Opiđ bréf frá Mala til Egilsstađabúa

afrit_af_pict2608_1111313.jpg

Gestaskrifari á bloggi dagsins ađ ţessu sinni er enginn annar en hinn nafntogađi Mali sem klórađ hefur saman eftirfarandi galopiđ bréf til Egilsstađabúa: 

Í Fréttablađinu í dag er frétt um ţađ ađ 26 meira en vafasamir einstaklingar (hvađ búa annars margir á Egilsstöđum) hafi safnađ undirskriftum til bćjarfélagsins um ađ skera upp herör gegn ''kattaplágu'' sem ţeir segja ađ ţar geysi. Og svo virđist af fréttinni ađ bćjarfélagiđ ćtli ađ bregđast viđ ţessari fámennisklíku međ herferđ gegn köttum međ blóđirennandi rađmorđum í stórum stíl.

Ţrátt fyrir ţetta segir bćjarstjórinn ađ vandrćđi vegna katta séu ekki meiri á Egilsstöđum en annars stađar.

Ţađ er einmitt. Og kettir hafa veriđ í ţéttbýli síđan ţađ myndađist á Íslandi og auđvitađ í sveitum ţar á undan. Ţađ er ţó ekki fyrr en á allra síđustu árum sem sumir eru orđnir óđamála og illmála út af ''plágunni'' sem ţeir allt í einu eru sagđir vera.

Hvers vegna?

Vegna ţess ađ til er til fólk sem er ekki ađeins meinilla viđ ketti heldur hatar ţá beinlínis út af lífinu. Af einhverjum ástćđum hefur ţetta grimma og guđlausa vandrćđafólk fengiđ meira vćgi en áđur og veđur nú uppi í bćjarstjórnum og í fjölmiđlum.

Fulltrúi ţessara 26 hvumleiđu Egilsstađabúa, Ţórhallur nokkur Ţorsteins,  eys úr hatursskálum sínum í Fréttablađinnu. Hann kvartar hástöfum međ ámáttlegum orđum yfir ţví ađ barnabörn sín, sem áreiđanlega eru andstyggilegir óţekktarormar, geti ekki lengur veriđ úti vegna katta sem geri ţarfir sínar í blómabeđ ţar sem fagrar skrautjurtir og blóm eigi ađ spretta. 

Ýmislegt getur vitanlega fariđ miđur í kattheimum eins og í mannheimum. En ţessar lýsingar Ţórhalls eru áreiđanlega stórýktar ef ekki bara hrein lygi.

Ţćr eru ţađ sem venjulega er kallađ hatursáróđur.

Í bakgarđinum ţar sem ég á heima, stóru porti međ einkagörđum í kring, eru margir kettir, hver öđrum skemmtilegri og vitrari. Oft tökum viđ brćđur ţar mal saman um landsins gagn og nauđsynjar.  Aldrei hef ég á minni lífsfćddri ćvi rekist ţar á kattaskít og aldrei fundiđ kattarhlandslykt, en hins vegar er ekki farandi um undirgöng í nágrenninu vegna stćkrar mannahlandfýlu úr einhverri álíka mannfýlu og ţessum Ţórhalli.

Viđ sómakisur ţurfum auđvitađ ađ kúka og pissa ekki síđur en Ţórhallur. En viđ förum fínlega í ţađ samkvćmt okkar náttúrlega eđli og oftast í kassann okkar heima og gerum ţađ til dćmis alls ekki í fjölmiđlum.

Ţađ er fyrir neđan virđingu okkar. 

Ţađ er engin raunveruleg kattaplága í ţessu landi. Hins vegar eru manntuđrur eins og Ţórhallur Ţorsteins orđnar meiriháttar plága hvar sem ţćr láta til sín taka í ţjóđlífinu. Og bćjarstjórnir og ađrar stjónir sem hlaupa eftir fordómum ţeirra og hatursćđi eru ekkert annađ en mann-og kattfjandsamlegar fasistabullustjórnir.

Ţórhallur erkibulla Ţorsteins, sem ég mundi klóra úr augun ef ég nćđi til hans, hótar ţví ađ ţeir vondu einstaklingar sem hugsa eins og hann muni grípa til sinna eigin ráđa gegn köttum, sem sagt fari í algjört holókast, ef bćjarstjórnin muni ekki leysa gyđingavandamáliđ í bćnum... nei, kisuvandamáliđ vildi ég sagt hafa, kemur út á eitt ţví söm er gjörđin og samt er hjartalagiđ.

Viđ kettir trúum ţví ađ til sé fleira gott fólk en vont fólk. Og ég skora á góđa Egilsstađabúa, menn og kisur, ađ rísa upp gegn vondu Egilsstađabúunum og berja niđur međ harđri hendi og klóm og kjafti ţessar siđlausu og guđlausu ofóknir gegn hinu göfuga kattakyni. Ţćr eru blettur á bćjarfélaginu. 

Viđ treystum ţví ađ allir kattaunnendur muni grípa til sinna eigin ráđa gegn ţessu morđóđa hyski, svo ekki ţurfi ađ spyrja ađ leikslokum, ef bćjarafélagiđ getur ekki sjálft verndađ sína spakvitrustu og ljúfast malandi ţegna fyrir öđrum eins hamfara ofsóknum og til er blásiđ. 

Hvćsum á ţessar níđingslegu ađfarir! 

Mali Sigurđsson

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Konungi gćludýranna er ekki skemmt

DoctorE (IP-tala skráđ) 24.9.2011 kl. 17:39

2 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Heyr, heyr Mali.

Halldór Egill Guđnason, 24.9.2011 kl. 21:20

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband