Sögulok mánaðarvökunarinnar

Nú er ekki lengur hægt að sjá athuganir mannaðra veðurstöðva á þriggja tíma fresti á gamla vef Veðurstofunnar, ásamt  hámarki og lágmarki hitans og úrkomu, eins og lengi hefur verið hægt. 

Mér finnst það satt að segja fyrir neðan allar hellur að loka á þetta fyrirvaralaust án þess að aðgangur að þessum upplýsingum sé mögulegur annars staðar á vef Veðurstofunnar.

Það er skömm frá því að segja að hægt er að sjá þetta eitthvað svipað á rússneska vefnum góða fyrir nokkrar stöðvar en alls ekki allar, og reyndar á fleiri stöðum, en ekki á opinberum vef Veðurstofu Íslands!

Ég hef í um það bil ár birt hér á blogginu daglegt yfirlit yfir veður í Reykjavík og Akureyri og fyrir suma veðurþætti yfir allt landið, einn mánuð í senn meðan honum vindur fram. Slíkt yfirlit er hvergi annars staðar aðgengilegt með líkum hætti.  Þetta hefur verið þó nokkuð maus og fyrirhöfn. Og þessi lokun á gamla vefnum með upplýsingum frá mönnuðu stöðvunum minnkar hana nú ekki.

Og nú nenni ég þessu bara ekki lengur.

Örlög þessa veðurbloggs að öðru leyti er enn óráðin. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það hlaut að koma að þessu með gamla vefinn. En þetta er náttúrulega afturför nú á upplýsingaöld að lokað sé á upplýsingar þegar það á einmitt að vera öfugt.

Emil Hannes Valgeirsson, 2.9.2011 kl. 23:21

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki er ég hissa þó þú þreytist Sigurður, með árunum. Sem betur fer á ég allt sem þú hefur sett á þína bloggsíðu á diski, en.......það verður alltaf veður, hvort sem  fólki líkar vel eða illa, útfærslan á því. Hafðu mínar bestu þakkir fyiri spekúlasjónið! og framsetninguna, sem gerði aula eins og mér kleift að fylgjast örlitð betur með, þó ekki væri meira. Takk.

Halldór Egill Guðnason, 4.9.2011 kl. 05:25

3 Smámynd: Kama Sutra

Breyttu þessu veðurbloggi bara aftur í kisublogg. Þá verður gaman!

Kama Sutra, 4.9.2011 kl. 23:05

4 identicon

Frekar einkennilegt að loka gamla vefnum núna, maður gerði ráð fyrir að hann væri opinn af því að ekki er allt sem máli skiptir komið þaðan yfir á nýja vefinn.

Reyndar er sumt af þessu á brunni Veðurstofunnar, þ.e. á http://brunnur.vedur.is/athuganir/leslisti/ - það sem er þar breyttist m.a.s. aðeins þegar gamla vefnum var lokað. En best væri ef það merkilegasta af gamla vefnum færi einfaldlega inn á brunninn, hann inniheldur þegar talsvert af sérhæfðum, áhugaverðum upplýsingum fyrir veðurnörda og varla flókið að bæta þessu við líka því það var hvort eð er verið að útbúa þessar upplýsingar áður en gamla vefnum var lokað. Það er t.d. nokkuð pirrandi að geta ekki lengur séð almennilegan lista yfir veður á öllum stöðvum eins og áður var hægt. "Leslistinn" er að vísu svipaður þeim lista sem var á gamla vefnum en samt ekki eins góður enda miðast hann greinilega við lestur í útvarpi. Skyggni birtist t.d. bara ef það er "lélegt", þ.e. sama "regla" og er notuð í lestri í útvarpinu en svona takmarkanir eru óþarfar á vef. Best þætti mér ef "leslistinn" yrði eins og listinn sem áður birtist á gamla vefnum.

Svo saknar maður aðeins upplýsinganna frá erlendu stöðvunum en það skiptir að vísu mun minna máli.

Læt ég svo þessu nöldri lokið - vonandi verður þetta einhverntíma lagað...

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 5.9.2011 kl. 00:44

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það versta er að nú er hvergi hægt að sjá hámarks og lágmarkshita  skeytastövanna og ekki hægt að sjá veðrið á athugunartímum á öllum stöðvum í sjónhendingu eftir spáhéruðum. Skil ekki svona upplýsingalokun.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.9.2011 kl. 00:50

6 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Ertu búinn að senda fyrirspurn á Veðurstofuna varðandi þetta?

Annars hefur mér þótt fróðlegt að geta skoðað þetta hjá þér og yrði ánægður ef það yrði mögulegt að halda þessu áfram. En alla vega, takk fyrir og vonandi verður hægt að taka þetta upp aftur síðar, helst fyrr en síðar.

Sveinn Atli Gunnarsson, 5.9.2011 kl. 11:28

7 identicon

Og nú sé ég að gamli vefurinn er aftur kominn upp. Kannski bar þetta "nöldur" árangur eða ekki stóð til að taka hann niður til frambúðar núna. Vonandi hverfur gamli vefurinn ekki varanlega fyrr en þessar upplýsingar eru komnar á nýja vefinn eða brunninn...

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 6.9.2011 kl. 14:17

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Er ekki frá því að frekjudallaháttur beri stundum árangur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.9.2011 kl. 19:32

9 identicon

Gamla vefsins er sárt saknað ásamt þeim upplýsingum sem þar var að finna. Veðurstöð 1395 var t.d. alveg sérstakt áhugamál, einkum loftvogin sem er nú hvergi að finna. Á nýja vefnum í dag er nýjustu upplýsingar frá þessari stöð 6 tíma gamlar, sem er nokkuð bagalegt.

Brimið á Bakkanum (IP-tala skráð) 13.9.2011 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband