Hámarks-og lágmarkshiti hvers mánaðar í Reykjavík frá 1871

Hér birtast töflur fyrir hámarks-og lágmarkshita hvers mánaðar í Reykjavík fyrir hvern mánuð frá 1871.

Óþarfi er að eyða mörgum orðum að þessu. Í flipum er hægt að sjá hvar mælingarnar fóru fram á hverjum tíma. Lítið er vitað um mælingarnar fyrstu árin en árið 1880 voru þær komnar í hendur dönsku veðurstofunnar og munu hafa farið fram í hitaskýlum sem fest voru á húsveggi. Það var ekki fyrr en árið 1947 sem mælarnir voru fluttur í skýli sem stendur á bersvæði eins og síðan hefur verið.

Árin 1907 til 1919 voru ekki raunverulegar hámarks-og lágmarksmælingar heldur eru tölurnar hæstu og lægstu tölur sem lesnar voru á mæli á föstum athugunartímum frá morgni til kvölds en ekki að næturlagi. Tölurnar þessi ár eru því aðeins bending um hitann.    

Í hámarkshitadálkunum eru allra hæstu gildi sem mælst hefur í viðkomandi mánuði með rauðu en lægstu mánaðargildi hámarks með bláum lit en í lágmarkshitadálkunum eru lægstu gildin með bláu en hæstu lágmarksgildi í hverjum mánuði með rauðu. Nokkur árslágmörk eru skáletruð þegar vantar í einhverja mánuði. 

Heimildir til árins 1879 eru virðuleg leyndarskjöl frá Veðurstofunni, en frá 1880 til 1919 eru þær eins og fyrri daginn Danska veðurfarsbókin,  frá 1920-1923 Íslenzk verðurfarsbók, frá 1924 Veðráttan, mánaðaryfirlit Veðurstofunnar, og frá 2003 Veðurfarsyfirlit þessarar ágætu stofnunar.    


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

ÞETTA var allt annað! Ég fékk alveg vatn í munninn þegar ég opnaði töfluna. Ég ELSKA svona númeratöflur. Og nú verð ég endilega að herma eftir þér og fara að gera einhverjar svona töflur, þetta er svo ægilega gaman :)
En afhverju eru sumar tölurnar inn á milli rauðar eða bláar?
Það eru þarna nokkrar skáletranir - hefur það nokkra merkingu?

gerður rósa gunnarsdóttir, 26.3.2007 kl. 19:39

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er ekki amalegt að hafa nákvæman prófarkalesara til að reka ofan í sig ólukkans letina og hroðvirknina. En merking þessara atriða er samt sem áður algjört leyndarmál!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.3.2007 kl. 23:16

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og lengra þó Vala mín! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.3.2007 kl. 10:34

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Veðurfregnir gera yður frjálsa!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.3.2007 kl. 14:58

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sigurður þetta var mjög gott veðurblogg. Þú ert algjör veðurviti.

Svava frá Strandbergi , 27.3.2007 kl. 17:09

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og það er nú aldeilis betra en að vera algjör hálfviti eins og ...  

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.3.2007 kl. 17:46

7 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Eins og hver???!!!!

gerður rósa gunnarsdóttir, 27.3.2007 kl. 18:12

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vertu nú ekki að sóa tíma þínum í svona spurningar Zoa.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.3.2007 kl. 18:20

9 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ókei

gerður rósa gunnarsdóttir, 27.3.2007 kl. 19:32

10 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Þetta er lærdómsríkt innlegg. Segðu nú okkur kæri nimbus hvað veðrið verður 26 Febrúar 2008.

Ólafur Þórðarson, 28.3.2007 kl. 23:18

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eigi veit ek það svo gjörla en 30. febrúar 2008 verða þrumur miklar og eldingar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.3.2007 kl. 23:38

12 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Sæll, ágæti Sigurður Þór! Eitt finnst mér slæmt við bloggið þitt - mér finnst stundum líða helst til langt á milli þess sem þú skrifar ...

Hlynur Þór Magnússon, 29.3.2007 kl. 15:12

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ástæðan fyrir því að langt um líður milli blogga er einfaldlega sú að mér finnst ekkert gaman að blogga. Ég hef jafnvel verið að hugsa um að blogga aðeins veðurfærslur. Ég vil ekki móðga neinn - að minnsta kosti alvarlega - en ég held að bloggið sem fyrirbrigði sé botninn í mannlífinu, þessi endalausu uppþot út af dægurmálum og pólitík og sjálfhverfi rembingur. En við sjáum nú til. Kannski braggast bloggið.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.3.2007 kl. 16:40

14 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Ég kæri mig lítið um dægurmálin, eða pólitíkina - má ég hins vegar biðja um sjálfhverfan rembing, eins og þú kallar ...

Hlynur Þór Magnússon, 30.3.2007 kl. 00:19

15 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Bloggi er eintóm þjáning. Hjá mér er það þannig að ég skrifa undir höfundarnafni og fæ alltaf eitthvað í hausinn að ég sé ekki til. Hafiði heyrt annað eins?

Muna eftir regnhlíf og járnkarli 30 Febrúar 2008.

Ólafur Þórðarson, 30.3.2007 kl. 02:41

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef aldrei fattað orðið bloggi, sem virðist vera eintala og ekki heldur orðið bloggar, sem virðist vera fleirtala án greinis. Getur einhver skýrt út fyrir mér leyndardóma þessara orða, merkingu þeirra og beygingu eftir kyni og tölu. Ætli sé annars málfræðilega rangt (kannski siðferðilega líka?) að kalla stelpu sem bloggar bloggínu, nánar tiltekið bloggínu nr. 1 (hún virðist reyndar vera orðin bloggstopp og er kannski flutt til Patreksfjarðar þar sem menn blogga ekki, hugsa ekki og eru ekki). Ég hef oft verið að hugsa um að fara að blogga undir höfundarnafni, t.d. Jósef Mengele, því þá gæti ég svívirt allt og alla, sérstaklega nafngreinda einstaklinga, með þeirri hjartanlegu meinfýsni sem mér er eiginlega (en held í skefjum af spéhræðslu) án þess að nokkur viti hvað ég er mikill andskotans óþokki og gunga. Ég hef m.a.s., by the way, b.t.w.  stofnað eina slíka síðu en hef ekki enn bloggað inn á hana eitt einasta orð.  Svo er ég alveg sjúklega forvitinn að vita hver þessi veffari er sem hefur búið á eyju við strönd Bandaríkjanna lengur en elstu menn muna. En ég lifi það nú alveg af að vita það ekki.

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.3.2007 kl. 09:41

17 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Halló kæri Sigurður!

Ég er að fara til Kanarí eftir mánuð. Geturðu nokkuð sagt mér hvernig veðrið verður á eyjunum? Þú veist; stuttbuxur eða regngalli?

Lyfti einum köldum Budweiser fyrir veðrinu!

Ólafur Þórðarson, 5.4.2007 kl. 02:48

18 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég forðast áfenga drykki meira en andskotann. En á Kanarí er næstum alltaf sól og blíða þegar komið er fram í maí eins og allir vita.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.4.2007 kl. 18:01

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband