Fyrsta sólskin á árinu i höfuðborginni

Í gær mældist sólskin í rúmlega hálfa aðra klukkustund í Reykjavík. Og það er í fyrsta sinn sem sólskin þar mælist á þessu ári!

En það eru svo sem engin sérstök tíðindi. Meðaltal sólarstunda 11 fyrstu dagana í janúar frá 1924 eru fimm klukkustundir. Áður hefur ekki mælst sól þessa daga árin 1938, 1950, 1954, 1964, 1983, 1984, 1992, 1993 og 2002.

Öll þessi ár var mjög hlýtt þessa fyrstu 11 daga ársins nema 1983, 1984, 1992 og 1993. Þá var ansi kalt og miklu kaldara en í ár.   

Mest sólskin þessa daga var 1959 þegar sólskinsstundirnar voru 24,5. En í þeim mánuði voru fyrstu 11 dagar ársins þeir köldustu að meðaltali í Reykjavík frá 1918. Það vill oft verða að miklu vetrarsólskini fylgi miklir kuldar.

Nú er ekki hægt að tala um kulda. Hitinn er í meðallagi í Reykjavik en meira en hálft stig yfir því á Akureyri. Snjórinn hefur kannski þau huglægu áhrif að manni finnst meira vetrarríki en hitastigið eitt segir til um. Og svo er reyndar um einu stigi kaldara í Reykjavík en meðaltalið á þessari hlýju öld fyrstu 11 dagana í janúar.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Er hægt að fá að vita hvar í höfuðborginni þetta var ? - Aldrei kom þetta t.d. í Kópavog eða Hafnarfjörð svo vitað sé en það telst að vísu til Stór-Reykjavíkur.

Höfuðborgarbúi.

Már Elíson, 13.1.2015 kl. 18:34

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Mældist reyndar í 10 mínútur (0,1 klst - það minnsta sem hægt er að bókfæra) á miðvikudaginn var (þann 7.) [sjálfvirki mælirinn sagði sólina hafa skinið í 3 mínútur þann sama dag].

Trausti Jónsson, 13.1.2015 kl. 19:48

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Við hér á Reyðarfirði þurfum að bíða til 7. til 9. feb. eftir sólskininu.(fer eftir því hvar í þorpinu)

Ég spái lítið í þessu á meðan sólarleysið varir, en þegar hún kíkir upp fyrir suðurfjöllin í fyrsta sinn á árinu, er það yndislegt tilfinning.

Og kvenfélagið er með sólarkaffi í safnaðarheimilinu, pönnukökur með rjóma og fleira gott bakkelsi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.1.2015 kl. 01:16

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Ég samgleðst þér og köttunum. Sáu þeir sólina fyrir þér?

FORNLEIFUR, 14.1.2015 kl. 05:35

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Æ já Trausti. Takk fyrir ábendinguna. Það skein sól í 0,1 stund þ. 7. og það minnir á hina eilífu baráttu fylgiskjalarans við villurnar en hann fær engar upplýsingar nema leita að þeim dyrum og dyngjum og slá þær inn með eigin  hendi, "krepptur gigtarböndum"! Már, sólskinið er náttúrlega mælt á Veðurstofunni við Bústaðaveg. Fornleifur, það er frekar ég sem sé ekki sólina fyrir köttunum. Ég bjó annars lengi á 4. hæð og þar sá til sólar allt árið. Hún skein um hádegið beint inn í einn stofusófann á skemmsta degi. Svo flutti ég fyrir þreumur árum á fyrstu hæð og þar sést ekki til beinlínis til sólar fyrir andstyggilegum húsum frá 12. nóvember og til 31. janúar en glampi af henni sést á gólfum og veggum þegar hún skín á annað borð. Og svo einkennilega vill til að þetta er einmittt nákvæmlega tímabilið sem ég hef fyrir sjálfan mig árum saman reiknað sem tíma skammdegisins. Það er því mikið gaman þegar sólin fer að sjást aftur. Nú hafa þeir byggt hótelskratta norðan við húsið með monsterslegum turni.En viti menn! Skín ekki skammdegissólin allengi þegar hún er hæst á ofti þar á glugga og endurvarpast þaðan inn í eldhúsið svo það verður allt uppljómað. Aldrei að eitthvað jákvætt komi frá þessum fjandans framkvæmdum sem valdið hafa gríðarlegu ónæði árum saman.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.1.2015 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband