5.2.2012 | 16:44
Hugsað stórt
Í hinu stóra samhengi hefur verið að kólna á jörðunni í miljónir ára!
Hugsum ekki smátt! Hugsum stórt!
Ábending: Eins og venjulega, þegar um það bil vika er af mánuði, hafa lítilsháttar villur í meðalhita, úrkomu og sól fyrir hvern dag verið leiðréttar í fylgiksjalinu fyrir mánuðinn á undan (hér janúar) og bætt við daglegum sólskinsstundum fyrir Akureyri. Þetta sést með því að skrolla fylgiskjalið upp.
Skrollið!
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Meginflokkur: Mánaðarvöktun veðurs | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 14.2.2012 kl. 00:44 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Já, en hvað á að gera, þegar ofsatrúarbrögð eru hinsvegar? NASA hefur ekki bara falsað hitatölur í Reykjavík. Ef svo væri, hver er þá tilgangurinn með smá skítaholu í norðrinu, sem segir ekki neitt eitt og sér? Það stenst engann veginn.
Þetta er spurning um að skattleggja og græða peninga, með hvaða svikum og prettum sem er.
V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 5.2.2012 kl. 19:19
Jamm!!
Sigurður Þór Guðjónsson, 5.2.2012 kl. 19:23
NASA (NOAA) er ekki bara að "leiðrétta" hitatölur í Reykjavík, heldur einnig víðar um heim, t.d. á Grænlandi og í Bandaríkjunum.
Enn eitt "climate-gate" í uppsýglingu?
Gunnar Th. Gunnarsson, 5.2.2012 kl. 20:29
Gunnar:
Ef þetta er enn eitt "climate-gate" þá þarf ekki að hafa nokkrar áhyggjur, enda er það mál bara til í hugum "efasemdamanna" sem eitthvað mál. Enda byggir "climate-gate" ekki á nokkrum efnislegum staðreyndum, heldur bara útúrsnúningum "efasemdamanna" sem hafa engar stoðir í veruleikanum. Mér sýnist samsæriskenningar um NASA og "leiðréttingar" þeirra vera af svipuðu meiði...s.s. mjög ólíklegt til að gera nokkurn usla í heimi vísinda, þó svo að "efasemdamenn" muni reyna að gera eins mikið úr því og hægt er...að venju - ekkert nýtt í þeirra hugarheimi að fullyrða um samsæri út og suður án frekari gagnrýni í hugsun...
Sveinn Atli Gunnarsson, 6.2.2012 kl. 01:49
Hugsa stórt! Það er málið.
Ágúst H Bjarnason, 6.2.2012 kl. 06:11
Að sjálfsögðu ber okkur að leitast við að sjá heildarmyndina og forðast nano-sjónarhorn kolefnisofsatrúarmanna.
http://ametsoc.org/chapters/oregon/Minutes/2012/2012_1_25_Meeting/2012_1_25_Minutes.html
http://notrickszone.com/2012/01/30/german-fear-of-warming-plummets-yet-to-be-published-skeptic-book-climbs-to-amazon-de-no-4/
http://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1364682611003385
http://wattsupwiththat.com/2012/01/23/its-dead-heat-americans-rate-global-warming-last/
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 12:36
Þegar miklir hugsuðir láta til sín taka draga minni spámenn sig algjörlega í hlé.
Sigurður Þór Guðjónsson, 6.2.2012 kl. 13:00
Ætli málið sé ekki bara að skoða málið í heild, hvað sem líður smáum eða stórum hugsuðum eða hugsunum. Sumar hugsanir, stórar og smáar geta byggt á persónulegum skoðunum frekar en staðreyndum, sem oft á við um hina sjálfskipuðu "efasemdamenn"...og þeirra mótsagnarkenndu "röksemdir"... En jæja, hvað um það, þetta er frjálst land og mótsagnarkenndar skoðanir sem ekki byggja á gögnum eða yfirsýn yfir heildarmyndina eru víst sjálfsagðar...
Sveinn Atli Gunnarsson, 6.2.2012 kl. 18:21
Hvað sögðu menn í gamla daga. Var það ekki eitthvað á þessa leið, eða svona nokkurn vegin:
Mikilla sanda, mikilla sæva, mikil eru geð guma.
Kannski varð einhverjum þetta að orði þegar miðaldahlýindin miklu fyrir árþúsundi gerði þeim lífið létt þannig að þeir hugsuðu stórt og gerðust stórhuga.
Ágúst H Bjarnason, 6.2.2012 kl. 22:33
Það eru ansi stór landssvæði í norðaverðri Asíu, Evrópu og Ameríku sem yrðu búsældarlegri með dálítilli miðaldahlýnun.
Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2012 kl. 22:52
Til eru "stórir" hugsuðir sem hundsa staðreyndir...jæja, þeir um það, hér undir má sjá eitt graf, takið eftir 2004 vinstra megin í grafinu... Hitt er svo annað mál að þó við værum ekki búinn að ná yfir miðaldahlýnunina enn þá (sem allt bendir til að við höfum náð á núverandi tímapunkti) þá myndi eðlisfræði gróðurhúsalofttegunda nú samt vera til staðar og hækka hitastig við aukningu gróðurhúsalofttegunda eins og við upplifum í dag - hvaða persónulegu hugmyndir fólk hefur um miðaldahlýinindin "miklu"...
Grafið góða:
Á þessari mynd má sjá þróun hitastigs frá síðustu ísöld og fram til nútíma samkvæmt proxígögnum frá ýmsum stöðum. Svarta línan er meðaltal proxígagna sem unnin eru út frá 8 mismunandi gagnasöfnun sem eru sýnd með hinum línunum og er notast við gögn frá ýmsum stöðum í heiminum sem eru unnin með nokkrum aðferðum, sjá nánar hér. Eins og sjá má er meðalhitastig í heiminum 2004 merkt þarna inn og er það nokkuð hátt miðað við hitastig síðustu árþúsunda. Ef litið er á þróunina frá því fyrir u.þ.b. 8 þúsund árum, má sjá að hitastigið lækkar jafnt frá þeim tíma fram til u.þ.b. byrjun 20. aldar. Punktalínan er meðalhitastig á miðri síðustu öld.
PS. svo má benda á t.d. Efasemdir um hnattræna hlýnun – Hinn vísindalegi leiðarvísir - hægt er að prenta leiðarvísinn út og hafa með í háttinn, svo dæmi sé tekið...
Sveinn Atli Gunnarsson, 6.2.2012 kl. 23:50
Við sjáum það á ýmsu hve stórhuga menn urðu á tímum hinna miklu miðaldahlýnunnar. Norrænir menn lögðu í útrás og fundu Ísland, Grænland og svo auðvitað Vínland. Menn reistu fagrar byggingar í Evrópu, bæði á meginlandinu og á Bretlandseyjum, m.a. mikilfenglega kastala og fagrar dómkirkjur. Menningin blómstraði sem aldrei fyrr.
Síðan tók við kuldatímabil sem sumir kalla Litlu ísöldina. Henni fylgdu sjúkdómar, fátækt, styrjaldir og vesaldómur. Þá hættu menn að vera stórhuga.
Það er ljóst, að hlýindum fylgir velmengun og viska, en fátækt og forheimskun kuldatímabilum.
Mikið eru nú annars þessi hlýindi, sem leikið hafa um okkur undanfarna áratugi, yndisleg, þökk sé náttúrulegum sveiflum á sama hátt og fyrir árþúsundi.
Náttúran fær koss frá mér
Ágúst H Bjarnason, 7.2.2012 kl. 07:21
Ágúst H. Bjarnason, þessi náttúrulega sveifla sem þú ræðir um að sé orsök núverandi hlýnunar er ekki í samræmi við niðurstöður þeirra vísindamanna sem eru sérfræðingar á sviði loftslagsvísinda. 97% þeirra eru samhljóða um að núverandi hlýnun sé af völdum aukina gróðurhúsaáhrifa og mælingar staðfesta það.
Hitt er svo annað mál að það gerðist ýmislegt sem hægt er að setja í flokk stóra hugsana á hinu umtalaða kuldatímabili (sem vitað er að var kaldara á miðöldum en í dag). Fólk má þó ekki gleyma öllu sem gerðist á hinu umtalaða kuldatímabili þó að það virðist í fljótu bragði passa við söguskýringu þess að afneita sögunni sjálfri og kalla ákveðin tímabil, tímabil vesaldóms og forheimskunar, bara af því að það er í takt við persónulegar skoðanir þeirra. Ég held að Newton, Gallileó, Mozart, Columbus, Beethoven og fleiri stórir menn tímabilsins, svo einhverjir örfáir séu nefndir til sögunar, verði nú hálf móðgaðir yfir að Ágúst H. Bjarnason kalli samtíma þeirra vesaldóm og tíma forheimskunnar...
Jæja, en svona getur þetta nú stundum verið í heimi afneitunarinnar...sem hugsanlega mætti nefna heim forheimskunnar, enda virðast alvöru vísindi ekki eiga heima í heimi þeirra "efasemdamanna" sem afneita loftslagsvísindum...
Sveinn Atli Gunnarsson, 7.2.2012 kl. 08:04
Þú gleymir galdrabrennunum Sveinn Atli.
Annars fjallar pistill Sigurðar Þórs um að hugsa stórt. Við megum ekki gleyma því, hvað sem miðaldarhlýindunum góðu líður og hinni mögnuðu móður náttúru.
"Í hinu stóra samhengi hefur verið að kólna á jörðunni í miljónir ára!" skrifar höfundur pistilsins, og hugsar stórt.
Skyldi halda áfram að kólna?
Ágúst H Bjarnason, 7.2.2012 kl. 08:58
Ágúst H Bjarnason:
Ég var ekki að ræða galdrabrennur, enda kjánarök sem ekki skipta máli. Ég var bara einfaldlega að benda þér á að á kuldatímabilinu voru gerðar margar stórar hugsanir og einnig margir stórir hugsuðir á ferð, og það var ekki tímabil volæðis og forheimskunar eins og þú virðist halda - heldur var lagður grunnur af nútíma vísindum og það var tímabil mikilla hugsana...þó þú teljir annað Ágúst H Bjarnason, sem er athyglisverð söguskýring hjá þér.
En einhverjar útskýringar frá þér um að miðaldahlýindin og sú sem við erum að upplifa í dag eigi eitthvað sameiginlegt er í besta falli misskilningur hjá þér, sem byggist á "efasemdum" "efasemdamanna".
Það er ekki að kólna (fullyrðing sem þó virðist eiga fylgi meðal þeirra sem afneita loftslagsvísindum), en ef þú vilt sérvelja gögnin til að fullyrða um þess háttar, þá er þér það velkomið, enda má fólk svo sem hafa persónulegar skoðanir sem ekki standast skoðun...ekki málið.
Smá tengill í lokin, Áhrifaþættir hinnar hnattrænu hlýnunar, þar sem m.a. kemur fram:
Það kemur ýmislegt fróðlegt fram þarna, t.d. nánar varðandi rannsóknir vísindamanna á þessum áhrifa þáttum sem þarna eru nefndir - það er ekki í samræmi við persónulegar skoðanir "efasemdamanna" og þeirra sem afneita loftslagsvísindum...
Sveinn Atli Gunnarsson, 7.2.2012 kl. 09:29
Nú er greinilega ekki seinna vænna að kaupa góðan trefil áður en kuldaboli kemur í öllu sínu veldi. Brrr...
Ágúst H Bjarnason, 7.2.2012 kl. 10:17
Já, afneitunin er sterkt afl, en ef þér líður betur með trefil Ágúst H Bjarnason, þá skaltu endilega kaupa þér einn slíkan, enda munu vetrarveður halda áfram að geysa á jörðinni (sérstaklega um vetrartímann), hvað sem líður hnattrænni hlýnun af mannavöldum...það er engin sem heldur öðru fram. Leiðinlegt reyndar að rökleysur "efasemdamanna" séu slíkar að ekki er mark á þeim takandi, það væri gott ef óskhyggja þeirra væri byggð á einhverju sem stæðist skoðun - en því fer þó fjarri.
Eins og lesa má hér, þá eru helstu aðferðir "efasemdamanna" a.k.a. afneitunarinnar vel þekktar:
Við höfum séð þetta allt í athugasemdum "efasemdamanna" á Íslandi í gegnum tíðina. Ég tel t.d. að fullyrðingar um forheimskun og vesaldóm á kuldatímabilinu svokallaða, ásamt kjánarökum um galdrabrennur falli m.a. undir lið 5. Almennar rökleysur - kannski líka liði 2. og 4. ásamt endurtekningunum...
Sveinn Atli Gunnarsson, 7.2.2012 kl. 10:49
Ágúst H Bjarnason, 7.2.2012 kl. 12:08
Já Ágúst minn, ef þú hefur ekkert meira að segja þá er væntanlega hægt að brosa út í annað - eða jafnvel bæði . Það er kannski best fyrir þig þar sem þú hefur væntanlega ekki röksemdir sem standast skoðun...nema þá kannski þú viljir breyta sögunni meira og segja að iðnbyltingin hafi ekki átt sér stað - hún gerðist jú í kuldatímabili, þar sem samkvæmt þínum "röksemdum" átti sér stað forheimskun...jæja, segir kannski mikið um þína "rökfræði"...og almennar rökleysur...en eins og áður sagði er afneitunin sterkt afl...
Sveinn Atli Gunnarsson, 7.2.2012 kl. 12:17
Ég tek þessu öllu saman létt og hef ekki þungar áhyggjur, hvorki af kólnun né hlýnun. Hef bara ánægju af því að fylgjast með, bæði duttlungum náttúrunnar og heitum umræðum. Kasta stundum kolum á umræðueldinn til að kynda aðeins. Þess vegna brosi ég af einlægni Sveinn minn.
Ágúst H Bjarnason, 7.2.2012 kl. 12:48
Jæja Ágúst - þú meinar s.s. ekkert með þessum rökleysum þínum...jæja það var og duttlungar manna eru furðulegir... Þú ert þó furðulega mikið í því að afneita hlýnun og "spá" kólnun af manni sem "hefur ekki þungar áhyggjur" af hvoru tveggja
Ég hef reyndar líka gaman að því að kynda upp undir rökleysum þeirra sem afneita vísindum...það getur verið gaman að sjá rök þeirra bráðna undan þeim eins og jöklar við hlýnun jarðar...hið síðara er þó alvarlegt mál sem þeir sem afneita vísindum afneita líka... Það má sjá gott dæmi um það hér að ofan hjá þér Ágúst að "röksemdir" þínar hafa fallið saman um sjálfar sig (enda bara duttlungafullar staðhæfingar sem ekki standast skoðun)...
En brost þú bara sem mest Ágúst, það er gott að þér líður vel, þó svo ekkert bóli á meintri kólnun sem þú hefur spáð alla vega síðan 1998 - gott að þú lætur engan bilbug á þér finna
Sveinn Atli Gunnarsson, 7.2.2012 kl. 12:59
Ég sé að Svatli nettröll og wannabe-skógarvörður er að ausa úr skálum "visku" sinnar einn ganginn enn. Væntanlega er að hann staddur á Suðurskautinu ásamt félaga Al Gore, NASA-Hansen, forsetahjónunum íslensku og fleiri kardínálum kolefniskirkjunnar.
Glópagengið er að forðast fimbulveturinn á norðurhveli jarðar.
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 7.2.2012 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.