Sýnið nú veðuráhugann í verki

Markaðsstjóri Austurlands vildi í frétt í gær fá fleiri veðurstöðvar á austurlandi. Í þessari frétt , sem bloggfærslan tengir við, kemur fram að þær kosti nú sitt og það hindri Veðurstofuna í að fjölga þeim.

En ég veit um ágæta lausn á þessu máli. Hún felst einfaldlega í því að sveitarfélögin kaupi  fyrsta flokks veðurstöðvar í sína byggð en þær væru svo reknar af Veðurstofunni.

Ýmis fyrirtæki á markaðnum, einmitt í ferðaþjónustunni, gætu líka lagt sitt af mörkum.  Sum eru víst að græða heil ósköp. Þeim myndi nú ekki muna mikið um að spandera í nokkrar veðurvélar - sem fjærst öllum kuldapollum nátturlega en  þar á mót ofan í heitum pottum - sem myndi vakta góðviðrið nótt sem nýtan dag og trekkja að glás af ríkum ferðamönnum. Þeir sýndu þá góðviðrisáhugann í verki. 

Ef þessir aðilar fást hins vegar ekki til að gera þetta smáræði til að auka veðurhag landsmanna  og ekki síst sinna heimamanna geta þeir ekki kvartað yfir því að vanti fleiri veðurstöðvar.

Þeir ættu þá bara að hafa sig hæga.

En við fylgjumst með sumarhasarnum áfram í hinu sjóðheita fylgiskjali.

 


mbl.is Kostnaður of hár fyrir Veðurstofuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Er ekki nóg af vindhönum fyrir austan, sem mætti nýta betur?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.8.2011 kl. 13:45

2 Smámynd: Alli

Af hverju á landsbyggðin að borga fyrir tækin en höfurðborgarsvæðið ekki?  Er Veðurstofan ekki opinber stofnun fyrir ALLT Ísland?

Alli, 11.8.2011 kl. 14:55

3 identicon

Ég smíðaði einu sinni vindhana, veðrið batnaði ekkert við það! Skrítið!

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 16:08

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Villi villíngur: Það eru vindhanar alveg alla leið frá Galtalæk að Jerúsalem!

Alli: Þetta á alveg eins við um Reykjavík að mínum dómi. Borgarstjórnin mætti alveg fjármagna þar veðurstöðvar sem mikil þörf er á. En ég geri ekki ráð fyrir því að hún hafi minnsta áhuga og það hefur ekkert með flokka að gera. En þegar ekki eru til peningar fyrir tækjum hjá stofnun sem hefur allt landið undir en menn vilja samt fá þau í sína sveit gætu sveitarfélögin  kannski hjálpað til að fjármagna þau. En það vilja flest sveitarfélög aldrei heyra á minnst. Þó held ég að þess séu einhver dæmi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2011 kl. 16:24

5 Smámynd: Alli

Sæll aftur Sigurður.

Ég var nú aðeins að tala (skrifa) um þær veðurstöðvar sem þegar eru starfandi. Varðandi aðrar aukastöðvar er sjálfsagt að þær séu fjármagnaðar af þeim sem þær reka, sbr. veðurstöðina á Kvískerjum í Öræfasveit sem hefur verið starfræk í áratugi.

Varðandi fjármögnun á tækjum hjá opinberum stofnunum er það staðreynd að  líknarfélög og kvenfélög hafa fjármagnað ótrúlega mikið af tækjakaupum heilsugæslustöðva á landsbyggðinni.

Alli, 12.8.2011 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband