá mánuður var nokkuð svipaður og í ár. (Við heyjum harða keppni í nördaskapnum)
Emil Hannes Valgeirsson, 2.12.2010 kl. 00:03
Mér fannst þessi nóvember fremur leiðinlegur en hann varð aldrei jafn kaldur og maður hélt hann yrði á tímabili. Eftir að komið er skammdegi og alveg í því öllu finnst mér mestu skipta fyrir mína þægindatilfinningu að sé milt, ekki frost, ekki bjartar stillur með frosti þó það geti verið ágætt út af fyrir sig, alls ekki snjó, en hlýtt og ekki illviðrasamt. Bjartir vetrarmánuðir finnst mér yfirleitt leiðinlegir af því að þeim fylgir langoftast kuldi. Þessi er 4. sólríkasti nóvember. En merkilegur var nóvember 1960 sem var sá sólríkasti þar til einmitt ískaldi 1996 sló hann út. Hvað það var sem gerði nóvember 1960 (tíu hlýjasti á landinu, hlýjasti á Hornströndum) svona sólríkan án þess að vera kaldur er svo mál út af fyrir sig og dæmi um það hvað margir skemmtilegir hlutir geta gerst í veðrinu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.12.2010 kl. 12:13
Vonandi fer að virka fljotlega öll svo kallaða baráttan gegn "gróðurhúsa áhrifunum" þannig að hitinn normaliserist aftur! Þannig að viðsem erum orsakavöld á hlýnun sjaum fram á að kynslóðir þær sem á eftir okkur eiga að yrkja þessa jörð eigi möguleika á að geta búið/lifað á henni! Og því er öll slík metalöngun "yt" hér á bæ!
Jón Arnar, 4.12.2010 kl. 22:37
Hvaða þvæla er þetta!
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.12.2010 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.